Góður pistill

Týr fjallar um vinnubrögð Tryggva Gunnarssonar í „lekamálinu“, og ber það saman við mál Úrsusar.

Umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, hefur tvívegis á undanförnum vikum verið umfjöllunarefni fjölmiðla.

* * *

Í fyrra skiptið ritaði Heiðar Guðjónsson hagfræðingur grein í Morgunblaðið og sagði frá því að félag hans Úrsus ehf. hefði kvartað yfir stjórnsýslu Seðlabankans til embættis umboðsmanns Alþingis. Í kvörtuninni komu fram mjög alvarlegar ásakanir í garð Seðlabankans og bankastjóra hans, Más Guðmundssonar.

* * *

Seinna málið var bréf sem Tryggvi Gunnarsson sendi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. Tilefnið var frétt DV þar sem sagði að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefði hætt störfum vegna afskipta ráðherrans á rannsókn svokallaðs „lekamáls“.

* * *

Ásakanirnar í báðum málunum eru mjög alvarlegs eðlis. En viðbrögð og viðbragðstími umboðsmanns eru hins vegar umhugsunarefni fyrir þá sem hyggjast leita til umboðsmanns.

* * *

Tæpum fjórum árum eftir kvörtun Heiðars Guðjónssonar hefur embættið enn ekki komist að niðurstöðu og gefið út álit sitt.

* * *

Einum degi eftir að DV heldur því fram að ráðherra hafi haft afskipti af lögreglurannsókn er umboðsmaður búinn að birta opinberlega afrit af bréfi til ráðherrans. Dagana á eftir kemur í ljós að ráðherrann spurði bara lögreglustjórann hvenær rannsókninni lyki. Lögreglustjórinn staðfestir það. Það sem meira er að lögreglustjórinn fór ekki með stjórn rannsóknarinnar, heldur ríkissaksóknari. Leikurinn er svo endurtekinn í gær þegar annað bréf til ráðherra er birt á síðu Umboðsmanns.

* * *

Samkvæmt 12. gr. reglna nr. 82/1988 ákveður umboðsmaður sjálfur hvort hann gefur opinbera tilkynningu um mál og á hvern hátt hann gerir það. Í sömu grein segir „Ávallt er umboðsmaður lætur frá sér fara tilkynningu um mál skal hann greina hvað stjórnvald það, sem hlut á að máli, hefur fært fram sér til varnar.“

* * *

Hvað olli því að umboðsmaður beið ekki eftir viðbrögðum innanríkisráðherra áður en hann birti bréf sitt opinberlega. Hefði ekki verið „rétt að að bíða og sjá hver viðbrögð stjórnvalda“ yrðu, svo notast sé við orðalag umboðsmanns sjálfs í svargrein hans til Heiðars?

* * *

Umboðsmaður hefur birt samskipti sín við innanríkisráðherra en ekki seðlabankastjóra. Hver er skýringin á því?

* * *

En það er rétt að bíða eftir skýringum umboðsmanns, áður en Týr gefur út álit sitt.

 http://www.vb.is/skodun/108103/

 

hvells

 

 


mbl.is Sigmundur vinnur að svari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er enginn vafi á að vinna umboðsmanns Alþingis hefur verið óvenjulega fljót í þessu lekamáli. Grunsamlega fljót. Hann er með búnka á verkefnum á skrfiborðinu, er bara tilviljun hvað ræður röðinni?

kv

Sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 9.8.2014 kl. 19:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband