Sunnudagur, 18. maí 2014
Vantar valmöguleika
Það vantar einn valmöguleika.
Fyrir þá sem vilja ekki taka þátt í þessari vitleysu sem eykur skuldir og skatta ríkisins.
Við eigum að geta valið um að borga lægri skatta í staðinn eða vera laus við ríkisskuldirnar.
hvells
Hægt að sækja um skuldaleiðréttingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 18. maí 2014
Hún er á villigötum
Það á alls ekki að gefa í eins og hún heldur fram. Það væri glapræði.
Nefndi hún hvar á að skera niður eða hækka skatta á móti til að bæta við þessum fjölda? Hélt ekki!
Hún átti þvert á móti að berjast á móti skuldaniðurfellingum.
Þær kosta að lágmarki 80milljarða króna. Ef þessi fjárhæð er notuð til að lækka skuldir ríkissjóðs þá er hægt að spara 3 milljarða á ári í vexti. Það á að vera raunverulegt baráttumál BSRB. Lækka skuldir svo þjóðarhagurinn vænkist.
kv
Sleggjan
Segja leiðréttinguna ná til of fárra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 18. maí 2014
Gáfnarfar Svisslendinga og Íslendinga. Samanburður
Það eru 100% líkur að þessi tillaga væri samþykkt ef hún færi fram á Íslandi. Með miklum meirihluta.
Enda hagfræðiþekking og heilbrigð skynsemi í algjöru lágmarki.
kv
Sleggjan
Höfnuðu hæstu lágmarkslaunum heims | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |