Lógíkin hjá Íslendingum varðandi Palestínu

Þegar Palestínumenn skjóta eldflaugum á Ísraela þá er það kallað "hróp á hjálp".

 

Þegar Ísrael svara þeim árásum (legg áherslu á að Palestínumenn byrjuðu) þá er það kallað "þjóðarmorð".

 

Þetta er snilldar lógík hjá Íslendingum. Tær snilld má segja.

 

Ísraelar skjóta á strategísk skotmörk á Gaza strönd til að reyna að hafa áhrif á herskáu Hamas samtökin (sem fela sig oft í skólum og sjúkrahúsi, "cowards"). En Palestínumenn skjóta ekki á strategísk skotmörk heldur í átt að næstu byggð og reyna að drepa sem flesta. Það er í einu orði sagt ógeðfellt.

 

Íslendingar mega alveg segja að eldflaugarnar hjá Hamas séu tæknilega lélegri miðað við Ísrael vopn, en ásetningurinn breytist ekki við það. Ef  hamas hefði aðgang að öflugri vopnum mundu þau nota þau (það ætti að svara af hverju mikil öryggisgæsla er við Gaza sem Íslendingar skilja seint).

 

Þessir sem mættu á þennan mótmælafund eru allir snillingar. Tærir.

 

kv

Sleggjan


mbl.is „Hernámið burt, frjáls Palestína“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sorglegt, og reyndar hreinasti viðbjóður að þú hafir fullan skilning á því að ísraelar skuli ævinlega myrða tugi og hundruði manns í hvert sinn sem þeir hefna sín.

Menn, konur og börn, skiptir engu hver er, bara myrða sem flesta.

Skotmörkin eru allar byggingar, hvort sem eru opinberar, eða heimili, skólar, sjúkrahús og bara hvað sem er.

Fólk er hvergi óhult.

Alsaklaust fólk sem hefur ekkert með morðið á þessum þrem ísraelum að gera.

Þú myndir aldrei samþykkja þessi fjöldamorð í neinu öðru landi.

Þér finnst ógeðfellt að Hamas liðar reyni að drepa, en ljómandi fínt að ísraelar drepi sem allra flesta, og skiptir engu máli hver er, svo lengi sem það sé palestínumaður.

Þér ferst að saka aðra um rasisma, þegar fólk er réttdræpt fyrir það eitt að hafa fæðst í palestínu.

Sigurður (IP-tala skráð) 14.7.2014 kl. 21:18

2 identicon

Sigurður: Það er grundvallar misskilningur að Ísraelsmenn séu að gera árásir til að hefna sín (og það væri tæpast mikið eftir af Gasa ef þeir væru að reyna að drepa sem flesta). Þeir eru að grisja eldflaugabirgðir Hamas.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 14.7.2014 kl. 21:53

3 identicon

þú ert algjör hálviti og greinilega með greindavísistölu á við rottu..... enda benda skrif þín ekki til annars .....    þu augljoslega þekkir ekki söguna neitt

kemur þer ekki við faviti (IP-tala skráð) 14.7.2014 kl. 22:10

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Sigurður, við verðum ávalt ósammála varðandi mið-austurlönd.

"kemur þer ekki við áviti" : Ég hef kynnt mér söguna bara mjög grúndígt. Einnig hef ég heimsótt Vesturbakkann, Gaza svæðið og Ísrael tvisvar sinnum. Efast um að þú hefur gert það. 

Semsagt ekki vera tala út í  bláinn.

kv

Sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 15.7.2014 kl. 01:16

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Ég tek undir með Sleggjuni.

Svo er talað um flugelda sem Hamas sendir með skírskotun í að þetta sé ekki alvarlegri tól en við notum á áramótum. ÍRanir sem meðal annars sjá þeim fyrir morðtólunum eru ekkert þekktir fyrir lélegar eldflaugar. Fjarlægðin sem Hamas er að skjóta er um 80 km og það nær enginn flugeldur áramótanna hér sem við þekkjum nema kannski 50-150 metra - hvað þá 80 km.

En tilgangurinn helgar meðalið hjá Hamasvinum og annarra hryðjuverkasamtaka alþjóðlegra.

Já svo nota þessi auvirðulegu samtök konur og börn sem mannlega skildi við hryðjuverkahreiður sín og kalla síðan venjuleg heimile enda sat aumingja gamla konan í ruggustól fyrir utan (átti samt heima 500 mrt lengra frá)

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 15.7.2014 kl. 04:10

6 identicon

Sæll.

Sumir sem hér tjá sig eru alveg ólesnir og hafa látið blekkja sig með einhliða fréttaflutningi. Það er miður :-( 

Stjórnvöld í Palestínu stuðla beinlínis að ofbeldi og þá er ég ekki bara að tala um Hamas, Islamic Jihad og vopnabræðra þeirra heldur Fatah líka en talað er um Fatah sem hófsamt fyrirbæri:

https://www.youtube.com/watch?v=sIgQWG-KItg

Af hverju er ekki sagt frá þessu hérlendis? Hver er skoðun Ísland-Palestína á þessu?

Ísraelsmenn hafa ekki hertekið land sem svokallaðir Palestínumenn gera nú tilkall til. Palestínumenn eru uppfundin þjóð sem varð ekki til fyrr en upp úr árinu 1960.

Það sem félagið Ísland-Palestína og fleiri annað hvort vita ekki eða tala ekki um er að árið 1695 var framkvæmt manntal í Palestínu. Með því að skoða það sést að það ár var ekki eitt arabískt eða palestínskt nafn á svæðinu. Landið var á þessum tíma óræktað og afar fáir bjuggu þar, aðallega í bæjum á borð við Jerúsalem, Jaffa og fleiri.

Svo væri gaman að fá að heyra frá Íslandi-Palestínu varðandi eftirfarandi:

1) Hvað eru Hamas, vopnabræður þeirra og Fatah að gera núna til að undirbúa stofnun lífvænlegs palestínsks ríkis? Á hverju ætlar framtíðarríki Palestínumanna að lifa? Ætla Palestínumenn sér að lifa á ölmusu eins og þeir hafa gert hingað til?

2) Hvernig hafa Palestínumenn hugsað sér að samskiptum við t.d. Ísrael verði háttað eftir að þeir eru orðnir fullvalda ríki?

3) Hvað vilja Hamas liðar og vopnabræður þeirra gera við þá sem nú byggja Ísraelsríki ef Hamas og Fatah geta ekki hugsað sér að búa í bróðerni við Ísraela? Á að senda þá í burtu eða á að drepa þá?

Hvað með þennan svokallaða palestínska flóttamannavanda? Varðandi flóttamannavandann væri gaman að heyra hvað Ísland-Palestína hafa að segja:

https://www.youtube.com/watch?v=g_3A6_qSBBQ

Sjaldan veldur einn er tveir deila en aðalástæðan fyrir því hve miklu munar í mannfalli milli deiluaðila er sú staðreynd að á Gaza hika menn ekki við að geyma vopn á heimilum sínum innan um fjölskyldumeðlimi sína og að nota fólk sem mannlega skyldi. Ísraelar nota sín vopn til að skýla almennum borgurum en í Gaza nota menn almenna borgara til að skýla vopnum sínum:

https://www.youtube.com/watch?v=CMO-_qEpgg0

https://www.youtube.com/watch?v=4ayyXgRVWHk

Ísraelar hafa sömuleiðis reynt eftir megni að vara almenna borgara við:

https://www.youtube.com/watch?v=7yvQz3SQxGI

Hér sést greinilega að sumir á Gaza fara að fyrirmælum yfirvalda á Gaza um að fara upp á hernaðarskotmörk svo þau séu ekki sprengd:

https://www.youtube.com/watch?v=VTArVIHDelg

Í annan stað hefur Iron Dome kerfið staðið sig afar vel, tekur um 90% þeirra eldflauga sem stefna á byggð í Ísrael. Ég var á sínum tíma að vonast til að tilkoma þess kerfis myndi auka verulega líkurnar á friði þarna en því miður hafði ég algerlega rangt fyrir mér varðandi það :-(

Það er því miður alveg vonlaust að semja frið við Hamas og skoðanabræður þeirra á Gaza. Höfum í huga að 2005 fóru Ísraelsmenn frá Gaza og þá höfðu Palestínumenn tækifæri til að gera þar eitthvað uppbyggilegt. Hvað hafa þeir gert? Þeir hafa notað svæðið til að gera árásir á Ísraela. Þetta er nú meiri friðarviljinn! Af hverju láta fjölmiðlar fólk sem talar máli Palestínumanna hérlendis ekki svara nokkrum þessara einföldu spurninga sem ég bar upp hér að ofan? Eru fjölmiðlar hliðhollir Palestínumönnum? Eru fréttamenn svona illa að sér?

Ég vonast eftir friði þarna en til þess að svo sé hægt þurfa báðir aðilar að vilja frið, í bili skortir algerlega friðarvilja af hálfu Palestínumanna :-( Ef alþjóðasamfélagið hættir að gefa þeim peninga gæti það breyst, menn borða ekki vopn.

Helgi (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 06:09

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

"tær snilld" einsog einhver mundi orða þetta

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 15.7.2014 kl. 08:23

8 Smámynd: Mofi

Hvað vilja eiginlega þessi samtök Ísland-Palestína að Ísrael geri?  Að þegar mörg hundruðum sprengja eru sendar á íbúabyggð í Ísrael að Ísrael þá bara geri ekki neitt?  Hve eiginlega myndi kjósa aftur stjórnvöld sem sitja aðgerðalaus þegar verið er að ráðast á saklausa borgara?  Hvernig er hægt að biðja einhvern um að bara sitja kjurr á meðan það er verið að ráðast á hann? 

Alveg magnað að þessi rusl samtök Ísland-Palestína skuli ekki detta einu sinni til hugar að heimta að Hamas hætti sínum árásum því þá myndi þetta allt saman hætta.  Ísrael er umkring mörg hundruð miljónum manna sem eru engan veginn vinir þeirra og vilja þess vegna fátt annað en bara fá að lifa í friði.  Aftur á móti er engann veginn hægt að segja hið sama um Hamas en aldrei sér maður samtökin Ísland-Palestína mótmæla þeim.

Mofi, 15.7.2014 kl. 09:11

9 identicon

Sæll Mofi
Þú ert nú svo leiðinlegur Mofi og auk þess orðinn þekktur fyrir að klína á mann bæði lygum og þvælu. Eins og t.d. núna síðast, þegar að maður segir aftur og aftur í athugasemdum hjá þér, að maður afneitar ekki helförinni í síðari heimstyrjöldinni, þá lýgur þú öðru upp á mann og drullar svo bara yfir mann og lokar fyrir í athugasemdakerfinu hjá þér. Hvað þykist þú núna vita um hvað fór fram á þessum útifundi á Lækjartogi? Ekki varst þú á þessum útifundi, en hvað þú lætur eins og þú vitir bara allt, ekki satt? Þessum hryðjuverkum, blóðbaði hans Benjamin Netanyahu og hryðjuverkasamtökum Ísraels var harðlega mótmælt aftur og aftur þarna, en þú sem svona mikil stuðningsmaður Zíonista –Ísraels skalt ekki halda því fram að menn hafi ekki gagnrýnt eitthvað Hamas stjórnmálaflokkinn. En ég held að það sé engin hætta á því að þú Mofi farir nokkur tímann að gagnrýna Zíonista- Ísrael eða hvað þá gagnrýna þessar hefndar- og hryðjuverkaðgerðir hans Benjamins Netanyahu núna útaf þeim þremur drengjum er fundust látnir, eða hvað þá þar sem að ekki hefur verið dæmt í málinu og ekki eru til neinar sannanir.
Þannig að nú verður allt þetta litla, litla, nice, nice kristana Zíonista- lið hérna einhvern veginn að fara að réttlæta allar þessar hefndaraðgerðir hans Benjamíns og öll þessi yfir 170 morð, og það svona algjörlega gegn öllum firðarboðskap hans Jesú Krist, eða allt fyrir Zíonsta-Ísrael, ekki satt?    

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 12:35

10 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þorsteinn Scheving

Ertu búinn að lesa innlegg Helga hér að ofan ? Spurning að þú skoðir málið ekki með þeim einhliða hæti sem er þér aðeins of tamur.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 15.7.2014 kl. 12:49

11 Smámynd: Mofi

Þorsteinn, þú hefur marg oft vísað á síður sem halda því fram að helförin er ekkert annað en lygi.  Það ættu allir að vita þetta sem hafa einhver kynni af þér hérna á blogginu.   Að kalla þetta hefndaraðgerðir sýnir þitt rétta andlit sem er nokkuð viðbjóðslegt. Ísrael var ekki árásar aðilinn og hefur þegar samþykkt vopnahlé en Hamas hefur hafnað því eins og vanalega. 

Ég held í þessu þá er Ísrael að falla í gryfju Hamas. Þetta mannfall er vatn á þeirra myllu, akkúrat það sem þeir vilja þannig að þegar kemur að því að reyna aftur að útrýma Ísrael þá verður lið eins og þú þar fremstir í för. 

Mofi, 15.7.2014 kl. 13:27

12 identicon

Glæsilegt hjá þér að skauta algerlega fram hjá því að Ísraelar eru innrásaraðilar

Wilfred (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 15:46

13 identicon

Mofi NEI, NEI, NEI ég hef aldrei afneita þessari helför, en það varst þú sem varst svona leiðinlegur og viðbjóðslegur, að þú laugst þessu öllu upp á mig. Það kemur fram í mörgum athugasemdum þarna, að ég afneita ekki neinum helförum.
Þetta var bara lélegt hjá þér Mofi, rétt eins og annað frá þér, en svona bara innilega lélegur og leiðinlegur getur þú verið við fólk. Reyndu nú einu sinni að troða því inn í hausinn á þér, að það var hann Benjamin Netanyahu er kallaði eftir hefndaraðgerðum, og það sýnir EKKI mitt andlit heldur hans Benjarmin 'rétta andlit'..sem er nokkuð viðbjóðslegt", ekki satt? Nú og hvernig er það Mofi ert þú ekki tilbúinn til þess að skrifa undir það, að andlitið hans Benjamin Netanyahu sé "nokkuð viðbjóðslegt"??? Reyndu nú fyrst eins og segir, að kynna þér málið með þessar 3 drengi er fundust látnir, og svona af hverju hann Benjamín og stjórn hans hófu þessar hefndaraðgerðir gegn Gaza. Hér hefur þú þetta beint frá Zíonistum sjálfum :Netanyahu Vows: 'Hamas Will Pay' for Boys' Murder

Mofi Ísraelsmenn hófu þetta stríð með þessum hefndaraðgerðum og í dag þá vilja Palestínumenn ekki sjá þessa skilmála er voru í friðarsamkomulaginu. Þannig að þessar hefndaraðgerðir Zíonista halda áfram, en nú verður þetta lita, litla, nice, nice krista Zíonista-lið að reyna réttlæta öll þessi 170+ morð, eða svona líka algjörlega gegn öllum firðarboðskap Jesú Krist og öllum helst trúarbrögðum heims hvað eina, eða allt fyrir Zíonsta-Ísrael, ekki satt?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 16:38

14 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

@Wilfred

Hvaða innrás?

Vitleysa í þér. Ég er ekki að biðja þig að afla þér þekkingar um Ísrael Palestínu conflict.

Heldur gúgglaðu einfalldega hvað innrás þýðir og komdu svo aftur.

kv

Sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 15.7.2014 kl. 16:57

15 Smámynd: Mofi

Ef ske kynni að einhver heldur að Þorsteinn sé að fara með rétt mál þá getur viðkomandi skoðað það sem hann hefur verið að benda á: http://mofi.blog.is/blog/mofi/entry/1404560/

Ekki nóg með að helförin væri bull heldur voru gyðingar líka ábyrgir á morðum á tugi miljóna manna samkvæmt Þorsteini. Viðurkenndu það bara Þorsteinn, þú ert nasisti 

Auðvitað vildi Netanyahu að Hamas myndi borga fyrir að drepa þrjá unglinga, annað væri illska.  Það er ekki hið sama og ráðast á Hamas enda enginn ágreiningur til staðar um að það voru Hamas sem byrjuðu að skjót eldflaugum á íbúabyggð í Ísrael að fyrra bragði og neita að hætta. 

Til þess að friður komist á þá þarf aðeins Hamas að hætta að ráðast á saklausa borgara en lið eins og þú velur að vera með Hamas í liði; til hvers að einu sinni tala við fólk eins og þig... Já auðvitað, ég var hættur því og vil ekki byrja aftur en féll í freistni. Vonandi gerist aldrei aftur.

Mofi, 15.7.2014 kl. 17:11

16 identicon

   

Mofi

Hér hefur þú þetta frá mér í athugasemd 13:  "Ég er EKKI að tala um að aðrar helfarir (Holocaust) séu lygi eða hvað þá að afneita þeim, en ég hef ekki hugmynd hvað margir hafa farist í öllum þessum helförum frá árinu 1920 og til ársins 1945, þú?"
Þetta er ekki afneitun á helförinni í síðari heimsstyrjöldinni.

Hér hefur þú þetta frá mér í athugasemd 59 "Ég hef áður sagt þér hérna hvað eftir annað, að ég sé bæði leitandi og spyrjandi, og að ég sé hafni ekki neinum af öllum þessum helförum frá árinu 1915 og til 1938 (SIX MILLION JEWS, HOLOCAUST 1915 1938 https://www.youtube.com/watch?v=paDxxnBDz7M og hvað þá öllum hinum helförunum, þannig að ekki reyna að klína á mig hérna "geðveiki",  "útskúfun", og ekki reyna að klína á mig að ég sé einhver helfaraafneitari (Holocaust denial) þar sem ég er ekki að afneita neinum af öllum þessum helförum (holocaust- um), er það skilið?"

Eins og ég sagði í eini athugasemd þarna,"..Þú ert voðalega duglegur að leggja orð í munn Mofi",  það hefur aldrei komið frá mér persónulega, að ég væri á því að gyðingar væru "líka ábyrgir á morðum á tugi miljóna manna" en það rétt Mofi þú átt það til að rugla öllu saman, og eins þar sem þú lýgur upp á menn, þegar að það kemur fram, að ég afneiti ekki neinum af þessum helförum. En það er rétt þú ert bara svona innilega leiðinlegur.  

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 17:44

17 identicon

Nei,það er sko alveg á hreinu að við verðum aldrei sammála um það að börn séu réttdræp fyrir það eitt að fæðast í Palestínu.

Sigurður (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 20:23

18 identicon

Ef þetta snérist um að afvopna einhverja skæruliða þá ætti einn fullkomnasti hér heims ekki að vera í neinum vandræðum með það á þessu litla svæði án þess að myrða hátt í 200 manns, langflest saklausa borgara.

Þessar árásir Ísraela eru algerlega klárt brot á öllum mannréttindasáttmálum heims, og engu öðru landi myndi líðast að haga sér svona.

Sigurður (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 20:27

19 identicon

Since July 8 100 rockets fired from Gaza fell within Gaza.

Hamas fire from civilian areas...and hit its own people.

Hve margir aetli hafi saerst eda bedid bana i thessun arasum?

S.H. (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 20:56

20 identicon

Það eru yfir 300.000 látnir í Sýrlandi...Sýrlensk yfirvöld þurrkuðu nærri út flóttamannabúðir þar sem Palestínumenn búa, afþví að þeir eru mun líklegri en innfæddir Sýrlendingar til að aðhyllast ofsatrú og því meiri ógn við stjórnvöld. Assad telst ekki múslimi í augum "rétttrúaðra" múslima, heldur tilheyrir islömskum minnihlutahópi sem er skilgreindur sem "villutrúar". Hann aðhyllist fremur veraldlegt stjórnarfar, trúfrelsi og er gegn Islamiseringu. Hvar eru hróp Íslendinga og köll yfir dauða þessara Palestínumanna? Hvar eru áköllin til Sameinuðu Þjóðanna? Hvar eru fjöldamótmælin niðri á Lækjartorgi? Samt eru þegar dánir fleiri menn af Palestínskum uppruna í Sýrlandi á örstuttum tíma en hafa látist í Ísrael/Palestínu frá upphafi átakanna þar í landi.

Ég skal útskíra þetta allt í stuttu máli.

Einu sinni var maður sem hét Halldór. Hann átti erfitt líf og varð oft fyrir aðskoti manna. Og Ingi lét sér þetta í léttu rúmi liggja og þetta snerti hann ekki.

Þetta breyttist allt þegar Kalli og Halldór flugust á. Inga hafði alltaf verið í nöp við Kalla. Trúarbrögðin sem Ingi var alin upp við gáfu það einhvern veginn í skyn að Ingi ætti Kalla eitthvað að þakka. Kalli var afburðarmaður, kominn af fjölskyldu nóbelsverðlaunahafa, en Ingi var bara lítið peð. Honum fannst hann smár og ómerkilegur miðað við Kalla. Daginn sem Halldór og Kalli fóru í slag, fylltist Ingi skyndilega dularfullum heitum tilfinningum, vandlætingu, réttlætiskennd og heift. Hann var ekki maður sjálfsgagnrýni eða mikillar innri skoðunar og efaðist því aldrei um réttmæti tilfinninga sinna. Hann væri jú bara góður maður sem hefði svo mikla samúð með aumingja Halldóri. Hann ímyndaði sér að honum þætti vænt um Halldór. Hann grét fögrum tárum. Hann skrifaði gífuryrði á Facebook. Honum fannst hann allt í einu svo mikill og merkilegur maður.

Þórarinn (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 21:46

21 identicon

Sagan gæti endað svona:

Síðan dó Kalli og var ekki lengur hér á meðal vor.

Og þá yrðu öll litlu gyðingahatara peðin glöð. Glaðari en Hitler.

Þau geta látið sig halda áfram að dreyma, en það mun aldrei gerast.

Gyðingar hafa sama rétt og aðrir á að lifa og verja líf sitt og sinna. Þeir geta ekki samið frið við Hamas sem vill útrýma þeim og neitar vopnahléum, þrátt fyrir andúð alls arabaheimsins. Það verður að ráða niðurlögum HRYÐJUVERKASAMTAKANNA Hamas, í eitt skipti fyrir öll. Þangað til er ENGINN óhulltur í landinu. Á Íslandi búa menn sem styðja Hamas, í orði, verkum og með peningum. Einn þeirra er þjóðþekktur maður og glöggskyggnir sjá þetta á því hvernig hann tjáir sig um málið á Facebook og víðar. Viljum við svoleiðis fólk í okkar landi?

Þórarinn (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 21:51

22 identicon

Staðan 2009 http://www.youtube.com/watch?v=RgW3zFEYiFQ

Hatur er búmerang. Ef þú óskar öðrum ills. Ekki undrast þegar illt hendir þig sjálfan. Gyðingahatur er hættulegra en krabbamein. Ekki smita aðra af því.

Þórarinn (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 21:54

23 identicon

.

. (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 21:55

24 identicon

Þórarinn

Þú segir hérna í athugasemd: "Gyðingar hafa sama rétt og aðrir á að lifa og verja líf sitt og sinna", en hvað rétt hafa Palestínumenn á Vesturbakkanum Austurhluta Jerúsalems og á Gaza í dag, þú? 

Hefur þú Þórarinn eitthvað á móti því að Ísraelsmenn fari eftir samþykktum Sameinuðu Þjóðanna og skili öllum þessum herteknum landsvæðunum á Vesturbakkanum og í Austur- Jerúsalem aftur til Palestínumanna, svo og skili Gólanhæðum aftur til Sýrlendinga?

Hefur þú Þórarinn eitthvað á móti því að Ísraelsmenn fari núna eftir alþjóðalögum og leyfi Palestínskum flóttamönnum að snúa aftur til síns heimalands skv. samþykktum Sameinuðu Þjóðanna ?

Hefur þú Þórarinn eitthvað á móti því að Ísraelsmenn hætti að loka fólk svona inni á Gaza svæðinu og/eða hefur þú eitthvað á móti því að Ísraelsmenn hætti að nota Gaza svæðið sem fangelsi undir berum himni?

Mundu að Arabar eru semitiskum uppruna og því blóðskyldir þeim Abraham, Ísak og Jakob, og því er öll gagnrýni frá Palestínumönnum, Aröbum og öðrum ekki það sama og Gyðingahatur.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 16.7.2014 kl. 01:20

25 identicon

Játning kristinnar Palestínskrar stúlku. Fjölskyldunni hennar hefur verið hótað lífláti af Palestínskum hryðjuverkasamtökum síðan hún "kom út úr skápnum" með sannleikann. http://www.israelvideonetwork.com/this-palestinian-christian-woman-is-being-threatened-and-harassed-for-this-speech

Guðjón (IP-tala skráð) 16.7.2014 kl. 01:52

26 identicon

@24: Varðandi flóttamannavandann er ágætt fyrir þig að hafa eftirfarandi í huga:

https://www.youtube.com/watch?v=g_3A6_qSBBQ

Jafnvel þó Ísraelar kæmu til móts við allar kröfur arabanna á svæðinu yrði það samt ekki nóg fyrir þá. Veistu af hverju?

Svo er nú annað sem þú mættir hafa í huga: Það eru ekki bara Ísraelar sem loka á Gaza heldur líka Egyptar. Fjölmargir í Egyptalandi vilja að Ísraelar gangi nú í skrokk á Hamas og hvetja Ísraela til dáða. Getur þú ekki dregið einhverjar ályktanir af því?

Hefur hinn ágæti Þorsteinn einhverja hugmynd um það að fjöldi Palestínumanna fær læknishjálp í Ísrael?  Veit Þorsteinn að það eru bara sumt sem fær ekki að fara til Gaza. Hvað fær ekki að fara þangað? Rifjaðu upp Mavi Marmara málið þér til glöggvunar.

Veit Þorsteinn að árið 1695 var framkvæmt manntal í Palestínu? Með því að skoða það sést að það ár var ekki eitt arabískt eða palestínskt nafn á svæðinu. Fréttamenn hérlendis og víða annars staðar ætla að halda áfram að vera hlutdrægir í þessu máli og þá verða venjulegir einstaklingar að benda á hið augljósa. Landið var á þessum tíma óræktað og afar fáir bjuggu þar, aðallega í bæjum á borð við Jerúsalem, Jaffa og fleiri. Skiptir þetta ekki máli?

@25: Kristnir Palestínumenn mega þola ofsóknir fyrir trú sína af hálfu "samlanda" sinna. Fjöldi kristinna í múslimskum ríkjum minnkar hratt vegna ofsókna. Einhverra hluta vegna virðist það mál ekki vera ofarlega á málaskrá SÞ enda þeim samtökum alveg sama um kristna. Ég man að ég hló mig máttlausan í um viku þegar ég heyrði að Ingibjörg Sólrún væri að fara til Afganistan með um 70 milljónir í árslaun til að vinna að málefnum kvenna þar. Hverju telur hún sig hafa áorkað þar? Er eitthvað samband á milli kúgunar kvenna og íslam? Sú spurning hefur hingað til verið of flókin fyrir vinstri menn og þeir ekki getað tengt saman stöðu kvenna innan mismunandi trúarbragða.  

Helgi (IP-tala skráð) 16.7.2014 kl. 09:07

27 identicon

Frændi Arafats og hetjan hans, Muftinn af Jerúsalem er sá sem fyrstur stakk upp á "lokalausninni" við nazistana og ráðlagði þeim um hvernig hún ætti að fara fram. Þeir sem eru að gengisfella orðið "þjóðarmorð" og breyta í merkingarlaust fyrirbæri, ættu aðeins að hugleiða þetta. Ef "viska" þessa Mufta varð innblásturinn að PLO, skv Arafat, en Hamas ólíkt PLO reynir ekki að setja upp neitt leikrit að vera opnir fyrir friði, heldur hefur líka "lokalausn" á sinni stefnuskrá og hafa margoft viðurkennt í ræðu og riti, svo til eru afrit og upptökur, að vilja gjöreyða Ísraelsríki og deyða þá Ísraela sem ekki yfirgefi landið sem sitt lokamarkmið, hvaða ályktanir getum við dregið af því? Hvað myndum við gera í sporum Ísraela? Og hvað segir það okkur um Ísrael að sjúkrahús þeirra eru full af fólki frá Palestínu sem borgar þar engan skatt, er ekki ríkisborgarar, styðja mörghver Hamas, en Ísraelar hjúkra samt til fullrar heilsu án endurgjalds?

http://www.youtube.com/watch?v=VjARZPAcATM

G (IP-tala skráð) 16.7.2014 kl. 10:34

28 identicon

Sæll Helgi

Fyrir það fyrsta þá veit ég ekki hvar þú hefur fengið allar þessar lygar, en svo við byrjum á þessu, þá fá Palestínumenn ekki læknishjálp nema undir vissum skilyrðum, og þau eru að alvarleg slys eða önnur tilfelli þurfa að vera mjög alvarlageðlis. 

Í öðru lagi þá er það rangt hjá þér að "Kristnir Palestínumenn mega þola ofsóknir fyrir trú sína af hálfu 'samlanda' sinna", því að bæði Múslímar og Kristnir Palestínumenn ganga í gegnum þessar sömu ofsóknir, hatur og fyrirlitningu aftur og aftur af hálfu Ísraelsmanna, þetta kemur fram hjá Kristnum Palestínumönnum á vefsíðum og í bókum eins og t.d. "Palestinian Christians in the West Bank facts, Figures and Trends" eftir höf. Rania Al Qass Collings, Rifat Odeh Kassis og Mitri Raheb; A Palestinian Christian Cry for Reconciliation" eftir Naim S. Ateek og svo í bókinni "I am a Palestinian Christian" eftir Mitri Raheb.

Kristnir-Zíonistar hafa verið aðal stuðningsmenn fyrir því að hús, íbúðir og eigur kristinna Palestínumanna hafa verið eyðilögð og lögð í rúst þarna. Nú og þessi fáránlegi Zíonismi er að ganga að allri kristni þarna dauðri. Þessi endalausi stuðningur Kristina -Zíonista við þetta Zíonista-lið þarna í Ísrael er heldur svo uppi þessum lögum gegn Kristinni trú þarna er mjög athyglisverður 

  " .. 5738-1977, was passed by the Knesset during Christmas week (December 27, 1977) and went into effect Easter week (April 1, 1978). Violation of this law is a criminal offense, punishable by five years in prison or a fine of 50,000 Israeli pounds (or the equivalent in shekels). The above applies to those attempting to convert someone to their faith if a material benefit is offered. The State of Israel is not as harsh on those converted: Their sentence is three years in prison or a 30,000 Israeli-pound fine. The law reads:

1. Whosoever gives or promises to a person money, money’s worth, or some other material benefit in order to induce him to change his religion or in order that he may induce another person to change his religion, is liable to imprisonment for five years or a fine of 50,000 pounds.
2. Whosever receives or agrees to receive money, money’s worth, or some other material benefit in return for a promise to change his religion or to cause another person to change his religion is liable to imprisonment for a term of three years or a fine of 30,000 pounds. "    

"A Christian student was scheduled for deportation from Israel June 30 because the government accused her of “missionary work.” Roused by police at 6:30 a.m., German grad student Barbara Ludwig was taken to prison and told she must leave Israel by May 30. " Haaretz

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 16.7.2014 kl. 13:01

29 Smámynd: Mofi

Sem sagt, samkvæmt Þorsteini þá er stelpan í myndbandinu í þessu myndbandi að ljúga: https://www.youtube.com/watch?v=YzCAqXrBGtU

Hérna er svo sem vandamálið að maður þarf að velja hverjum maður vill trúa, trúir maður Mitri Raheb sem skrifaði bókina "I am a Palestinian Christian" eða vitnisburði þessarar stúlku og svo sem ótal annara.  Ég trúi þessari stúlku enda... höfum við endalaus dæmi þar sem meðlimir Hamas hvetja t.d. almenna borgara að vera sem mennskir skildir í staðinn fyrir að forða sér í skjól.  Þessir menn eru illmenni ásamt öllum þeim sem styðja þá og fordæma þá ekki.

Mofi, 16.7.2014 kl. 13:36

30 identicon

Mofi

Þú átt það til að ljúga upp og fólk, og svo eins og segir: "Þú ert voðalega duglegur að leggja orð í munn Mofi". nú og gefa þér upp skoðanir annarra án þess að tilgreina eitt eða neitt sérstaklega, eða hvað núna í sambandi við vitnisburður hennar Christy. Ef þú skoðar vefsíður hjá Kristnum Palestínumönnum og annað efni frá þeim sjálfum, þá sérðu að það eru Ísraelsmenn sem eru með þessar ofsóknir, hatur, fyrirlitningu og stunda allt þetta her- og landnám gegn Kristnum Palestínumönnum og múslimum. Vertu svo ekki alltaf í því hérna að afneita öll þó að þú styðjir það að hús, íbúðir og eigur Kristinna Palestínumanna og múslima séu lögð í rúst fyrir þetta Zíonista -Ísrael.

"Palestinian Christians have not turned violent, Awad emphasized. The Christians in the West bank and the Gaza strip are not part of the fighting. We are not fighting on the side of Hamas. We are not fighting on the side of Israel. Most Christians are very, very neutral. We know in our hearts, we side with our Palestinian brothers and sisters, even the Muslims, because we know they are the ones under occupation, they are the ones who are under oppression, and we see that because it is very obvious for people who live here who is actually violating the other human rights," said Awad. http://www.christianpost.com/news/palestinian-christian-western-christians-dont-understand-gaza-israeli-conflict-123272/

"...we Palestinian Christians declare that the military occupation of our land is a sin against God and humanity, and that any theology that legitimizes the occupation is far from Christian teachings because true Christian theology is a theology of love and solidarity with the oppressed, a call to justice and equality among peoples."(http://www.kairospalestine.ps/).

Ég mundi ráðleggja þér að skoða allt hérna á þessari síðu  : http://www.kairospalestine.ps/sites/default/Documents/Easter%20Alert%202014.pdf
 
Nú og þetta skjal frá Kristnum Palestínumönnum varðandi Zíonisma: Religious Leaders' Statement on Christian Zionism

Því eins og þú veist Mofi  þá".. eru illmenni"sem styðja þetta her - og landnám Ísraelsmann,  svo svona ofsóknir, hatur og fyrirlitningu gagnvart Kristnum Palestínumönnum og múslimum. 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 16.7.2014 kl. 15:02

31 Smámynd: Mofi

Þorsteinn, skilur þú að ágreiningurinn er um hver sé að segja satt?

Mofi, 16.7.2014 kl. 15:26

32 identicon

Mofi
Ég sé bara finn ekkert eða einhverja setningu hjá henni Christy þarna, er á að vera einhver sönnun á einhverju, en hún gagnrýnir mikið sitt fólk og er óánægð með margt í sínu heimalandi Palestínu. Við höfum hins vegar yfirlýsingu frá öllum helstu Kristnu Palestínuleiðtogum þarna eða: Religious Leaders' Statement on Christian Zionism

Ég ráðlegg þér að lesa þetta skjal, því það segir allt sem segja þarf og þú getur sýnt þínum Aðventistasöfnuði þetta skjal, og er það bara vel meint hérna.  

Hér hefur þú svo fleiri myndbönd: 

Kairos Palestine with English subtitles

I am a Palestinian Christian أنا فلسطيني مسيحي

Palestine's Christians - Christian Palestinians

Palestinian Christians Respond to Israeli Ambassador Michael Oren

TRAILER: THE STONES CRY OUT - THE STORY OF THE PALESTINIAN CHRISTIANS

Palestinian Christians... Faith, Love & Hope †

A Palestinian Christian Story From Jerusalem

Israeli repression of Palestinian Christians - Remember Palestine -04-07-2012  

 Christians in Palestine

Israel Persecutes Christians - 60 Minutes

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 16.7.2014 kl. 20:13

33 identicon

Kristnir menn í Palestínu verða að borga sérstakan verndarskatt til múslima og eru annars flokks þegnar í eigin landi. Ef þeir taka ekki undir áróður harðlínu Islamista er þeim hótað lífláti eins og þessari stúlku. Minnihluti venjulegs fólks hugsar í hljóði eins og þessir leiðtogar neyðast til að tala til að halda frið við morðhundana Hamas sem semja ræðurnar fyrir þá.

Palli (IP-tala skráð) 17.7.2014 kl. 00:24

34 Smámynd: Mofi

Hún sagði mjög skýrt að ástæðan fyrir því að bæjir sem meirihlutinn var eitt sinn kristinn þá hafa kristnir flúið vegna öfga múslíma. Fyrst þú vitnar í 60 mínútur, trúir þú því sem þeir segja frá hérna: https://www.youtube.com/watch?v=t_B1H-1opys

Mofi, 17.7.2014 kl. 07:22

35 identicon

Mofi

Mikið leggur þú á þig Mofi til þess að reyna verja þetta Zíonsta- Ísrael. Það má vera að einhverjir Palestínumenn hafi flúið vegna öfga Múslima, en hins vegar þá hafa mikið af Kristnum Palestínumönnum og Múslimum verið reknir af landi brot í hatursfullum ofsóknum. En sjáðu til það eru eingöngu Zíonistar sem rústa og eyðileggja hús og íbúðir Kristinna Palestínumanna og Múslima þarna, svo og eins og áður segir þá hafa Zíonistar eyðilagt kirkjugarða og barnaleikskóla, því að allt snýst um hvað sé best fyrir þetta Zíonista- Rasista- Ísrael, eins og þú sérð hérna:   



"Demolitions of Israeli and Palestinian Homes
1967 - Present

0 Israeli homes have been demolished by Palestinians and at least 28,000 Palestinian homes have been demolished by Israel since 1967. (View Sources & More Information)"

 

"Current Illegal Settlements on the Other’s Land

Israel currently has 262 Jewish-only settlements and ‘outposts’ built on confiscated Palestinian land. Palestiniansdo not have any settlements on Israeli land. (View Sources & More Information)"

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.7.2014 kl. 10:51

36 Smámynd: Mofi

Áttu erfitt með að svara einfaldri spurningu Þorsteinn?

Mofi, 17.7.2014 kl. 11:13

37 identicon

Nei Nei Mofi en átti þetta að vera einföld spurning.

Það kemur fram þarna á 60 minutes myndbandinu, að staðurinn þar sem að Jesús Kristur fæddist Betlehem sé orðinn að fangelsi undir berum himni, og þökk sé Zíonistum, eða viltu kannski kenna Múslimum um að fæðingastaður Jesú Krist sé orðinn að fangelsi undir berum himni, Mofi? Hann spyr hana þarna reyndar : Mannastu hvenær þetta breytist yfir í fangelsi? Já sagði hún það var árið 2003 og ég var þá 14 ára gömul, og einn dag á leiðinni heim úr skólanum þá sá ég að það var búið að byggja veggi allt í kringum húsið. Nú allur þessi veggurinn liggur allt í kringum búðina og húsið þeirra, og hefur greinilega EKKI hjálpað búðinni þeirra eða þar sem allt er svona umkringt eða eins og hann segir á ensku: "now it is a dead end" fyrir þau. Nú af skiljanlegum ástæðum þá hafa sumir fjölskyldumeðlimir þeirra yfirgefið Betlehem (sjá Israel Persecutes Christians - 60 Minutes) og þökk sé Zíonstum er hafa eyðilagt öll þessi viðskipti með byggja þennan viðbjóðslega vegg, Mofi?

Hitt myndbandið eða linkurinn  https://www.youtube.com/watch?v=t_B1H-1opys hefur reyndar ekkert að gera með 60 Minutes eða hvað þá Kristanna Palestínumenn,  en þetta myndbandið heitir:  "Pallywood - truth in the middle east hollyland, what goes behind the scenes and for the cameras".
En þetta myndband er ekkert annað en áróður frá Zíonistum, þar sem þeir kenna öðrum um tæknibrellu, þegar þeir sjálfir nota 3D Max og Maya þrívídda teiknimyndir og hvað eina. Nú Zíonistar sýna þarna lygar er þeir hafa greinilega búið til sjálfir, eða þar sem  þeir segja að ein dyragætt þarna sé sú sama og önnur dyragætt sem er munn stærri, og þetta er bara augljós lygi hjá Zíonistum, auk þess sem að útlitið og sjónarhornið er ekki það sama, en það þarf greinlega lúga. Annað dæmi um lygar er af þessum særða Palestínumanni er sést reyndar mjög óskýrt og ógreinilega, en þessir Zíonistar ljúga bara þarna og segja, að þar sem að ekkert blóð sést er maðurinn ekki særður, og það í þessari fjarlægð og í öllum þessum skugga, en þetta myndband er allt fullt af lygum, því þarf að ljúga og ljúga uppá Palestínumenn, ekki satt?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.7.2014 kl. 13:39

38 Smámynd: Mofi

Þorsteinn
Það kemur fram þarna á 60 minutes myndbandinu, að staðurinn þar sem að
Jesús Kristur fæddist Betlehem sé orðinn að fangelsi undir berum himni, og þökk sé Zíonistum, eða viltu kannski kenna Múslimum um að fæðingastaður Jesú Krist sé orðinn að fangelsi undir berum himni, Mofi

Og samkvæmt vitnisburði Christy þá var hún þakklát að veggurinn skyldi vera byggður því að það kom í veg fyrir að hennar eigið fólk væri að spregja sjálft sig í loft upp.

Þorsteinn
Hitt myndbandið eða linkurinn  https://www.youtube.com/watch?v=t_B1H-1opys hefur reyndar ekkert að gera með 60 Minutes eða hvað þá Kristanna Palestínumenn,  en þetta myndbandið heitir:  "Pallywood - truth in the middle east hollyland, what goes behind the scenes and for the cameras".
En þetta myndband er ekkert annað en áróður frá Zíonistum, þar sem þeir kenna öðrum um tæknibrellu, þegar þeir sjálfir nota 3D Max og Maya þrívídda teiknimyndir og hvað eina.

Ertu að segja að þetta video er ekkert tengt 60 mínútum?  https://www.youtube.com/watch?v=t_B1H-1opys

Mofi, 17.7.2014 kl. 15:19

39 identicon

Mofi
Ég bara get ekki séð að Christy og fjölskylda hennar séu eitthvað ánægð með þennan vegg,  þar sem að veggurinn sést þarna í öllum gluggum, og er fyrir öllu útsýninu heima hjá þeim. Nú og eins og kom fram í framhaldinu á 60. min, þá hefur veggurinn komið í veg fyrir viðskipti, þannig að núna selst ekki eins mikið þarna í búðinni hjá þeim, og hann segir á ensku: "now it is a dead end".
Bæði Kristnir Palestínumenn og Múslímar þarna mótmæla þessum vegg þarna daglega, svo og öllum þessum checkpoints út um alla Palestínu.
Ég held ég megi fullyrða að meirihluti Palestínumann er á móti þessum Vegg svo og öllum þessum checkpoints út um alla Palestínu.
Miðað við 60 mín. myndbandið þá á ég erfitt með átta mig á þessu, en ég held að hún hafi EKKI verið að meina að veggurinn hafi dregið sjálfsmorðsárásum, heldur um hugarfasbreytingu hafi verið að ræða frá þessum tíma.
Veggurinn kemur ekki í veg fyrir að hennar eigið fólk geti sprengt sjálft sig í loft upp þarna, því að það er örugglega hægt að sprengja sig í loft upp þarna víða við vegginn.  
Þetta myndband "Pallywood - truth in the middle east hollyland, what goes behind the scenes and for the cameras". hefur nákvæmlega ekkert að gera með myndbandið" Israel Persecutes Christians - 60 Minutes" því þetta myndband  Israel Persecutes Christians fjallar um ofsóknir Ísraelsmann á hendur Kristnum Palestínumönnu.
Nú hitt myndband eða hér:
"Pallywood - truth in the middle east hollyland, what goes behind the scenes and for the cameras". hefur að geyma fáeina ramma eða brot af efni úr öðrum fréttaþáttum 60 mín., ef það er það sem þú ert að fiska eftir hérna, en ég get ekki sagt að þetta sé sama efnið eða hvað þá eitthvað úr sama 60.  mín fréttaþáttunum "Israel Persecutes Christians"þú?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.7.2014 kl. 16:53

40 Smámynd: Mofi

Hún segir mjög skýrt að hún sé hlynnt veggnum vegna þess að hann kemur í veg fyrir að hennar eigið fólk sprengi sjálft sig og aðra í loft upp.

Varðandi myndbandið, ég vildi aðeins fá að vita hvort þú trúir að Pallywood sé raunverulegt fyrirbrygði.

Mofi, 17.7.2014 kl. 17:07

41 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Þeir sem telja Ísrael vera í fullum rétti við að verja sig ættu að skoða söguna aðeins betur.

Ísrael sem ríki varð ekki til fyr en eftir seinni heimstyrjöld, hafði ekki verið til í árhundruð þar á undan.

Stutt greyning á málinu og samlíking sem er réttlát er á þessa leið: Þegar fólk í seinni heimstyrjöldinni var að gera eins og Palestínumenn gera nú þá var það kallað "ANDSPYRNA". En í dag er þetta kallað "HERMDARVERK" eða "HRYÐJUVERK"...

Ísraelar eru í leit að "Lebensraum" og sjá þar möguleika með hertöku gríðarlegra landssvæða frá Palestínumönnum sem byggðu mestan part af svæðinu sem nú er í höndum Ísraela. Ísraelum var kastað þangað á sínum tíma af því það vildi enginn sjá gyðinga í Evrópu kringum seinni heimstyrjöldina.

Ólafur Björn Ólafsson, 17.7.2014 kl. 20:18

42 identicon

Zíonistar

https://www.youtube.com/watch?v=x8OmxI2AYV8#t=2089

Wilfred (IP-tala skráð) 17.7.2014 kl. 20:41

43 Smámynd: Mofi

Ólafur, ég held að þú ættir að skoða söguna alveg miklu, miklu betur.
Ef þú vilt skoða þessa sögu betur þá getur þú lesið t.d. þessa stuttu grein: http://www.hcs.harvard.edu/~hireview/content.php?type=article&issue=spring01/&name=myth

Annars segir þessi mynd allt sem segja þarf um það gríðarlega land sem múslímarnir hafa misst vegna Ísrael.


Mofi, 17.7.2014 kl. 21:26

44 identicon

Mofi
Það má vera að þetta sé  skoðun hennar Christy , en það eru ekki allir Kristnir Palestínumenn og Múslímar sammála þessari skoðun, nú með Pallywood myndbandið þá held ég að þetta sé ekki raunverulegt fyrirbrygði.  

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.7.2014 kl. 23:09

45 identicon

Ísraelsmenn eru mjög stoltir að því að þeirra Zíonista -Rasista-Terrorist ríki Ísrael fæddist með hryðjuverkum og djöfulgangi, því eins og segir löngu fyrir stofnun Zíonista Ísraels árið 1948, höfðu hryðjuverkahópar Zíonista Stern, Irgun og Hangan verið í því að drepa og sprengja Palestínumenn (A Summary of Zionist Terrorism in the Near East — 1944-1948).  Nú þetta Zíonista -Rasista-Terrorist ríki Ísrael er sennilega eina ríkið sem fæddist með hryðjuverkum og djöfulgangi.

Hjá kristnum Zíonistum er þetta hins vegar allt túlkað svo fallega, rétt eins og þetta fólk Ashkenazi Khazar hafði guðdómlegt leyfi til að myrða, brenna og sprengja fólk upp þarna í Palestínu, og það algjörlega gegn öllum lögum og boðskap Jesú Krist og hvað eina. Þetta hefur því allt verið hvítþvegið og sett í nýjan búning hjá Zíonistum með öðrum eins áróðri og allt til réttlæta söguna, svo og núna með endemis bulli eins og t.d. staðgengilsguðfræði hans Ólafs Jóhannssonar Zíonista og hvað eina hjá Kristnum Zíonistum.

Mofi bendir á það hérna að við ættum að skoða söguna, en má nokkuð skoða söguna og Holocaust -ið, er ekki bara klínt á mann hérna Gyðingahatur og aftur Gyðingahatur, eða þegar að menn fara gagnrýna eitthvað í sambandi við söguna? Nú þar sem að ég hef ekki ennþá hafnað öllum þessum helförum frá árinu 1915 og til 1938 (eða SIX MILLION JEWS, HOLOCAUST 1915 1938) og hvað þá helförinni frá 1939 til 1945 með einmitt 6. milljónum, hefði það ekki verið nær hjá Zíonistum að heimta landsvæði í Þýskalandi, og svo þar sem helfarirnar áttu sér stað 1915-1938, í stað þess að drepa og sprengja upp saklausa Palestínumenn með hryðjuverkum og djöfulskap og taka land frá þeim, Mofi?      

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 18.7.2014 kl. 00:44

46 identicon

Stórmerkilegt innlegg frá arabískum lækni sem er fyrrverandi stuðningsmaður hryðjuverkasamtaka. Mæli með þessu við alla sem langar í alvörunni til að skilja, en ekki bara gaspra út í loftið og vellta sér upp úr tilfinningasemi. Hann kemst alveg að kjarna málsins.

http://www.israelvideonetwork.com/you-need-to-see-this-before-they-delete-it

M (IP-tala skráð) 18.7.2014 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband