Þriðjudagur, 24. júní 2014
Gott mál fyrir okkur hægri menn sem viljum lægri skatta
Þetta er jákvætt skref fyrir okkur hægri menn sem viljum lægri skatta.
Þeir sem stunda lögbrot á við svarta starfsemi skekkja samkeppnisumhverfið.
Því fleiri lögleg starfsemi, því meiri skattur í ríkiskassann, þá skapast meiri hvati til skattalækkana sem er jákvætt fyrir okkur.
Endamarkmiðið er þó alltaf að hafa skatta svo lága að það borgi sig ekki (ekki áhættunnar virði) að svindla á skattinum og allt gefið upp.
kv
Sleggjan
Varað var við eftirliti lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 24. júní 2014
Skemmtilegir snillingar og tvöfeldnir Íslendingar
Þegar neysluviðmiðin urðu opiber ætlaði allt að kollkeyra fyrir nokkrum árum síðan.
Öryrkjabandalagið er hérna að segja að þau séu of lág. Það þarf sko meiri pening til að lifa á segja þeir. Bætur þurfa að hækka.
Svo Hagsmunasamtök Heimilanna snillingasamtök aldarinnar segja að þau séu of lág.
http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP27888
En hérna eru neysluviðmið of há því til að komast gegnum greiðslumat í bankanum þarf maður að hafa efni á neysluviðmiðunum. Þá kemur annað hljóð í fólk.
Henntisemisfólk, tækifærissinnar, ekkert nýtt undir sólinni.
kv
Sleggjan
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 24. júní 2014
Klassík
Alveg er þetta klassískt.
Sá sem hefur verið á spenanum allt sitt líf dettur ekki í hug að fara í einkageirann þar sem kröfurnar eru meiri með mætingu og skilvirkni.
Neinei. Það skal lifa á skattborgurum í illa skilgreindu starfi þar sem krafan um afköst er mjög loðið og afstætt.
kv
Sleggjan
Siv verður formaður velferðarvaktar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)