Mánudagur, 18. febrúar 2013
Konur þurfa að spíta í lófana
Vinsælustu bloggararnir
- Jónas Kristjánsson
- Egill Helgason
- Ragnar Þór Pétursson
- Björn Valur Gíslason
- Vilborg Davíðsdóttir
- Agnar Kristján Þorst...
- Illugi Jökulsson
- Harpa Hreinsdóttir
- Teitur Atlason
- Matthías Ásgeirsson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Eva Hauksdóttir
- Einar Steingrímsson
- Ómar Ragnarsson
- Ingimar Karl Helgason
- Marinó G. Njálsson
- Jón Steinsson
- Ögmundur Jónasson
- Jóhannes Þ. Skúlason
- Stefán Ólafsson
- Jón Trausti Reynisson
- Örn Markússon
- Valgarður Guðjónsson
- Eva Hauksdóttir
- Erling Ólafsson
Þetta eru vinsælustu bloggarar landsins.
Þetta eru 20 kk, og 4 kvk (Eva Hauks er með tvær vinsælar síður).
Blogg er nefninlega töluvert góður mælikvarði á hversu mismunandi kynin láta sig samfélagsmál varða. Það kostar ekkert að blogga. Allir geta opnað síðu og byrjað. Af einhverjum ástæðum kjósa karlmenn að gera það í miklu meira mæli, af hverju?
Svo ná karlmenn ávallt meiri vinsældum, af hverju ætli það sé?
Konur, helst feministar eru meistarar í að kvarta og kveina. En minna í því að hvetja konur að halda sig frammi, til dæmis á blogginu. Væla minna, blogga meira er mitt svar.
Hausatalning í Silfri Egils gerir ekkert gagn.
http://www.dv.is/frettir/2013/2/17/hvad-thetta-ad-thyda/ Svona væl ekki heldur!
kv
Sleggjan
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 18. febrúar 2013
Báknið stækkar, yfirbyggingin orðin rándýr
Reykjavíkurborg hefur hækkað rekstrarkostnað sinn gífurlega.
Stöðugildum á stjórnunarsviðum hefur fjölgað, millistjórnendur og undirmenn í flestum tilfellum ráðnir einnig.
Þessi þróun er ekki jákvæð.
BF og XS standa fyrir þessu. Svo því sé haldið til haga.
kv
Sleggjan
![]() |
Fyrsti umboðsmaður borgarbúa ráðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 18. febrúar 2013
Trúverðugleikinn horfinn
Samfylkingin vill í ESB. Hún segist geta uppfyllt Maatricht skilyrðin og tekið upp evru og agaðri hagstjórn.
Það liggur núna ljóst fyrir að Samfylkingin er ekki með nógu sterkt pólitiskt þrek sem þarft til að reka agaða hagstjórn. Þessar launahækkanir munu auka skuldsetningu ríkisstjóðs og hleypa af stað verðbólgu þegar aðrar stéttir krefjast sömu launahækkana.
Tekið frá Ísland 2020 http://www.forsaetisraduneyti.is/2020/efnahagsmarkmid/
Efnahags- og þróunarmarkmiðin eru:
- Að opinberar skuldir verði ekki hærri en 60% af landsframleiðslu árið 2020.
- Að verðbólga árið 2020 verði ekki yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands, þ.e. nú ekki hærri en 2,5%.
- Vextir (langtímavextir) verði árið 2020 ekki hærri en tvö prósentustig umfram vexti í þeim þremur ríkjum ESB þar sem vextir eru lægstir.
Hvernig ætlar Samfylkingin að ná þessum markmiðum með þessu áframhaldi. Hvað þá að taka upp evru.
Samfylkingin er búin að missa allan trúverðugleika í þessu ESB máli og kemur þetta frá mér sem er mikill ESB sinni og hef barist fyrir ESB núna í 6 ár hér á blogginu.
Ekki lengur. Ég er hættur að reyna.
hvells
![]() |
Tíu hafa óskað eftir viðræðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Sunnudagur, 17. febrúar 2013
Hannes Hómsteinn v.s Þórólfur Matt
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.2.2013 kl. 07:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 17. febrúar 2013
"Forsendubresturinn"
Hér er mynd af 20milljóna 40ára verðtryggðu láni miðað við 6% verðbólgu. Eins og sjá má á myndinni (bláa línan) þá hækkar höfuðstóllinn jafnt og þétt yfir líftímann. Hann nær hámarki í 42milljónir eftir sirka 30 ár. Eftir það lækkar höfuðstóllinn gríðarlega.
Í stuttu máli þá varð enginn "forsendubrestur". Þetta hefur alltaf legið fyrir. Að höfuðstóll mun hækka sé miðað við verðbólgu síðustu tugi ára. Sem er lang eðlilegast.
Að kalla þetta forsendubrest er bara vitleysa og bendir til þes að viðkomandi hefur ekki hundsvit á fjármálum og ætti því ekki að skuldsetja sig upp í rjáfur.
hvells
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 17. febrúar 2013
Listi sem vekur upp spurningar
Af fimm efstu sætunum eru 3 kennaramenntaðir. Það er vafasamt að svona lítill hluti af framvarðasveit XD hafi takmarkaða þekkingu á efnahagsmálum. Á þeim tíma þar sem endurreisn efnahagslífsins er forgangsatriði.
Þar er einn markaðsfræðingur sem virðist hafa ágætis þekkingu á atvinnulífinu sem er vel.
Einn viðskiptafræði-dropout. Þ.e kláraði aldrei námið.
Þetta er kjördæmið sem hafnaði Tryggva sem er með doktorsgráðu í hagfræði og mikla akedemíska reynslu og kemur úr atvinnulífinu.
Þetta er í raun furðuleg forgangsröðum.
Ætli Tryggvi var ekki nógu mikill "kjördæmamaður". Að hugsa um landið sem heild er víst ekki nógu gott fyrir landsbyggðamenn. Það þarf að hugsa um kjördæmið fyrst og svo almenning.
hvells
![]() |
Sjálfstæðismenn ákveða lista í Norðausturkjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 17. febrúar 2013
Hver?
Hver fellur fyrir svona rugli?
Hæ ég er gaur frá banka í Kína.
Sá sem fellur fyrir þessu á skilið að tapa peningum.
hvells
![]() |
Viðskiptatækifæri svikahrappa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 17. febrúar 2013
Sleggjan mætir með óþægilegar spurningar
http://www.palestina.is/frettir/adalfundur-2013/
Aðalfundur 2013
Sunnudagur 17. febrúar 2013Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína
verður haldinn í Norræna húsinu,
sunnudaginn 3. mars og hefst kl. 15
Sleggjan mun mæta.
Rifja upp allar rangfærslunar sem þetta félag hefur haldið fram.
Nokkrir duttu í þann fúla pytt að trúa þeim. En þegar fólk leggur aðeins meira á sig að kanna hlutina þá kemur fljótt í ljós að þetta félag er fátt annað en lygin ein.
kv
Sleggjan
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 17. febrúar 2013
Vikan
1. | Páll Vilhjálmsson | pallvil.blog.is | 21.038 | 26.430 | 2.662 | 998 |
2. | Ómar Ragnarsson | omarragnarsson.blog.is | 19.207 | 24.401 | 2.584 | 992 |
3. | Sleggjan og Hvellurinn | thruman.blog.is | 15.919 | 18.675 | 2.189 | 493 |
4. | Gísli Foster Hjartarson | fosterinn.blog.is | 14.369 | 14.744 | 2.037 | 292 |
5. | Jón Valur Jensson | jonvalurjensson.blog.is | 12.612 | 13.244 | 1.773 | 296 |
6. | Heimssýn | heimssyn.blog.is | 11.408 | 12.614 | 1.555 | 322 |
7. | Jón Magnússon | jonmagnusson.blog.is | 11.027 | 11.674 | 1.525 | 472 |
8. | Evrópusamtökin, www.evropa.is | evropa.blog.is | 9.942 | 10.375 | 1.403 | 140 |
9. | Marinó G. Njálsson | marinogn.blog.is | 9.604 | 10.158 | 1.337 | 282 |
10. | Sigurður Þór Guðjónsson | nimbus.blog.is | 8.885 | 9.377 | 1.254 | 106 |
Vikan var vinsæl hjá okkur á blogginu.
kv
Sleggjan
Sunnudagur, 17. febrúar 2013
Göngum í ESB og fáum stöðugleika og traustvekjandi gjaldmiðil
Upptaka Evru eða tenging krónunnar við Evruna með vikmörkum og baktryggingu Seðlabanka ESB eins og Danir og Færeyingar hafa gert mun gera okkur kleift að ná langþráðum stöðugleika.
kv
Sleggjan