Setjum umsóknina á ís.

Það er fínt að gera hlé á viðræðunum.

Við sjáum hvernig verður um evruna.

Svo sjáum við hvernig ESB verður eftir kreppuna. Það er ýmislegt í bígerð hjá ESB sem gæti breytt ESB t.d eftirlit með fjárlögum Evru-landa.

 Það er ekkert að því að bíða og sjá hvað setur.

Og leggja þá allt í sölurnar til þess að finna lausn á gjaldeyrismálum. En þar eru NEI sinnar alveg með allt niðrum sig.

hvells


mbl.is Mörður tekur undir með Jóni Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru prófkjör ekki á fjögurra ára fresti?

Ég hélt að prófkjör væru ávalt haldin. Ef ekki þá þarf að breyta því.

Ég tek undir SUS. Að sjálfsögðu á að halda prófkjör til þess að raða fólki á lista.

Það er lýðræða leiðin.

Ég er skráður í Sjálfstæðisflokkinn og mun hafa mitt að segja hverjir veljast á lista.

hvells


mbl.is SUS vill prófkjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarflokkurinn og fjölmiðladraumarnir

http://eyjan.pressan.is/frettir/2012/08/13/sigmundur-david-fagnar-tillogu-stefans-um-esb-umsokn-en-thetta-var-hugmyndin-min/

Sigmundur bloggar loksins á vef sinn og kemst í helstu fjölmiðla. Svona á að gera þetta.

Þeir eru að bögglast með að kaupa fjölmiðil. Eru heitir fyrir Fréttatímanum.

 

En í alvöru eiga þeir bara láta í sér heyra. Hversu margir þingmenn Framsóknar eru virkir í skrifum? Hélt ekki.

 

Ókeypis ráðgjöf frá Sleggjunni

kv

Sleggjan


Þökkum lesendum fyrir

Þessi vika var lífleg  hérna á blogginu.

http://blog.is/forsida/top.html

 Hérna er listinn yfir mest lesnu bloggin. Sleggjuhvellurinn situr þar í 8 sæti.

Rúmlega 3000 manns skoðuðu bloggið í vikunni. 

 Erum fyrir neðan Ómar Ragnars og Pál Vilhjálms.

En fyrir ofan Jón Val Jensson, Heimssýn og Jens Guð svo eitthvað sé nefnt. 

Listinn í heild:

 


 kv

Sleggjan


Álitsgjafi Íslands

Álitsgjafi Íslands hann Egill Helgason segir að kosningarnar næsta vor munu snúast um þjóðrembu:

Síðasta setningin hjá honum:

"En næstu kosningar verða líklega bólgnar af þjóðrembu – við munum sjá flokkana stíga á vagn hennar hvern af öðrum. "

 Ekki finnst mér það spennandi.

 

Annars hatar Egill þegar hann er kallaður álitsgjafi. Ég er að gera honum smá grikk. Hann vill helst vera titlaður blaðamaður.

kv

Sleggjan


Bjarni Ben VS Steingrímur J

http://www.dv.is/frettir/2012/8/13/sver-af-ser-milljardatap-og-visar-steingrim/

Líflegt viðtal við Bjarna Ben. Líflegar umræður við frétt. Þeir benda hvor á annan. En í rauninni er þetta mjög einfalt:

Bjarni Ben átti þátt í því að setja Sjóvá á hausinn með því að nota bótasjóðinn í rugl.

Hann hefði getað sleppt því.

 

Steingrímur J bjargaði Sjóvá með milljarða innspítingu.

Hann hefði getað sleppt því.

 

kv

Sleggjan


Ráðgjafinn.

Er varaþingmaður XD og frjálshyggjuboðarinn sjálfur aðalráðgjafi VG.

Þetta er mest absúrd grein sem ég veit um.

Það er mikið til í henni. VG mun styrkjast með því að slíta samstarfinu vegna ESB aðildar.

En XD er ekki tilbúið með neitt einsog Óli mun segir. Og þá mun stefna í vinstri stjórn ásamt XB.Og Sjalfstæðisflokkurinn mun sitja útí kuldanum í önnur fjögur ár.

Þetta er alveg solid Game plan..... en að þetta skuli koma frá sjálfstæðismanninum Óla er ofar mínum skilningi.

hvells


mbl.is Stefnt að þingkosningum í haust?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekinn í bakaríið

Sjaldan lesið eins mikið BURN áður.

Guðlaugur fékk rothögg í fyrstu lotu. Vona að hann verði ekki vankaður lengi greyið. Guðlaugur er líka einn af þeim sem er sama um sannleikann. Ein pólítísk keila í senn, does the job. Hverjum er ekki sama um Logic.

kv

sleggjan


mbl.is Ísland fékk 700 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styrmir með ranga sýn á XS

Styrmir Gunnarsson skrifar á Evrópuvaktina að ráðherrar Samfylkingarinnar séu farnir að ókyrrast því að Katrín Júlíusdóttir sé að koma úr fæðingarorlofi. Hún fái væntanlega sæti í ríkisstjórninni á ný.

Styrmir segir: „Það eru á kreiki sögusagnir um að Össur Skarphéðinsson sé hræddur um eigin stöðu "

Og: "En auk Árna Páls er ljóst að fleiri hugsa sér til hreyfings. Helgi Hjörvar bíður færis, Dagur B. Eggertsson leitar eftir innkomu, Sigríður Ingibjörg hefur gefið sig fram, sumir horfa til Stefáns Ólafssonar, prófessors."

 

Þetta er óttarlegt bull (spuni?).

Það var alveg ljóst í upphafi að Oddný tók við Katrínu tímabundið. Katrín tæki svo aftur við og Oddný verði óbreyttur þingmaður á nýju. Einfalt. Þetta mun gerast, sjáið bara til.

 

Þessar bollalengingar Styrmirs eru tilgangslausar

kv

Sleggjan


Mjög gott fyrir landsmenn

Samningsafstaða Íslands er góð. Fá Evruna sem fyrst.

Lífskjör landsmanna batna í kjölfarið. Við verðum skorin úr snörunni.

Aflandskrónur verður gamall brandari. Gjaldeyrishöft eitthvað sem tilheyrir svartri fortíð.

Betri vaxtakjör.

Verðtryggingin burt.

Stöðugleiki. Auðveldara að reka fyrirtæki.

 

Eða er einhver hérna sem vill hafa gjaldeyrishöftin? Er einhver sem vill verri vaxtakjör? Er einhver sem vill halda í verðtryggð húsnæðislán? Er einhver  hér sem vill ekki stöðugleika?

Ég hélt ekki.

 

kv

Sleggjan


mbl.is Evran verði tekin upp sem fyrst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband