Sleggjan og Hvellurinn

Á þessari bloggsíðu er bloggað um alla mögulega hluti.

Þó aðallega sem hæst ber á degi hverjum og oftast þá um pólítík og efnahagsmál. Þó það sé alls engin regla.

Þetta er ein vinsælasta bloggsíða á Íslandi í dag og margir þjóðþekktir einstaklingar hafa vitnað í okkar orð. Til að mynda Egill Helgason (http://silfuregils.eyjan.is/2010/07/27/x-o/).

Erum þriðja vinsælasta bloggsiðan á Íslandi http://thruman.blog.is/blog/sleggjuhvellurinn/entry/1283498/

Erum tveir einstaklingar sem bloggum undir notendanöfnum:  Sleggjan (sl) og Hvellurinn (hvells)

Venjan er að sá sem skrifar færslu kvittar neðst með notendanafni.

Erum með fjölbreytta menntun, starfandi á vinnumarkaði og sjáum um rekstur.

Breiddin á mannskapnum sem bloggar er einn af kostunum við þessa bloggsíðu.

Námsbrautir okkar eru misjafnar: BSc gráður í fjármálum frá HÍ og HR, meistaragráða í reikningsskil og endurskoðun (M.Acc) og MSc í orku-auðlindafræði. Einnig rekum við okkar eigin fyrirtæki og höfum gert það síðan 2009.

Ætlun okkar með þessu bloggi er að taka þátt í málefnalegri umræðu hérna í bloggheimum. Vonum að við getum varpað nýja sýn á hlutina og koma með góða punkta.

Ekki er ætlunin að særa neinn né vera með skítkast. Ef færsla fer fyrir brjóstið á einhverjum þá endilega senda okkur skilaboð hér á síðunni eða gegnum tölvupóst og við munum fjarlægja hana.

 

Ef einhverjar spurningar, óskir eða kvartanir er hægt er að hafa samband beint við okkur á sleggjuhvellur@gmail.com og við svörum um  hæl.

 

Með bloggkveðju.

 

Sleggjan og Hvellurinn

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband