Reginn eða Reitir

Það er bókað mál að Reginn eða Reitir mun bjóða hæst í lóðina. Ég er ekki viss um að Gamma ætlar að leggja í þetta.

Það er mikil gróska í bygginariðnaðurinn í dag og þetta hús er klárlega á einum besta stað í bænum og allt stefnir í að þetta hús verður ákveðið kennileyti í Reykjavík.

Það verður gaman að fylgjast með þessu í framtíðinni. 

hvells


mbl.is Lóð í miðborginni boðin til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hanna Birna hefur vaxið í starfi

Við skulum ávalt fagna því þegar ráðherra ákveður að fara að tillögum hagræðingarhópsins. (hvað eru hinir ráðherrarnir að spá?)

sjá tillögur hér

Að mínu mati hefur Hanna Birna risið í sínu embætti. Það er erfitt verk að sameina sýslumannsembættin. Þeir eru rótgróin og viðkvæmt mál sérstaklega á landsbyggðinni þar sem hann er stór vinnuveitandi. Það þarf pólítiskt þrek að takast á við þetta og greinilegt að Hanna Birna ætlar ekki að skerast undan. 

Jákvætt er að dreifa verkefnum útum allt land. Það á ekki að vera regla að öll störf í opinberri stjórnsýslu skuli vera á höfuðborgarsvæðinu. Það er mikill kostur að hafa þau dreif útum allt land. Ekki bara byggðarsjónarmið heldur ákveðin hagræðingasjónarmið m.a vegna þess að skirfstofuhúsnæði eru ódýrari útá landi og starfsmannavelta er mun minni sem sparar pening og skapar ákveðin þekkingarauð á viðkomandi vinnustað.

hvells

 


mbl.is Verkefni flutt til sýslumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvellurinn hefur alltaf rétt fyrir sér

Hvellurinn gaf fría fjárfestingaráðgjöf í seinustu viku og áréttaði hana nokkrum dögum síðar.

Gengi Icelandair var 16,4 þegar ég mælti með kaupum á bréfunum. Nú er gengið  17,65. Verðmat Hvellsins er 18,1 og því er enn kauptækifæri og Hvellurinn gerir áð fyrir að gengi Icelandair mun ná 18,1 í sumar.

Lesendur síðunnar geta því grætt mikla peninga með því að halda áfram að lesa síðuna.

Við höfum aldrei haft rangt fyrir okkur. Hvort sem það er í ESB málum, verðtryggingu eða fjárfestingaráðgjöf.

hvells


mbl.is Viðskipti hafin með bréf Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þvert á móti

ég bjó í gravarholti. það tók mig háltíma að keyra í vinnuna niðrí bæ (þar sem flest störfin eru) á hverjum einasta morgni.

Með því að þétta byggð miðsvæðið þá mun þessi umferð um ártúnsbrekku minnka vegna þess að fleiri munu þá búa niðrí bæ nálægt vinnu.

Með því að byggja austur og austur einosg Sveinbjörg er að boða þá mun umferðin aukast enn meira á Ártúnsbrekku vegna þess að tugir þúsunda manns verða keyrandi niður í bæ á hverjum morgni.

Þessvegna er hún ekki að standa með úthverfin.... hún er að standa gegn úthverfunum og gera úthverfin sem núna þegar eru í byggð verri. Meiri tímaeyðsla á hverjum morgni vegna aukinni bílaumferð vestur um bæ og svo austur eftir vinnu um fjögur fimm leytið seinnipartinn.

Þessi stefna hjá XB er glapræði.

hvells


mbl.is „Við stöndum fyrir úthverfin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villandi

Þetta er í besta falli villandi.

Það er ekki tekið inní mikilvæga þætti einsog menntun, starfsreynslu og lengd vinnudaga.

Þessi "könnun" er í raun algjörlega merkingalaus.

hvells


mbl.is Launamunur kynjanna 19,9%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB

"

Íslenskur sagnaarfur á ekki margar þekktari eða skemmtilegri sögupersónur en þá Gísla, Eirík og Helga, bræðurna á Bakka í Svarfaðardal. Þeir voru svo skemmtilega vitgrannir, að þeir hafa orðið aðhlátursefni margra kynslóða.

Eitt fáránlegasta uppátæki þeirra var, er þeir reistu sér baðstofu og höfðu hana gluggalausa til þess að hún yrði hlýrri á vetrum. En þá vantaði birtuna í bæinn. Til að bæta úr því, ákváðu þeir að bera myrkrið út og sólskinið inn í trogum. Þrátt fyrir dugnað þeirra við trogaburðinn, hafði ekkert birt í bænum þegar leið á daginn. Þeir sáu ekki handa sinna skil frekar en áður.

Ég get ekki að því gert, að mér finnst sumt í gerðum núverandi ríkisstjórnar minna mig á baðstofubygginguna á Bakka. Einkum á það við um utanríkis- og fjármál. Meðan meirihluti þjóðarinnar vill láta á það reyna, hvort við náum hugsanlega viðunandi samningum við Evrópusambandið um samstíga framfarir, þá hamast Bakkabræður ríkisstjórnarinnar, þeir Sigmundur Davíð, Bjarni og Gunnar Bragi við að reyna að loka okkur inni í gluggalausu húsi. Við megum ekki sjá hvað aðrir gera best. Hugarfar frelsis og framfara á helst ekki að finna sér neinar glufur inn í samfélag okkar.

Okkur á að nægja það sem þeir eru að bera okkur í sínum forneskjulegu trogum og reynist árangurslítið, af því að þeir virðast ekki, frekar en Bakkabræðurnir fyrir norðan, hafa þá andlegu hæfileika sem þarf til að leysa vandamálin þannig, að samfélag okkar njóti birtu þeirra framfara sem öðrum hafa reynst vel.

Flestir sæmilega skynsamir menn sjá hvert svona innilokunarstefna leiðir okkur. Því þarf ekki að orðlengja þetta. En þótt við vitum, að Evrópusambandsaðild leysi ekki öll okkar vandamál, þá er sterk von við hana bundin, einkum í utanríkis- og fjármálum og því lýk ég þessari grein með hvatningarorðum sr. Matthíasar. Takið þau til ykkar hver og einn, Sigmundur Davíð, Bjarni og Gunnar Bragi:"

 

http://jaisland.is/umraedan/bakkabraedur-i-rikisstjorn/#.U4MCRFNrpsE

hv

 


mbl.is „Pólitískur jarðskjálfti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkuð ljóst

Það er nokkuð ljóst að það á að leggja Framsókn niður. Það eru allir neytendur þreyttur á að það er verið að okra á sér. Tollabúrarnir eru hátt uppí 90% af mat og það bitnar mest á fátækum.

Svo eru allir hættir að kjósa Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að hann er að hindra Íslendinga að ganga í ESB og þar með taka upp evru og betri lífskjör. XD lét báknið blása út þessi 16ár sem þeir voru við völd...þvert á stefnu flokksins (báknið burt)... það þýðir ekkert að gagna gegn stefnu flokksins og ætlast til að fá atkvæðin aftur og aftur. 

Flestir sjálfstæðismenn eru að kjósa BF eða aðra flokka sem vilja klára ESB málið. Og þegar Viðreisnarflokkurinn kemst í gang þá er þetta allt búið hjá XD.

Menn einsog Styrmir, Björn Bjarna og DO eru búnir að skemma flokkinn.

hvells


mbl.is Leitað verður skýringa og sökudólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dögun

Það stefnir allt í það að Dögun verði stærri en Framsóknarflokkurinn   LOL

hve


mbl.is Mismunandi áherslur frambjóðenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

veiðar

það er ljóst að XB mun fá mörg atvkæði fyrir að pöntkast á þessari mosku.

Stóra spurningin er hver nettó áhrifin verði. Hvort fleiri stiðji XB heldur en yfirgefi flokkin útaf þessu máli.

En XB mælist varla í RVK og því er þetta mál stormur í vatnsglasi. Flokkur forsætiráðherrrann mun gelda afhroð í RVK og ef Sigmundur hefur einhver snefil af virðingu þá mun hann taka ábyrgð og segja af sér.

hvells


mbl.is Kosningastjórnin ræðir moskumálið í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir á rídalín

Allir á rídalín.

Á kostnað skattborgara.

Svo er fínt að fá hvatvísis greiningu. Kannski fær maður örorkubætur fyrir það.

 

Við Íslendingar erum þegar með heimsmet í rídalín neyslu.... það þarf endilega fleiri vona ADHD-teymi.

hvells


mbl.is Mikil þörf fyrir greiningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. maí 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband