Hræðilegt fjáraustur

Hræðilegt embætti. Dýrt.

Aldrei var ég hlynntur þessu svartholi á peningum.

 

Forstöðumaðurinn er líka hræðilegur. Kona sem var ráðin bara út af hún var kona. Femínistaþrýstingurinn sá um það, allir skíthræddir við þessar raddir af einhverjum ástæðum. Ferilskráin hennar var hræðileg. Hafði að baki fullt af framúrkeyrslum!

Ef karlinn hefði verið ráðinn, þá hefði hann haft meiri tök á rekstrinum því hann var ekki með áralanga reynslu á illri meðferð á peningum. Einfalt.

kv

Sleggjan


mbl.is Hvert mál kostar um 300.000
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eru friðelskandi vinstri mennirnir?

Hvað eru friðelskandi vinstri mennirnir?

Já þið vitið hverja ég er að tala um.

 

Fólkið sem hélt sig helst frammi þegar Ísrael og Hamas voru í stríði!

 

Ég lýsi hér með eftir þeim!

 

kv

Sleggjan


mbl.is Þúsundir Jasída enn á fjallinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skapar atvinnuleysi

Það er ljóst að formaður VR vill skapa atvinnuleysi á meðal ungmenna.

Með því að hækka launakostnað ungmenna viljandi mun það valda því að veitingahúseigandinn og bakarinn á horninu mun ekki eiga efni á að ráða eins marga og hann mundi vilja.

Færri störf verða því til skiptana.

Meiri atvinnuleysi fyrir ungt fólk.

hvells


mbl.is Ábyrgðin liggur hjá vinnuveitanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

plís

plís Jakob Frímann ekki eyða skattfé í þetta rugl.

Það er aldrei nóg af "almenningssalernum"...sama hvað.

Alveg eins gott að sleppa þessu.

Það er ekki hlutverk borgarinnar að létta af klósettferðum fyrir kaffihús.

Ef þú ert að reka kaffihús í miðborginni þá ætti það ekki að koma á óvart að salernin verða í notkun.

hvells


mbl.is Skortur á salernum verulegt vandamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

100%

Einsog staðan er í dag þá er loforð um 100% tryggingu innistæða ennþá í gildi.

Þessvegna er fráleitt að segja að 16mkr er of mikið þegar ríkið er að tryggja þetta uppí topp einsog er.

Svo standa íslensku bankarnir mjög sterkt og eru með besta CAR hlutfall í vestur evrópu.

hvells


mbl.is „Alltof áhættusamt“ fyrir skattborgara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skeptískur

Gæti alveg vel verið að Baldur er að halda réttu fram.

"starfmaður x var að reyna að vingast við starfsmanninn minn"....  frekar langsótt kenning.

En já... ég er skeptískur á að Baldur er kaþólskari en páfinn í sínum rekstri.

hvells


mbl.is Múrbúðinni boðið í verðsamráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. ágúst 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband