Engin haldbær rök

"Þar seg­ir, að Lands­bank­inn eigi að hafa burði til að starf­rækja banka­úti­bú í rúm­lega 1.600 manna sam­fé­lagi og bjóða bæði íbú­um og fyr­ir­tækj­um þjón­ustu í nærsam­fé­lag­inu. Þannig stæði banki í rík­is­eigu und­ir sam­fé­lags­leg­um skyld­um og ábyrgð."

Það er einsog framhaldsskólakrakki í samfélagsfræði 103 hafi skrifað þetta.

Er það "samfélagsleg skylda" bankans að vera með útibú í Sandgerði?

Bankinn er í eigu ríkisins og er það réttmætt að stunda óhagkvæman rekstur sem leiðir til verri lífskjara landsmanna í framtíðinni?.....    skiljanlegt að bæjarstjórnin vill halda þessum stöðugildum enda fá þeir útsvar frá skattgreiðendum...  en þeir eru þá að hugsa um sérhagsmuni en ekki heildarhagsmuni almennings.

hvells


mbl.is Skora á Landsbankann að hætta við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Er með ofnæmi fyrir orðinu "nærsamfélag".

kv

Slegg

Sleggjan og Hvellurinn, 12.9.2014 kl. 17:41

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

http://bankinn.landsbankinn.is/samfelagsleg-abyrgd/

"Landsbankinn hefur markað sér stefnu í samfélagslegri ábyrgð með áherslu á fimm lykilstefnur sem allar endurspegla áherslur alþjóðasáttmála og staðla varðandi samfélagslega ábyrgð."

"Landsbankinn á í samstarfi á sviði samfélagslegrar ábyrgðar bæði hér á landi og erlendis. Bankinn er einn stofnaðila þekkingarseturs um samfélagslega ábyrgð, aðili að UN Global Compact, einn af stofnendum norrænnar deildar innan UNEP FI og fylgir leiðbeiningarstaðlinum ISO 26000."

Guðmundur Ásgeirsson, 12.9.2014 kl. 19:59

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er ekkert í þessum alþjóðarsáttmála að banki á að halda úti óarðbæru útibúi.

Það er í raun óábyrgt. Samfélagsleg óabyrgð.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 12.9.2014 kl. 21:32

4 identicon

hvar kemur fram að útibúið sé óarðbært?

en hér er augljós þefur af þeirri hugmyndarfræði að aðalhlutverk fyrirtækja væri ávöxtun fé hluthafa sinna en gaman væri að sjá hvar það stæði í lögum og hverjar lagalegar afleiðingar væru fyrri brot á þeim lögum

þessi skammtíma sjónarmið sem stjórnast af hlutabréfa virði eru algjörlega gjaldþrota.

tryggvi (IP-tala skráð) 13.9.2014 kl. 14:44

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

@Tryggvi

Ef útibúið væri að mala gull, þá væri það ekki að loka!

Koma svo, beita heilbrigðri skynsemi þó þú sért á netinu.

kv

slegg

Sleggjan og Hvellurinn, 13.9.2014 kl. 19:13

6 identicon

komdu með rökstuðning. ekki getgátur til að reyna passa við ykkar hugmyndarfræði

svo er himinn og haf á milli óarðbært og að mala gull en þetta er svo sem týpiskt svar frá ykkur

tryggvi (IP-tala skráð) 13.9.2014 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband