Hókus Pókus oforðin

Tek undir orð Þórðar

Nú eru fimm mánuðir til næstu alþingiskosninga. Framboðin eru því farin að leggja drög að atkvæðaveiðum með loforðaflaumi. Sum loforðin eru skynsamleg. Sum kjánaleg. En allt of mörg eru beinleiðis brjáluð.

Skattalækkanir eru vel þekkt og aðlaðandi beita á kosningavertíð. Það vilja enda allflestir borga minna hlutfall af launum sínum í samneysluna til að geta eytt meiru í sjálfan sig og sína. Sjálfstæðisflokkurinn, einstakir frambjóðendur hans og allskyns fylgihnettir vilja hins vegar "vinda ofan af skattahækkunum ríkisstjórnarinnar". Það sem vantar upp á þessar tillögur er hvernig það eigi þá að brúa gatið sem skapast í rekstri ríkissjóðs með raunhæfum hætti ef þessir viðbótar-tekjustofnar skila allt í einu engu. Neikvæður jöfnuður ríkissjóðs frá árinu 2008 og út næsta ár er nefnilega áætlaður samtals 600 milljarðar. Og gatið er enn að stækka.
Á sama tíma kynnir ríkisstjórnin fjárfestingaáætlun fyrir árin 2013-2015 upp á nokkra tugi milljarða sem hún hefur ekkert umboð til að hrinda í framkvæmd. Næsta ríkisstjórn verður aldrei bundin af henni. Áætlunina á að fjármagna með veiðigjaldi, sem stærsti stjórnmálaflokkurinn vill afnema komist hann í ríkisstjórn, og sölu á bönkum sem enginn markaður er fyrir eða arðgreiðslum sem ekkert hefur verið ákveðið um hvort eða hvenær verði greiddar út.

Nýjasta kosningavetursæðið snýst um mismunandi útfærslur á því að þjóðnýta eignir þrotabúa gömlu bankanna til að endurfjármagna Ísland. Rökin eru þau að við höfum komist upp með að festa fullt af fé útlendinga hérlendis með neyðarlögunum og gjaldeyrishöftunum og því sé okkur ekkert að vanbúnaði að hirða restina. Það verður þó að gera sér grein fyrir því að þessar hugmyndir munu hafa víðtækar alþjóðlegar afleiðingar. Og það er nokkuð ljóst að sú erlenda fjárfesting sem þarf til að byggja hér upp þekkingarhagkerfið, sem öllum nýmóðins stjórnmálamönnum finnst svo gaman að tala um, kemur ekki hingað ef meiri líkur en minni eru á að fjárfestarnir fái ekki peningana sína til baka.

En stærsti uppboðsmarkaðurinn snýst um almennar skuldaniðurfellingar. Fyrsta boð kom frá Framsóknarflokknum, sem ætlar að vaða í 20 prósenta niðurfellinguna í nýrri og dýrari útfærslu. Næsta kom frá Samstöðu sem ætlaði fyrst að búa til einhvers konar peningavél til að láta skuldir hverfa, en hefur síðan tekið upp nýkrónustefnu sem í felst stórtæk eignaupptaka. Nýjasta, og hæsta, tilboð kom síðan frá Hægri grænum. Það felur í sér að húsnæðislán verði lækkuð um 44 prósent hið minnsta. Þá byggir Dögun tilveru sína á regnbogaloforðum um skuldaniðurfærslur og einstakir þingmenn gömlu flokkanna hafa einnig talað á svipuðuð nótum. Það minnist hins vegar enginn á hundruð milljarða óumflýjanlegan kostnað ríkis og lífeyrissjóða af þessu brjálæði.
Töfralausnapólitík hefur aldrei tröllriðið landanum af jafn miklu offorsi og hún gerir um þessar mundir. Það virðist lenska að lofa undralausn á vandamálum sem er ekki hægt að leysa nema með skynsamlegri langtímanálgun. Þótt stjórnmálamenn veifi sprota og kalli "hókus pókus!" þá hverfa vandamálin nefnilega ekki. Þvert á móti gætu töfrabrögðin skilið okkur eftir í mun verri málum fái stjórnmálamennirnir sem lofa þeim umboð.

kv

Sleggjan


Ógild kosning

Nauðsynlegt er að kjósa aftur eða ógilda kosningarnar og raða upp lista.

Hæstiréttur hefði viljað það

A la stjórnlagaþingskosningar.

kv

Sleggjan


mbl.is Einn kaus tvisvar í prófkjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni er skynsamur leiðtogi.

Bjarni Ben hefur reynslu úr atvinnulífinu. Hann hefur góða almenna skynsemi og ég treysti honum til þess að vera forsætisráðherra árið 2013. Hann mun spjara sig vel og gera mun betur en forveri hans.... enda ekki erfitt að toppa það.

hvells


mbl.is „Getur verið kalt á toppnum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna er í áfalli

Jóhann er líklega í áfalli eftir þessa niðurstöðu. Þetta er skýr skilboð Samfylingarinnar að hún er ósátt við þessa vinstri sveiflu með VG hefur heppnast.

Árni Páll var meiriséa settur af sem ráðherra ... en hann kemur sterkur inn núna

Til hamingju Árni

hvells


mbl.is Stór sigur Árna Páls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

óbragðið

Þjóðin hefur eitthvað óbragð af Bjarna Ben. Það er þetta vafningsmál. Það má vel vera að Bjarni er saklaus eða þetta var eitthvað "minniháttar" mál... en þetta er eitthvað sem þjóðin vill ekki. Tengist hruninu.

Illhugi var framkvæmdastjóri Sjóð 9 sem stórskaðaði sparifjáreigendur og almenning... milljarðar þurfti að fara í sjóð 9.. sem var versti sjóður af þeim öllum.. Sjóður 9 var sjóður í Glitnir sem keypti mikið i FL group

Guðlaugur er styrkjarkóngurinn

Tryggvi Þór var efnahagsráðgjafi í hruninu og forstjóri Askar Capital sem fór rakleitt á hausinn ásamt að hafa gefið út þessa bull skýrslu um stirkleika fjármálakerfis árið 2007-2008

Þetta eru þrír kappar sem þjóðin vill ekki sjá meira af í Sjálfstæðisflokknum...

svo eru nokkrir í öðrum flokkum sem fólk vill ekki sjá meira af t.d Björgvin í Samfylkingunni

hvells


mbl.is Glímir við „arfleifð hrunsins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn sem þora ekki að taka umræðuna.

Eftirfarandi villur komu upp:
Þér er ekki heimilt að skrá athugasemdir

Þetta kemur þegar ég svara fyrir mig á blogginu

http://gustafskulason.blog.is/blog/gustafskulason/entry/1267583/

Svarið mitt er einfaldlega þa að mér finnst athugavert að hann heldur fram að XD sé jafnaðarmannaflokkur.

Það er sorglegt þegar menn þora ekki að standa fyrir sínu máli. Það sínir bara að menn eru að verja vondan málstað sem þeir geta ekki staðið undir... eða hafi ekki vitsmuni til þess einsog hann Gustaf

hvells


Mikil samstaða

Maður sér að það er mikil samstaða í Samfylkingunni. Þar er greinilega gott fólk og þroskað. Yfirvegað og gáfað sem maður mundi treysta.

Annað en í Framsóknarflokknum... þar berjast menn á banaspjótum.

hvells


mbl.is „Ekki vonbrigði,“ segir Katrín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niður með kynjagleraugun.

Kyn skiptir engu máli... ekkert frekar en húðlitur.
Við hér í nýja Íslandi eigum að hætta að dæma fólk eftir kynþátt eða kynferði... burt með kynþáttarfordóma.

Dæmum fólk að verðleikum.. burt séð frá kyni viðkomandi.

Það er kærleikur

Það er nýja Ísland

hvells


mbl.is Skilur þá sem vilja konu í forystu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Árni.

Það er greinilegt að Samfylingarfólk er orðin þreytt á þessari vinstri sveiflu sem XS hefur látið VG platað sig í.

Ég er viss um að Árni Páll mun stýra Samfylkingunni til sigurs í næstu kosningum.

hvells


mbl.is Árni Páll sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur á leið á þing

Nánast öruggt að XD gera það gott í Suðvestur. Vilhjálmur í fjórða sæti í prófkjöri. Hann flýgur inn.

Sáttur.

 

Vona að hann rífi upp þennan sponseraða flokk og byrji að fylgja frjálslyndri stefnu en ekki sérhagsmunastefnu.

 

kv

Sleggjan


mbl.is Bjarni með 54% atkvæða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband