Fimmtudagur, 11. ágúst 2011
Ekkert að marka.
Ertu ekki að djóka??
Þessi könnun var gerð fyrir Heimssýn
Heimssýn eru samtök styrkt að LÍÚ mafíunni og Bændarsamtökunum. Þetta eru sérhagsmunahópar sem vilja óbreytt ástand vegna þess að þeir eru að skera eld að sinni köku á hverjum degi. Á KOSTNAÐ ALMENNINGS.
Heimssýn berjast gegn ESB að öllu afli með fjármagn frá mafíunum tveim og reyna hvað sem þeir geta til að hindra eðlilegar umræður um ESB.
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
Það er ekkert að marka þetta drasl.
Það vita allir að ESB andstaðan hefur minnkað verulega. Aðrar marktækar kannanir hafa sýnt fram á gífurlegan ESB stuðning á meðal þjóðarinnar.
Og ef eitthvað er þá mun sá stuðningur aukast enn á meðal Íslendinga.
hvells
Vaxandi andstaða við aðild að ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:44 | Facebook
Athugasemdir
Þið eruð bara hlægilegir !
Capasent Gallup gerði þessa faglegu könnun, hún sýnir bara mjög svipaða og yfirgnæfandi andstöðu við ESB apparatið - þetta sökkvandi skip, eins og verið hefur undanfarin misseri !
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 11.8.2011 kl. 20:11
Ég skil ekki almennilega, það er sagt nákvæmlega hver spurningin var, hvað er ekki að marka við þessa spurningu?
gunso (IP-tala skráð) 11.8.2011 kl. 21:19
ER ekkert að marka Capasent Gallup? auðvitað er þettað rétt könnun hjá Capacent Gallup
Guðmundur Kristinn Þórðarson, 11.8.2011 kl. 21:35
Það er að marka allar kannanir. ESB hefur engan stuðning á Ísland og Evrópusinnar, eins og ég, verða að spyrja okkur af hverju.
ESB hefur ekki verið kynnt rétt á Íslandi. Þangað til mun þetta vera svona.
Vonandi verður það öðruvísi þegar ESB sjálft fer að kynna bandalagið frekar en Samfylkingin sem hefur ekki hugmynd um hvað ESB er.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 11.8.2011 kl. 21:52
Skemmtilegt þegar NEI-sinnar einsog Gunnlaugur taka mark á capacent könnun þegar það er jákvætt fyrir þá..... en þegar niðurstaða könnunar er neikvætt fyrir þá .... þá er allt annað hljóðið í þeim
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 11.8.2011 kl. 22:22
Hvells: Helstu rök aðildarsinna á Íslandi er lækkað matvöruverð og meiri kaupgeta.
Það mun ekki standast. Ég sem ESB-sinni trúi því ekki.
Kaupgetan og kaupmáttur fer eftir efnahagsstefnu hvers ríkis fyrir sig en ekki hvort landið er í ESB eða ekki.
Það er mikilvægt að við förum að tala um ESB en ekki einhverja drauma eða plat-rök þykjustu ESB-manna.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 11.8.2011 kl. 22:27
Gunnlaugur býr þó í ESB, þó hann sé á móti því og getur sagt okkur meira frá ESB en venjulegur ESB-sinnaður-gutti á Íslandi.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 11.8.2011 kl. 22:28
Stefán
Þegar tollar lækka. Þá lækkar vöruverð.
Það er talað um verndartolla í daglegri umræðu. Afhverju er það kallað verndartollar??? Jú vegna þess að þegar tollar eru felldir niður þá mun íslenskir bændur ekki standast VERÐsamkeppni.
Lækkarð matvöruverð eru ekki helstu rök ESB sinna. Held það fari bara eftir því hvaða JÁ sinna þú tala við.
Sumir vilja stöðugleika í efnahagslífinu, sumir vilja afnema verðtryggingu, sumir vilja lægri vexti...... eða gjalmiðil sem virkar í útlöndum.
Kaupgeta og kaupmáttur fer vissulega eftir efnahagsstefnu hvers ríkis. Það er alveg rétt og ég hef aldrei verið að véfenga það. En matarverð mun lækka vegna niðurfellinga tolla... það er alveg klárt mál.
Ég hef búið í ESB ríki (tveim) í meira en eitt og háflt ár. En það kemur bara ekkert málinu við.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 11.8.2011 kl. 23:30
Ef innflutningsverð lækkar, þá er það verslunumur á Íslandi til góða.
Evran mun hjálpa okkur mikið!! Hún mun hjálpa okkur að meta hvað vara á Íslandi kostar.
Hún mun hjálpa okkur að sjá hvað varan kostar hér miðað við annars staðar frá ári til árs.
Ég flutti til Þýskalands árið 2001 og gat strax fært heimilisbókhald næstu árin. Hvernig eiga fjölskyldur á Íslandi að geta fært bókhald þegar gjöld hækka og hækka.
ESB býður einnig upp á fjórfrelsi sem er ekki á Íslandi þrátt fyrir EES samninginn. Það er, aðili starfar í einu landi og býr með fjölskyldu í annari.
ESB er á miklu hraðri leið að verða alvöru ríkjabandalag, en líklega er best að fylgjast með fjölmiðlum erlendis en á Íslandi, þegar kemur að því.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 11.8.2011 kl. 23:56
Maður bíður nú enn spenntur eftir útskýringum hvellsins um hvernig ekkert sé að marka þessa spurningu sem lögð var fyrir þátttakendur
gunso (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 08:10
Skrítin frétt. Það vantar allar útskýringar á könnuninni. Er þetta hlutfall þeirra sem svöruðu eða eða hlutfall allra sem spurðir voru? Hversu margir voru í heildarúrtakinu? Ef þetta er byggt á 868 svörum, hversu margir svöruðu ekki? 50? 500? 1000? Þetta lyktar svolítið eins og einungis sé verið að birta þær niðurstöður sem henta Heimssýn og auðvitað eigendum Mbl.
Páll (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 09:48
Páll (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 09:48
Sammála þessu.
Enda eru alvöru fjölmiðlar ekkert að birta þessa bull könnun neinstaðar.
Heimsýn og Mogginn eru þeir einu sem skoða þessa markausu könnun.
Sleggjan og Hvellurinn, 12.8.2011 kl. 09:54
Sleggjan og Hvellurinn, 12.8.2011 kl. 09:54: Eruð þið fermdir, félagarnir? Þarf að s-t-a-f-a þetta fyrir ykkur, ESB-möppudýrin? Talsmaður Den Danske Bank er með þetta á hreinu: 'Íslendingar ganga aldrei í ESB.' (punktur)
Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 10:18
Já... talsmaður einver banka á norðulöndum... danmörk af öllum löndum.
segir að ísland gaga ekki í ESB.
þetta er ekki einusinni bankastjóri... heldur einhver almannatengill.
hvaða rök eru þetta?? ég bara spyr
Sleggjan og Hvellurinn, 12.8.2011 kl. 11:48
Skemmtilegt þegar NEI-sinnar einsog Gunnlaugur taka mark á capacent könnun þegar það er jákvætt fyrir þá..... en þegar niðurstaða könnunar er neikvætt fyrir þá .... þá er allt annað hljóðið í þeim
Skemmtilegt hvernig JÁ-sinnar tóku mark á capacent könnun þegar það var jákvætt fyrir þá... en þegar niðurstaða könnunar er neikvætt fyrir þá .... þá er allt annað hljóðið í þeim
Guðmundur Ásgeirsson, 14.8.2011 kl. 16:13
Það sem Guðmundur sagði
+1
sleggjan (IP-tala skráð) 14.8.2011 kl. 21:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.