Einu sinni í viðbót

Ef ég heyri stjórnmálamenn nefna "græna hagkerfið" aftur á nafn þá æli ég á lyklaborðið

hvells


mbl.is Skúli tekur fimmta sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þétting byggðar

Það er mjög jákvætt að loksins eru við völd menn sem vilja þétta byggð.

Það hefur verið stórskaðlegt fyrir almenning og borgarsjóð að í rvk sé ávalt byggt austar og austar.

Það hefur skapast 30mínútna umferðarteppa á hverjum einasta morgni fyrir fólk sem er að fara í vinnuna.

Þetta er griðarlega kostnaðarsamt.

En svo betur fer eru menn loks að vakna.

Dagur B má eiga það.

hvells


mbl.is Alvogen var boðin lóð í Hádegismóum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð lausn hjá Illhuga

Þetta er mjög góð lausn og ætti að vera ásættanlegt fyrir báða aðila.

Stytta framhaldsskólann í 3ár og nota hagræðinguna í að greiða kennurum hærri laun.

Allir græða.

Skattborgarar, kennarar og ekki síst nemendur sem útskrifast fyrr einsog nágrannalöndin okkar.

hvells


mbl.is Illugi vonar að svigrúm verði nýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög algengt að gefa Mixtape

Það er mjög algengt að gefa út frítt í dag.

Þetta er gert til að búa til buzz og ná til sem flestra. Í framhaldi má þá gefa út breiðskífu.

Í mixteipum er meira frelsi en breiðskífa. Getur leyft þér meira.

Þau eru ekki að finna upp hjólið.

http://www.hotnewhiphop.com/

 

http://www.datpiff.com/

 

Hérna er sem dæmi tvær síður sem artistar gefa út frítt. Oftast mixtape. Margir eiga það að þakk frægð sína.

kv

Sleggjan


mbl.is Highlands fá tæpar 100 milljónir króna fyrir myndband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem HH fatta ekki

Ég fylgist með Facebookhóp Hagsmunasamtaka Heimilanna.

Þeir átta sig ekki á því að hægt er að taka óverðtryggt lán en þá taka þau verðbólguskotin þá og þegar.

 Hversu oft les ég "Ég borga og borga á hverjum mánuði samt hækka lánin mín". Þeir halda í alvöru að með því að afnema verðtryggingu stendur mánaðarleg greiðslubyrði í stað og engin verðtrygging. Það er einfaldlega óraunhæft og ákveðin skortur á þekkingu.

 Fólk má alveg rölva í sínum vinahóp og á Facebook en þau eru í leiðinni ekki í tengslum við raunveruleikan.

 

Hægt er að fylgast með umræðunum hér: https://www.facebook.com/groups/heimilin/?ref=ts&fref=ts

 

Annars hefur Vilhjálmur formaður HH sagt að verðtryggja eigi laun og hafa verðtryggingu. Þetta sagði hann fyrir 1-2 mánuðum. Frekar stór yfirlýsing hjá háttsettum manni innan samtakanna.

kv

Sleggjan


mbl.is Greiðslubyrðin er of þung
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvætt skref

Þetta skapar atvinnu.

Minnkar mengun og eykur sjálfbærni.

Þetta sparar gjaldeyri þjóðarbúsins vegna þess að hjól eru vistvæn og nota ekki bensín.

Þetta eykur ráðstöfunarfé heimilana vegna þess að resktur bifreiðar er dýr.

Borgarstjórn eru að gera góða hluti.

hvells


mbl.is Hjólastígar fyrir hálfan milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ISLAM

Kynbundið ofbeldi er algengast í Íslömskum samfélögum þar sem réttur kvenna er troðinn niður.

Þessvegna er mjög sérkennilegt að VG og XS stiðja Palestínu fram í rauðann dauðann.

 Með því eru þessir flokkar að gefa kynbundnu ofbeldi gæðastimpil.

hvells


mbl.is Dansað fyrir betri heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frosti Sigurjónsson á móti réttarríkinu

http://andriki.is/post/76568551219

Karl Garðarsson þingmaður Framsóknarflokksins spurði að því á dögunum hvort vinstri grænir þekktu ekki mun á dóms- og löggjafarvaldi. Tilefnið var að flokksráðfundur VG hafði samþykkt ályktun um „að ákærur á hendur þeim níu einstaklingum sem voru á meðal þeirra sem héldu uppi friðsömum mótmælum í Gálgahrauni verði afturkallaðar.“

Karl spurði því:

Og hvert er Vinstri hreyfingin – grænt framboð eiginlega að fara? Hefur þessi flokkur aldrei heyrt getið um aðskilnað löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds? Hér hikar flokkurinn ekki við að ganga inn á svið ákæruvaldsins og færa það undir hið pólitíska vald.

Við þessa ádrepu Karls varð Vefþjóðviljanum hugsað til viðtals við Frosta Sigurjónsson alþingismann fyrir mánuði. Þar var Frosti einu sinni sem oftar að útskýra níföldun á bankaskatti á valin fjármálafyrirtæki og undanþágu fyrir önnur:

Tilgangur þessa skatts er það bæta ríkissjóði það tjón sem ríkissjóður varð fyrir í hruninu. MP banki er vissulega ekki einn af þeim bönkum sem tók þátt í því tjóni og það hefði mátt færa rök fyrir því að hann ætti alls ekki að greiða neinn skatt en hann greiðir samt skatt samkvæmt þessu. Honum er ekki algerlega hlíft.

Hér lýsir Frosti því hvernig löggjafinn tók sér dómsvaldið sem venjulega kveður upp úr um hvort menn fái bætur fyrir tjón. Alþingi virðist hafa ákveðið að sækja „bætur“ til nokkurra aðila án þess að fara hinu hefðbundnu leið að sækja þær fyrir dómi. Hin vandaða viðskiptanefnd Alþingis, undir forystu Frosta, rannsakaði málið og gerði tillögu um hæfilegar bætur til ríkisins og hver ætti að greiða þær. Ekki var talin þörf á að hinir meintu tjónvaldar fengju að halda uppi vörnum.

Karl Garðarsson og félagar hans á löggjafarsamkundunni samþykktu svo bótakröfuna.

 

hvells

 


Auðveld lausn

Það er mjög auðveld lausn til á þessu vandamáli. Með því að afnema lágmarkslaun þá geta atvinnurekendur ráðið ungmenni í vinnu og með því öðlaðst ungmenni starfsreynslu sem gefur þeim kröfu um hærri laun síðar meir.

Þetta er mun skárri lausn heldur en að láta ungmennin sitja heima atvinnulaus með tilheyrandi volæði.

hvells


mbl.is 1.339 ungmenni án atvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. febrúar 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband