Launakröfur sem eru djók eða komið útí algjört rugl!!

"Í Vestmannaeyjum er nú mótmælt seinagangi í kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins og Sjómannafélags Íslands vegna undirmanna á Herjólfi.  Samtök atvinnulífsins fara með samningsumboð Eimskips, eins og annarra aðildarfyrirtækja sinna, og hafa með öllu hafnað þeim óbilgjörnu kröfum sem Sjómannafélagið hefur lagt fram og sagt ófrávíkjanlegar. Það skilar því litlu að beina spjótum að Eimskip, rekstraraðila skipsins. Eimskip er, eins og einstaklingar og fyrirtæki í Vestmannaeyjum , ekki í aðstöðu til að leysa vinnudeiluna.

 

Sjómannafélagið setti þegar í upphafi viðræðna fram kröfu um rúmlega 40% hækkun launa og hefur ekkert verið slegið af þeirri kröfu. Auk þess skyldu laun hækka árið 2014 með sama hætti og laun farmanna.

 

Meðallaun bátsmanna á Herjólfi eru nú um 400 þúsund krónur á mánuði m.v. 46 klukkustunda  vinnuviku sem byggir á vaktavinnu.  Kröfur Sjómannafélagsins jafngilda því að föst laun bátsmanna hækki að lágmarki um 160 þúsund krónur á mánuði. Samtök atvinnulífsins geta ekki og munu ekki fallast á slíkar kröfur."

http://www.sa.is/frettir/almennar/nr/6121/

 Þetta er alveg með ólíkindum. Það þarf að birta nöfnin á þessu fólki sem stendur fyrir þessu svo þjóðin getur séð í smettið á þessu fólki þar sem græðgin glottir og þeir virðast alveg sama þó að þeir munu einangra heilt bæjarfélag frá þjóðinni.

 hvells


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband