Mánudagur, 31. mars 2014
Rífleg hækkun
Kennari með 400.000kr í laun hækkar um 40.000kr.
Sturlu hækkun.
Afborgun á nýjum bíl á mánuði.
Ég kalla þennan samning Lexus-samninginn. Því hver kennari getur skellt sér á nýjan Lexus fyrir hækkunina, allt í boði skattgreiðenda.
kv
Sleggjan
Tilboð upp á meira en 10% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Getur maður notað brúttó launin (laun fyrir skatt) í afborganir af lánum?
Eða ertu að halda því fram að þú getir keypt þér nýjan lexus fyrir rúmar 20 þúsund á mánuði?
Sigurður (IP-tala skráð) 31.3.2014 kl. 20:36
Bjarna er einfaldlega illa við kennara, best að taka honum með þeim formerkjum.
Þórður (IP-tala skráð) 31.3.2014 kl. 22:30
20-30 e. skatt.
slegg
Sleggjan og Hvellurinn, 1.4.2014 kl. 00:17
Þetta er ótrúleg móðgun við fátæka verkamanninnn sem fékk 2,8% í launahækkun fyrr á árinum.
Það er greinilegt að millistéttin (kennarar) hafa fundið "breiðu bökin"
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 1.4.2014 kl. 15:04
40.000 launahækkun gera rúmar 20.000 útborgaðar.
Þær duga ekki fyrir afborgunum af ódýrasta smábíl, hvað þá Lexus.
Ef einhverjir eru að móðga verkamenn í dag, eru það stjórnarmenn Arion sem hækka sín laun núna um 7%, ofan á bonlaust launaskrið þeirra síðustu ár sem hefur verið langt umfram aðrar launahækkanir í landinu.
Sami banki var einmitt að hvetja aðila vinnumarkaðarins til hóflegra launahækkanna, en taka sjálfir þrefalda þá hækkun handa sjálfum sér....
Sigurður (IP-tala skráð) 3.4.2014 kl. 00:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.