Ofbeldi ríkisstarfsmanna

"Þegar litið er á allt tímabilið 1990-2013 kemur í ljós að laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 341% en laun á almennum vinnumarkaði um 270%."

http://www.sa.is/frettir/almennar/nr/6110/

Kennarar og aðrir opinberir starfsmenn vilja meiri peninga. Þeir eru svo gráðugir.

Almenni markaðuinn hefur ekki fengið svona mikinn pening. En samt þarf almenni markaðurinn og fátæku verkamennirnir að borga þessar launahækkanir með auknum sköttum og skertri þjónustu.

Og það siðblindasta við kennarana eru að þeir beita nemendur ósparrt fyrir sér í stríðinu við fólkið í landinu og vilja loka skólanum þegar próftíð er að byrja.

Kennarar eru drullusama um nemendur og fólkið í landinu. Þeir hugsa bara um sig og sína græðgi. Það er alveg ljóst fyrir menn sem vilja skoða staðreyndir og hafa kynnt sér málið.

hvells


mbl.is Gagnrýna kröfur framhaldsskólakennara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og afhverju skyldu þessir háu herrar í SA nota prósentur... jú því að það hljómar svo vel að segja að laun sem fóru úr 200.000 í 250.000 hafi hækkað um 25% á meðan að laun sem fóru úr 400.000 í 450.000 hækkuðu BARA um 12.5%.

Allar tölur eru tilbúningur og ég er ekki framhaldsskólakennari og á engra beinna hagsmuna að gæta í málinu. Hins vegar leiðist mér "staðreyndir" sem hagsmunasamtök setja svona fram, sama hvaða nafni þau nefnast.

Karl J. (IP-tala skráð) 15.3.2014 kl. 00:12

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þetta er rangt hjá þér.

Það eru einmitt kennarar sem voru að djöflast yfir því að lágmarkslaunin hækkkuðu svona mikið miðað við þau Í PRÓSENTU.

 ""í framangreindri skýrslu „Í aðdraganda kjarasamninga". BHM er ósátt við þá launastefnu sem ríkt hefur á tímabilinu og hefur haft það að markmiði að lægstu laun hækkuðu umfram hærri laun. Í skýrslunni kemur fram að laun félagsmanna ASÍ hjá ríkinu, en það er lægst launaði hópurinn sem jafnframt hefur hækkað mest, hafi hækkað um 58,5% frá 2006-2013 en laun félagsmanna BHM um 50,0%. Munurinn sé 8,6% og hann þurfi að „leiðrétta"""

HVELLS

Sleggjan og Hvellurinn, 15.3.2014 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband