Fimmtudagur, 19. júní 2014
Rétt mat
"tekur fram að deilur sem þessar séu best leystar með gerðardómi en ekki átökum á borð við verkföll. Hann segir íslenskan markað ekki ráða við slíka stöðvun sem verði af völdum verkfalla."
Þetta er rétt mat hjá honum Sigurði.
hvells
Ætti að leysa með gerðardómi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 19. júní 2014
kenning
"Ég er hins vegar eldri, reyndari og betur menntuð en hann"
Nokkuð gott :)
En ég hef gengið að því vísu að hún Ingibjörg er að leppa fyrir Jón Ásgeir. Jón Ásgeir mátti ekki vera í stjórn eða framvkæmdastjórn fyrirtækis á Íslandi eftir að hann var dæmdur í hæstarétti. Fljótlega eftir það þá færðsti t.d 365 yfir á Ingibjörgu.
Því má leiða því líkur að ef Jón Ásgeir hefði verið sýknaður þá hefði þessi gjörningur aldrei verið gerður.
hvells
Varð ekki að viljalausu verkfæri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 19. júní 2014
Sögulegar rangfærslur
Það má segja hvað sem er í dag ef það þjónar pólítískum rétttrúnaði. Ef það stendur utan hans þá er það stranglega bannað.
Ég má t.d. ekki segja að múslimar fara illa með konur. Eða gyðingar ,svertingjar, asíubúar, Húsvíkingar eða hvað sem er í rauninni. Kæmist kannski upp með það að segja að hvítur miðaldra karlmaður fer illa með konur. Þá er maður kominn í svona pólítískan rétttrúnaðargír.
En þessi Auður forstöðukona Kvennasögusafnsins slengir þessu fram án þess að geta heimilda:
"Karlarnir voru hræddir við konurnar". Punktur. Eins og ekkert sé. Það vantar einfaldlega heimildir fyrir þessu Auður. Það er alls ekki söguleg staðreynd, af hverju að halda því fram.
kv
slegg
Karlarnir voru hræddir við konur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |