Hvellurinn hafði rétt fyrir sér. Lesendur síðunnar stórgræða.

Hvellurinn hefur verið iðinn við að gefa lesendur síðunnar fjárfestingaráðgjöf.

Lesendur síðunnar hafa stórgrætt.

Hann benti á gott kauptækifæri  í byrjun sumars um kaup á bréfum Icelandair. Bréfin voru ódýr eða 16,4. Bréfin hækkuðu gríðarlega mikið daginn eftir

Daginn eftir áréttaði Hvellurinn að enn væri kauptækifæri til staðar og Icelandair mundi ná 18,1 í sumar.

Nú er ágústbyrjun og bréf Icelandair eru komin upp í 18,9.

Með öðrum orðum þá hefur allt staðist sem Hvellurinn hefur spáð og ég vona að almenningur og lífeyrissjóðirnir fylgjast með........ það margborgar sig.

Frí fjárfestingaráðgjöf. 

Það hefur aldrei gerst áður á Íslandi að hér sé stunduð ÓKEYPIS fjárfestingaráðgjöf. Enda stendur Hvellurinn með fólkinu í landinu. 

kveðja

Hvells

 


mbl.is Mesti farþegafjöldi frá stofnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Geri ráð fyrir að flestir séu sáttir við smá auka pening og sérstaklega þegar ekki þarf að borga krónu fyrir að þyggja ráðgjöf.

kv

slegg

Sleggjan og Hvellurinn, 7.8.2014 kl. 11:48

2 identicon

Er enn ráðlegt að fjárfesta í Icelandair?

Spyrill (IP-tala skráð) 7.8.2014 kl. 16:03

3 identicon

Hjartans þakkir fyrir góð ráð. Lögmálin sjá um að þú auðgast sjálfur á þeim. Karma er raunverulegt og þú hefur gert mörgum gott :)

Spyrill (IP-tala skráð) 7.8.2014 kl. 16:05

4 identicon

Bólan á hlutabréfamarkaðnum hefur nú ekki farið fram hjá nokkrum manni.

Lífeyrissjóðirnir kaupa nú og selja hver öðrum í nákvæmlega eins hringekjuviðskiptum og Jón Ásgeir og Pálmi Fonsari gerðu hér fyrir hrun.

Þetta er engu að síður bóluhækkun sem engin innstæða er fyrir.

Menn "græða" á pappírum, en það er ekkert á bak við þetta, að lokum töpum við öll því höggið lendir allt á lífeyrissjóðunum fyrir rest.

Sigurður (IP-tala skráð) 7.8.2014 kl. 17:06

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ef við notfærum okkur allar helstu kennitölur til þess að greina hvort það sé bóla á hlutabréfamarkaðinum þá kemur í ljós að íslensk hlutabréf eru ekkert hærra verðlögð en hlutabréf erlendis.

En ég er á því að setja lög á lífeyrissjóðina að þeir verða að fjárfesta a.m.k 75-80% erlendis. Ekki ósvipað norska olíusjóðnum.

Þú ert líklega sammála því Sigurður. EÐA HVAÐ?

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 7.8.2014 kl. 17:22

6 identicon

Það þýðir ekkert fyrir þig að reyna að halda því fram að það séu einhver efnisleg rök fyrir þessum hækkunum á hlutabréfunum.

Þessar hækkanir eiga sér engar skýringar í rekstri félagsins, eina skýringin er hringekjuviðskipti þar sem pjakkar í stjórnum lífeyrissjóða fá kaupauka og bónusa fyrir góðan árangur í hringekjuviðskiptum að hætti útrásarvíkinganna.

Vissulega væri það gott mál ef sjóðirnir gætu fjárfest erlendis, en það er bara ekki hægt á meðan við erum í höftum.

Þetta er bara enn eitt merki um skaðsemi haftanna.

Á meðan komast menn upp með það að stinga undan gríðarlegum upphæðum út úr sameiginlegum lífeyrissparnaði landsmanna í formi allskonar bónussa fyrir vel unnin störf, sem allir vita að er ein risastór blekking.

Sigurður (IP-tala skráð) 7.8.2014 kl. 17:51

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

" í skjóli gjald­eyr­is­hafta og fárra fjár­fest­ing­ar­kosta er ákveðinn eft­ir­spurn­arþrýst­ing­ur, þar sem til að mynda líf­eyr­is­sjóðir, verðbréfa­sjóðir og trygg­inga­fé­lög þurfa að ávaxta fé sitt á litl­um og lokuðum markaði, sem ætla megi að þrýsti ávöxt­un­ar­kröfu markaðar­ins til hluta­bréfa niður og leiði þannig til hærra markaðsverðs.

Sé hins veg­ar litið til þekktra verðkennitalna virðist sem svo að markaður­inn í heild sé ekki yf­ir­verðlagður, eins og sagt er, þó svo að hluta­bréf fá­einna fé­laga geti verið met­in of hátt. Þá er ljóst að þær hækk­an­ir sem hafa orðið á hluta­bréf­um ís­lenskra fé­laga eru ekk­ert eins­dæmi. Hluta­bréf hafa hækkað mjög víða um heim en í Banda­ríkj­un­um á sér stað, svo eitt dæmi sé tekið, sama umræða og hér um hvort bólu­ein­kenni sé að finna á markaðinum."

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2014/02/20/engin_bola_a_hlutabrefamarkadi/

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 7.8.2014 kl. 18:07

8 identicon

Að bera saman hlutabréfamarkað, eða bara nokkurn markað á Íslandi við markaði í opnum hagkerfum án hafta er bara samanburður sem er svo vitlaus að á ekki að þurfa að ræða.

Erlendis er það framboð og eftirspurn í alþjóðahagkerfi sem ræður hlutabréfaverði.

Það er ekkert slíkt til staðar hér.

Hér einfaldlega flæða peningar frá launþegum í hvermum mánuði inn í sjóði, sem vantar vinnu, og sú vinna verður að vera innanlands í minnsta gjaldmiðli heims.

Ekki vera með þessa vitleysu að bera saman hlutabréfamarkað á laugaveginum við Wall Street.

Sigurður (IP-tala skráð) 8.8.2014 kl. 13:08

9 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

@Spyrill

Já, hvellurinn er góðmennskan uppmáluð. Hefur góða þekkingu á hlutabréfum og trendum þeim tengdum. Um að gera að gefa þessar upplýsingar til almúgans, gefa þeim frjálst val að nýta sér sérfræðiþekkingar.

kv

Sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 8.8.2014 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband