Sunnudagur, 16. febrúar 2014
Kennarar og stjórnmál
Það sem íslensk stjórnmál eiga sameiginlegt. Bæði á sveitastjórnarstigi og svo í landspólítikinni er þetta offramboð kennara í öllum stöðum.
Það hefur leytt til þess að við höfum eitt dýrasta grunnskólakerfi í heimi en þetta dýra kerfi er ekki betri en það að geta ekki skilað af sér unglingum sem geta lesið sér til gagns eftir tíu ára nám.
hvells
Ég varð eiginlega orðlaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 16. febrúar 2014
Ofurtrú á lýðræðið
Það tala margir einsog lýðræðið á að leysa allan vandann. Þetta ofurtrú á meirihlutakosningu er stórskaðlegt. Eina og sanna lýðræðið er að leyfa fólki að halda sínum eigin peningum og fólk getur þá eytt þeim einsog hver og einn vill. Leið Gunnars Gísla er að taka 20kr af fólkinu og láta fólkið kjósa um hvað á að gera við þennan pening. 51% af fólkinu vill byggja nýjan körfuboltavöll en 49% vill byggja nýjan fótboltavöll. Meirihlutinn vinnur og byggt verður körfubotlavöllur.
Er málið leyst og allir sáttir?
hvells
Ekki nóg að kjósa á fjögurra ára fresti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 16. febrúar 2014
Frosti og "réttarríkið" í hans augum
http://andriki.is/post/76760337101
Í fyrradag velti Vefþjóðviljinn því fyrir sér hvernig það samræmdist þrískiptingu ríkisvaldins að efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis tæki upp á því rannsaka hverjir bæru ábyrgð á því tjóni sem ríkissjóður varð fyrir í hruninu og gæfi svo út ákæruskjal í formi lagafrumvarps á hendur nokkrum fyrirtækjum sem nefndin teldi að ættu að bæta ríkissjóði það tjón sem ríkissjóður varð fyrir í hruninu eins og Frosti Sigurjónsson formaður nefndarinnar orðaði það þegar hann færði rök fyrir níföldun skattlagningar á þessa aðila.
Niðurstaða þessarar einstæðu dómsmeðferðar Alþingis er að þrír viðskiptabankar af fjórum eigi að greiða ríkinu bætur fyrir það tjón sem ríkissjóður varð fyrir í hruninu. Einn viðskiptabanki er saklaus að mati þingsins og sömuleiðis allt sparisjóðakerfið.
Þessir þrír meintu tjónvaldar voru þó allir stofnaðir eftir hrunið, að atbeina og með þátttöku ríkissjóðs sjálfs. Enginn hluthafi gömlu bankanna virðist eiga hlut í þessum nýju bönkum.
Helstu eigendur tveggja þeirra eru þeir sem töpuðu mestu á því að lána gömlu bönkunum fé.
Þannig að þeir sem urðu fyrir mestu tjóni við fall gömlu bankanna eiga nú að greiða ríkissjóði bætur fyrir skellinn.
hvells
Sunnudagur, 16. febrúar 2014
Sigmundur gerði lítið úr sjálfum sér
Þetta viðtal við Sigmund hjá Gísla var með ólíkindum.
Sigmundur var einsog lítill krakki þarna í settinu og mjög viðkvæmur og sár við öllu sem snerti hann.
Hann gat ekki svarað neinni spurningu án þess að væla
hvells
Ekki nýr ráðherra á næstu vikum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |