Glæsilegt framtak.

Það er ánægjulegt að sjá ungt fólk virkt í ESB umræðunni.
Það er mikið í boði fyrir ungt fólk þegar kemur að ESB.
Skemmst er að minnast á ERASMUS skiptanemaprógramminu sem þúsundir íslenskir hóskólanemar hafa nýtt sér og stundað nám erlendis og víkkað sjóndeildarhringinn.

Svo má ekki gleyma að við inngöngu í ESB þá stórlækka skólagjöld til Bretlands sem eru með bestu háskóla í Evrópu.

hvellurinn


mbl.is Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er enginn byggðarstefna á Íslandi. Eða hún hefur verið í skötulíki.

Ef Jón Bjarnason er annt um byggðir landsins þá væri best fyrir hann að stiðja ESB heilshugar. Byggðarstefna ESB verður gríðarlega mikilvæg fyrir landsbyggðina. Þessir kostir voru sýndir í sjónvarpsþáttinum Landanum. En NEI sinnar fóru í límingum og kölluðu þennan faglega þátt áróður.
NEI sinnar vilja ekki að Íslendingar sjá kosti ESB.

http://visir.is/evropusambandid--til-sjavar-og-sveita,-borgar-og-baejar/article/2010809115792

Í greinagerð sem unnin var fyrir Samtök íslenskra sveitarfélaga um hugsanleg áhrif aðildar að Evrópusambandinu á íslensk sveitarfélög kemur fram að talið er til helstu kosta aðildar að íslenskum sveitarfélögum opnist aðgangur að styrkjum úr byggðarsjóðum ESB og ákvörðunum um með hvaða hætti þeim er úthlutað til einstakra svæða hér á landi. Aðrir kostir sem nefndir eru er aðgangur að styrkjum úr landbúnaðar-/dreifbýlissjóði ESB, aðgangur að styrkjum til sjávarbyggða, aðild að öllum áætlunum ESB, hvati að auknu samastarfi sveitarfélaga, landshlutasamtaka og öflugri stjórnsýslu sveitarfélaga, meira forræði sveitafélaga í byggðamálum og aðgangur að stofnunum ESB sem fjalla um byggða- og sveitastjórnarmál.

hvellurinn


mbl.is Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópustofa kemur á framfæri upplýsingum byggðar á staðreyndum.

Það er einkennilegt að Ásmundur telur vera ESB slagsíða í Evrópumálunum.

Mogginn stundar áróður gegn ESB á hverjum degi með sinn vinsælasta vef landsins mbl.is

Evrópuvaktin stunda áróður gegn ESB

AMX stundar áróður gegn ESB.

Bændarblaðið sem er dreift á hvert mannsbarn stundar grímulausann áróður gegn ESB.

Heimssýn og fleiri samtök stunda áróður gegn ESB og splæsa í fléttiskillti útum allan bæ.

LÍÚ henda hundruðu milljóna í ýmis áróðursbatterí..m.a Heimssýn.

 

 

 

hvellurinn


mbl.is Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur tekur þetta

Ég spái Ólafi sigri.

Ekki vegna þess að hann er svo góður.

Heldur vegna þess að það kom aldrei neinn alvöru frambjóðandi á móti honum.

Ég er viss um að ef t.d Ragna Árnadóttir mundi bjóða sig fram á móti honum þá mundi Óli grís tapa.

 

hvellurinn


mbl.is „Hvatning til okkar beggja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

XS, Samstaða og HG eru einu flokkarnir sem leggja fram lausn.

Samfylingin er eini flokkurinn á Alþingi sem er með lausn á peningamálum þjóðarinnar og gjaldeyrishöftunum.

Restin af þingmönnum æpa einsog bavíanir en koma ekki með neinar lausnir.

Sem er sorglegt.

 

hvellurinn


mbl.is Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottur

Alltaf gaman þegar ríkisplebbar sem hafa verið á spenanum fara að vinna hjá einkafyrirtækjum. Það gerist ekki oft sbr Ingibjörg Sólrún, Árni Matt og fleiri.... en hef hann hefði ekki verið dæmdur í Landsdóm þá hefði hann fengið einhver bitling. Jafnvel Seðlabankastjórastöðu... hann uppfyllir kröfuna sem lét Davíð Oddson taka pokann sinn. Mastersgráðan í hagfræði.

 

Óska Geir velfarnaðar.

 

hvellurinn


mbl.is Geir í nýtt starf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bændasamtökin mergsjúga almenning.

 

Ég rakst á mjög áhugaverða frétt í dag. Svo ekki sé meira sagt.:


Þórólfur Matthíasson segir þögn Bændasamtakanna minna á útrásarvíkingana sem gerðu marga hluti sem engum kom við

„En fyrir utan ósannindi og dylgjur hafa þeir hvorki gert tilraun til að upplýsa almenning og félagsmenn sína um skuldamál og fjárreiður samtakanna og fyrirtækja í eigu Bændasamtakanna,“ segir Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor, sem fær engin svör við fjölmörgum spurningum sínum um rekstur hinna ríkisstyrktu Bændasamtaka.

Prófessorinn sendi ýmsar áleitnar spurningar til Bændasamtakanna í opnu bréfi í Fréttablaðinu í byrjun mánaðarins eftir að hafa lesið óritskoðaða ársreikninga samtakanna árin 2008 til 2010. Í þeim reikningum kom meðal annars fram gríðarlegt tap tveggja einkahlutafélaga Bændasamtakanna á þessum tíma en bæði félögin standa að rekstri hótela og veitingastaða.

„Árið 2006 virðist staða þessa áhætturekstrar hafa verið góð, en það ár hafnaði Búnaðarþing að selja hluta rekstrarins þó í boði væru 4,3 milljarðar króna. En skjótt skipast veður í lofti því sex árum síðar var eiginfé Hótels Sögu ehf. neikvætt um 2,5 milljarða króna skv. ársreikningi! Félagið virðist ekki hafa getað staðið við skuldbindingar sínar á árinu 2010. Eigandinn, Bændasamtökin, tekur afleiðingu þessarar stöðu og færir verðmæti hlutafjáreignar sinnar niður í núll bæði í Hótel Sögu ehf. og Hótel Íslandi ehf. og afskrifar 950 milljón króna skuld Hótels Sögu við Bændasamtök Íslands.“

Þórólfur óskaði eftir svörum við 18 spurningum sínum varðandi rekstur samtakanna. Meðal annars hvað skýrði hið mikla tap í hótelrekstri Bændasamtakanna síðan 2006 og hvort rétt sé að ríkisstyrkt Bændasamtökin séu að standa í áhættusömum rekstri á borð við rekstur veitingahúsa og hótela.

Nú þremur vikur síðar hafa engin svör borist og segir prófessorinn þögn samtakanna afhjúpandi.

„Þögn forystumanna bænda og Bændablaðsins er afhjúpandi. Hún segir okkur að forystumennirnir og Bændablaðið telji hvorki félagsmenn sína né almenning (sem borgar drjúgan part af kostnaði við rekstur samtakanna) eigi kröfu á skýringum á milljarða halla á hótelrekstri samtakanna.“

 

 http://www.dv.is/frettir/2012/5/24/rikisstyrkt-baendasamtok-ad-sysla-i-ahaetturekstri/

 

Er þetta ásættanlegt? 

 

Meðan sjúkrahús útá landi eru skorin niður við nögl þá geta óðalsbændurnir og bændasamtökin spilaði með marga milljarða af okkar skattfé.

Er ekki kominn tími á að stokka í þessu spillta landbúnaðarkerfi.

Með aðild að ESB mun koma reglu á þessa óráðsíu og ég hvet kjósendur til að líta til þáttar einsog spillingar innan þessara hagsmunasamtaka þegar þeir greiða atkvæði um ESB samninginn

Bændasamtökin berjast hart gegn ESB. Þeir vilja halda áfram að skera eld að sinni eigin köku á kostnað almennings. En við Íslendingar ætlum ekki að blekkkjast af þeirra hræðsluáróði.

 

hvellurinn


mbl.is Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegt.

Það er mjög skemmtilegt að heyra í þeim sem hæst höfðu um að draga þurfti bankakerfið saman. Fjármálakerfið væri of stórt á Íslandi.

Svo þegar það er gert.... þá fara þeir að væla.

 

Þegar Landsbankinn sker niður þá er hann að leytast eftir hagræðingu... en þeir skera ekki niður í ljósi einhverskonar "sökudólgavísitölu". Það væri þá eitthvað nýtt hugtak í viðskiptafræðinni.

 

hvellurinn


mbl.is Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við þurfum svipaðar reglur hér

Nauðsynlegt er að stemma stigu við vaxandi drykkju barna og unglinga hér á landi.

Aðgengi er of mikið. Vínbúðir eru staðsettar í öllum landshlutum.

Áfengið er allt of ódýrt. Bæði bjór og sterkt vín.

Það þarf að setja  verðgólf líkt og í Skotlandi. Verðgólfið þarf að vera töluvert hærra en það sem gengur og gerist í Vínbúðunum í dag.

Fullorðnir geta skemmt sér ef þeir vilja nota peningana sína í það. En ég er fyrst og fremst að hugsa um börnin og unglingana. Það þarf að hefta þennan drykkjufaraldur

kv

Sleggjan


mbl.is Skotar lögbinda áfengisverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Bjarna er úr tengslum við raunveruleikann

http://m5.is/?gluggi=frett&id=168890

Honum virðist getað talað fyrir hönd þjóðarinnar. Hann er einn sá útvaldi. Þess vegna er sorglegt að hann þekkir ekki til þjóðarinnar en raun ber vitni.

Hann segir:  "Alþingi endurspeglar ekki þjóðarviljann í ESB-málinu".

Nær allar kannanir hafa sýnt fram á að meirihluti Íslendinga vilja klára ESB ferlið og kjósa svo um samninginn.

Nýjasta könnunin segir:

Helmingur þeirra sem svöruðu könnun sem unnin var á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands vill að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram.

37,9% þeirra sem tóku afstöðu vildu hætta viðræðum

Björn Bjarna er greinilega orðinn kalkaður.

Enda orðinn gamall og lúinn. Hefur verið og er ennþá á opinbera spenanum.

hvellurinn

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband