Rasistarnir eru í Framsóknarflokknum

"For­yst­an hef­ur fallið á siðferðilegu prófi og niðurstaða miðstjórn­ar­fund­ar­ins sýn­ir að flokk­ur­inn styður þann málsstað sem sett­ur var fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­un­um"

Allir sem eru með grænt Framsóknarmerki á brjóstinu eru að staðfesta það að þeir eru rasistar.

hvells


mbl.is Segir sig úr Framsóknarflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Af hverju prófar þú ekki að kynna þér aðeins íslam áður en þú segir svona. Hvað veldur því að í Evrópu og víða annars staðar setur fólk sig upp á móti íslam? Sveinbjörg gerði það óttalega klunnalega og virtist þekking hennar vera afar lítil og tókst henni m.a.s. að fara rangt með sumt. Skoðum samt aðeins málin:

Veist þú um trúarrit þar sem fylgjendum er beinlínis sagt að beita ofbeldi gegn þeim sem gerast fráhverfir trúarbrögðunum eða aðhyllast þau ekki? Það má þó sjá í súru 4:89, 9:123 og 8:39 svo nokkur dæmi séu tekin. Þessi vers skýra vel afstöðu múslima gagnvart gyðingum og kristnum. Í súru 5:51 er múslimum meinað að vingast við gyðinga og kristna. Í súru 4:89 er múslimum sagt að berjast við og drepa þá sem gerast fráhverfir íslam, þ.e. gerast trúleysingjar eða taki aðra trú. Í hadith lesum við um að Múhameð segi það sama (Bukhari 9:83:17). Veist þú um einhverja Íslendinga sem hafa verið drepnir fyrir að segja sig úr þjóðkirkjunni?

Hvað finnst þér um afstöðu íslam til kvenna? Íslenskir stjórnmálaflokkar þurfa að taka afdráttarlausa afstöðu til þess máls.

Í súru 4:3 er gefið grænt ljós á fjölkvæni (allt að 4 konur). Í hadith má líka sjá að Múhameð sló konu sína og lét sér fátt um finnast þegar aðrir beittu konur sínar ofbeldi. Múhameð sjálfur samrekkjaði 9 ára barni (t.d. Bukhari 5:234). Í súru 65:4 gerir kóraninn beinlínis ráð fyrir því hægt sé að skilja við stúlkubarn (stúlku sem ekki er farinn að hafa á klæðum). Er þetta í takt við vestræna menningu eða íslensk lög?

Í súru 2:282 kemur fram að vitnisburður tveggja kvenna er jafngildur vitnisburði eins karlmanns. Í súru 4:176 má sjá að systur geti bara erft helming á við bræður sína úr búi foreldra. Í súru 2:229 má sjá að bara karlar geta farið fram á skilnað - ekki konur. Í súru 33:59 er konum sagt að hylja sig þegar þær fara úr húsi. Í hadith (Abu Dawud 11: 2142) segir Múhameð að ekki beri að spyrja karlmenn hvers vegna þeir berji konur sínar. Í hadith segir Aisha (uppáhaldskona Múhameðs) sem svo að hún hafi ekki séð vantrúaðar konur þjást eins mikið og trúaðar (múslimskar) konur (Bukhari 7:77:5825). Hvað finnst hvells um þetta?

Gaman væri að fá íslenska stjórnmálamenn til að taka efnislega afstöðu til t.d. þess sem hér kemur fram að ofan. Þeir vita auðvitað ekkert í sinn haus en þeir þurfa að gera svo vel að fara að opna augun enda þurfa þeir að ákveða hvort við ætlum okkur að búa samtímis við íslömsk lög og íslensk lög eins og er farið að gerast erlendis. Vita þeir einstaklingar sem sagt hafa sig úr Framsóknarflokknum eitthvað af því sem ég nefndi hér að ofan? Hafa þeir ekkert fylgst með því hvernig ISIS hegðar sér við kristna í Mosul í Írak?

http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/07/19/reka_kristna_menn_fra_mosul/

Helgi (IP-tala skráð) 20.7.2014 kl. 16:32

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er þvílíkur viðbjóður í Biblíunni líka þannig að þetta meikar ekkert sens hjá þér Helgi.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 21.7.2014 kl. 14:48

3 identicon

Hvellurinn grípur hér til þekkta röksemdafærlsu vinstri manna þegar þeir eru að verja Íslam.

Villan felst í að viðbjóðurinn í Biblíunni (gamla testamenntinu) er ekki praktiseraður í heiminum í dag. Hinvegar í íslam er felst praktesírað, grýting, handhöggv, réttdræpur við að skipta um trú o.s.frv.

kv

Sleggjan (IP-tala skráð) 21.7.2014 kl. 18:36

4 identicon

@2:

Þú ert greinilega ekkert lesinn. Hvaða viðbjóð í biblíunni ertu að tala um? Það sem skiptir máli er hvernig þessir textar eru túlkaðir. Reyndu að læra af sleggjunni. Maður sér iðulega færslur frá þér sem eru alveg út í loftið þar sem fyrst virðist vera skrifað og svo hugsað. Ég hvet hér með hvells til að lesa sér svolítið til. Ágætt væri að byrja á "Íslamistar og naívistar". Ef þú kynnir þér íslam auðveldar það þér verulega að bæði skilja og sjá fyrir það sem gerist í Mið-Austurlöndum. Af hverju eru Sádarnir alveg á móti því að Íran fái kjarnorkuvopn? Voru Kanarnir alveg í panik þegar t.d. Frakkar eignuðust kjarnorkuvopn?  

@3: Tökum t.d. 4. Mósebók 31:17-18. Þar má sjá nokkuð sem þeir sem hata gyðingdóm og kristni hlakka yfir. Í kóraninum eru múslimar hvattir til að berjast við vantrúaða hvar sem er og hvenær sem er. Í GT er vísað í ákveðna hópa á ákveðnum tíma og ekki er um óútfylltan víxil að ræða. Þetta veit sleggjan greinilega og ég tek ofan af fyrir þekkingu hennar. Bara ef fleiri nenntu að lesa sér til áður en þeir tjá sig.

Því miður er þessi vanþekking ansi útbreidd og ég sá mig knúinn til að reyna að leiðrétta misskilning líkan þeim sem hvells þjáist af hér:

http://patent.blog.is/blog/patent/entry/1400830/

Síðuhafi þarna virðist vera einn af þeim sem telur sig vita mikið án þess að hafa fyrir því að athuga málin - sem er hræðilega algengt :-(

Helgi (IP-tala skráð) 22.7.2014 kl. 07:45

5 identicon

Segir maðurinn sem finnst það í ljómandi góðu lagi að myrða hundruði manna fyrir það eitt að fæðast á Gaza?

Af því þeir fæddust í Palestínu, þá er þér skítsama, og kallar svo aðra raista?

Sigurður (IP-tala skráð) 22.7.2014 kl. 23:35

6 identicon

@5:

Horfðu á þetta myndband:

https://www.youtube.com/watch?v=8O9AHzUKYk8

Helgi (IP-tala skráð) 23.7.2014 kl. 17:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband