Möppudýrin

Þetta er mjög sorglegar fréttir. Þetta einkaframtak hefur hjálpað fleiri einstaklingum heldur en öll opinberu möppudýrin til samans

"hverfisskrifstofur, skólaskrifstofur ,skóla- og frístundasvið borgarinnar í Reykjavík og skólaskrifstofur síns sveitarfélags."

Þetta er enn ein sönnun þess að einkaframtakið er betra en "framtak" hins opinbera. Þrátt fyrir að hafa mun minni pening úr að spila.

hvells

 


mbl.is Samtökin Regnbogabörn lögð niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn gegn frelsi

Bjarni segir

"„Við viljum opna fyrir sem allra mest frelsi og erum háð því eins og aðrar þjóðir að menn hafi trú á því sem er að gerast. Það er liður í því sem við erum að vinna að núna.“

Þetta er rétt stefna Sjálfstæðisflokksins. En Framsóknarflokkurinn vill ekkert frelsi. Sigmundur Davíð hefur haldið því fram að höftin eru bara ágæt. Þeir vilja ekkert frelsi í landbúnaðinum. Þeir vilja ekki frelsi í viðskipum og vilja reisa enn hærri tollmúra. Þeir vilja ekki frjálst val á lánamarkaðinum og vilja ekki fá hér erlenda fjárfestingu... enda er það bara "lán" einsog Sigmundur Davíð hélt fram.

En hvað veit ég....  er ég ekki bara einhver "skammstöfun"

Það verður ekkert gert hérna fyrr en Framsókn missir sinn fjölda þingmanna og XD þarf að stækka og vera ráðandi í samstarfi við Björt framtíð eða XS og við stefnum að ESB og tökum upp Evru.

hvells


mbl.is Höftin fara ekki í einu vetfangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk sækir í frjálshyggjuna

Í Sviss er fjórða mesta frjálshyggja í heimi.

Og sú staðreynd er að fólk streymir þar stríðum straumum er það enn ein staðfestingin á því að fjálshyggja og frelsi einstaklingsins er besta stjórnkerfið í heimi.

Því miður er Ísland langt á eftir Sviss í þeim efnum... ekki einusinni árið 2007 vorum við með tærnar þar sem Sviss er með hælana..... og ekki skánaði þetta eftir "velferðarstjórnina"

hvells


mbl.is Naumur meirihluti í Sviss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvor á sökina?

Greiðsluþjónusturnar eru að veita ákveðna þjónustu og það er öllum frjálst að nýta sér hana.

Frjáls markaður og viðskiptavinur hefur samband og vill fá ákveðna vöru/þjónustu og verð sem viðskiptavinurinn greiðir fyrir er minna en hann metur virði vörunnar.

En auðvitað er þetta tilfinningaklám gripið á loft og millifyrirsögn er "ekki hægt að banna gjöldin"

Afhverju að banna gjöldin? Afhverju ekki bara að biðja íþróttafélög að nýta ekki þessa þjónustu?

Þá þurfa íþróttafélögin væntanlega sjá um þessa innheimtu og greiðsluseðla sjálf og bæta við sig starfsmönnum og þar með hækka iðkunargjöldin.

Ef það er leiðin þá er það bara... gott og vel.

En óþarfi að pönkast í fyrirtæki fyrir að þjónusta viðskiptavinum sínum gegn gjaldi.

hvells


mbl.is Borgað fyrir að fá að borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Topp maður

Ég er því miður ekki útsvarsgreiðandi í Kóp en ég var heima hjá vini mínum um daginn og sá þar Kópavogspóstinn sem er hverfisblaðið. Þar var forsíðumynd af Ármanni og fyrirsögnin var "ég ætla að gera Kópavog að best rekna bæjarfélag á Íslandi"...  um leið og ég las þetta þá hugsaði ég að þetta er einn merkilegasti og langbesti sveitastjórnarmaðurinn í dag.

Hann lofaði ekki stóru íþróttarhúsi

Lofaði ekki stóra sundlaug með enn stærri rennibraut

Hann lofaði að reka sveitafélagið vel. Hann sótti um að láta Kópavogsbæ fá lánshæfiseinkun sjá hér

Það er versti óvinur útgjaldsinnans. Samfylkingin fékk ásamt Gunnari í gegn 4 milljarða útgjöldum á fimm mínútum.....    lánshæfiseinkun Kópavogsbæjar lækkaði. Þessi samningur við reitun.is gerir það að verkum að Samfylkingin getur ekki rústað bæjarbókhaldinu ef þeir komast í stjórn.   Nema náttla ef þeir segja upp samningnum hjá reitun.is

Ármann stóð allt þetta lýðskrum af sér og fækk glæsiútkomu.

Til hamingju.

Kannski enda ég á þvi að flytja í Kópavoginn. Þar veit ég að farið sé vel með peningana mína.

hvells


mbl.is Þakklátur fyrir traustið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. febrúar 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband