Galið.

Þetta er algjörlega galin "hugmynd" og það kemur mér ekki á óvart að þetta kemur frá Framsóknarflokknum. Ég sé hvaða þingmenn þetta eru. Allir misvitrir Framsóknarmenn. En það kemur mér á óvart að Frosti er þarna á meðal. Ég hef talið hann skynsaman á vissan hátt. Þó að hann er menntaður viðskiptafræðingur frá HÍ og kallar sig rekstrarhagfræðing.

Hann hefur allavega reynslu frá atvinnulífinu. Marel, Dohop og Nýherji. 

Hver er hlutverk ríkisins? Er að að eyða 120 milljörðum í áburðarverksmiðju?

"heimsmarkaðsverð á áburði hafi hækkað umtalsvert, einkum vegna aukinna áburðarkaupa Kínverja og Indverja. Þá sé ljóst að áburðarverð mun að öllum líkindum haldast hátt í nánustu framtíð vegna aukinnar ræktunar matvæla"

Ef þetta er svona skothelt afhverju hætta þessi þingmenn ekki á alþingi og fara saman í áhætturekstur og græða milljarða?

Það er kannski auðvelt að vera með gott "viðskiptavit" með annara manna peninga?

hvells


mbl.is Vilja nýja áburðarverksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á flótta

Gunnar Bragi og vinir hans í Framsóknarflokkinum eru á flótta undan lýðræðinu.

Þeir eru hræddir við kjósendur og vilja þjóðarinnar.

Þeir eru hræddir við of góðan samning.

Þeir vilja svifta kosningaréttinum af þjóðinni.

hvells


mbl.is Lýðræðið að engu gert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI sinnar

Það er ljóst að NEI sinnar eru með allt niðrum sig í þessu máli.

Þeir eru í miklu áfalli vegna þess að þeir sjá það með berum augum að mikil vilji er á meðal landsmanna að klára samninginn og leggja hann fyrir dóm þjóðarinnar.

Það er hið lýðræðislega hlið í málinu.

hvells


mbl.is Þingfundi ítrekað frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn munur

" Enginn kynbundinn launamunur er á dagvinnulaunum."

Það segir okkur að það er enginn munur. Kynin fá jafn mikið borgað. En karlarnir vinna yfirvinnu og það skýrir þann meinta mun. En ekki er það markmiðið að láta karlana vinna launalausa yfirvinnu?

Svo er ljóst að ef konur mundi vinna yfirvinnu líka þá væru þau á sömu launum. Það er staðreynd.

hvells


mbl.is Dregið hefur úr kynbundnum launamun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dvínandi trúverðugleiki

Það er ljóst að meira að segja hörðustu NEI sinnar eru farnir að missa trú á Vigdísi.

Hún hefur einfaldlega misst trúverðugleikann jafnt og þétt. Fyrst var hægt að skrifa mistök hennar og vitleysu á reynsluleysi. Svo koma að "menn gera mistök" en nú eru "mistökin" orðin nánast daglegt brauð og NEI sinnar eru hættir að lítast á blikuna.

Ljóst er að hún mun gjaldfella Heimsksýn með sínu háttarlagi. Margir innan Heimsksýnar eru að hugsa sér til hreyfings.

hvells


mbl.is Hvetur fyrirtæki til að hætta að auglýsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"elskulega" krónan

Nú er verð MEIRA en fjórfallt dýrari en var árið 1988.

Þökk sé okkar elskulegu krónu  sem NEI sinnar vilja verja með kjafti og klóm.

hvells


mbl.is Mikil hækkun vísitölu neysluverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI sinnar í ógöngum

Það er ljóst að NEI sinnar eru komnir með þetta ESB mál í algjörar ógöngur.

Þeir eru hræddir við vilja þjóðarinnar.

Þeir eru hræddir við lýðræðið.

hvells


mbl.is Svikin loforð rædd um miðja nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. febrúar 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband