Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Sunnudagur, 1. júní 2014
Hvaða pakk er þetta?
Maður er frekar hugsi.
Hvaða lið er þetta sem er að láta sjá sig í þessari kosningavöku?
Ég horfi á þetta í beinni og í viðtali sást bara fólk eldri en sextugt og mjög dúbíus lið.
Lið sem ég mundi ekki treysta fyrir að passa krakkann minn.
Það er eitthvað að.
Maður er með mikið óbragð í munni og Sveinbjörg ætti að taka undir það.... ef hún er með eitthvað sjálfsálit.
hvells
![]() |
Sveinbjörg þakkaði fjölmiðlum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 31. maí 2014
Jafnréttti
Samkynhneigðir njóta jafnréttis hér í samfélaginu lagalega. Einnig eru mjög litlir fordómar gagnvart samkynhneigðum.
Framhaldskólar koma fram við samkynhneigða og gagnkynhneigða á sama máta. Semsagt, skiptir engu máli hvaða kynhneigð þú hefur, færð ekki forréttindi og ekki heldur mismunað.
Þessi niðurstaða hans ætti að vera fagnaðarefni. Framhaldskólar halda áfram á sömu braut.
Annars ef samkynhneigðir vilja fá stuðning eða aðstoð til að koma út úr skápnum. Eða einfaldlega vilja ræða við einhvern þá er hægt að gera það innan skólans hjá kennurum eða ráðgjafa þar. Einni eru samtökin 78 alltaf með dyrnar opnar og veita goða ráðgjöf hvar hægt er að leita.
Ef þessi doktor er að tala um þetta sem eitthvað vandamál. Þá er hann á miklum villigötum.
kv
Sleggjan
![]() |
Lítið gert fyrir hinsegin nemendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 31. maí 2014
Öðruvísi pólítíkus
Flestir ef ekki allir stjórnmálamenn gerast ríkisstarfsmenn eftir stjórnmálaferil sinn. Meira segja argasta hægri fólk er á ríkisspenanum allt sitt líf. Kaldhæðnin mikil þar.
Jón Gnarr skellir sér í einkageirann með einkaframtaki. Hann valdi þá leið að gefa út bók erlendis.
kv
Sleggjan
![]() |
Bók Jóns Gnarr á toppnum í Þýskalandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 31. maí 2014
Drífið ykkur að kjósa og hafið þetta í huga
Svona ummæli skal ekki gleyma. Hún Kristín vill mismuna trúarsöfnuðum. Hún vill semsagt ekki að RR sé með lóð en er hlynnt að múslimar fái lóð. Það er klár mismunum og ber að fordæma. Geri ég það hér með.
kv
Sleggjan
![]() |
Kjörsókn í Reykjavík lakari en síðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 31. maí 2014
Selt!
Uppá síðkastið hefur Framsóknarflokkurinn selt ömmu sína fyrir atvkæði.
Það er öllu tjaldað til.
Það er hinn nýji Framsóknarflokkurinn.
Ef Sveinbjörg kemst í borgarstjórn verður það með miklu óbragði.
Allir sómakærir Framsóknarmenn (þeir er þó fáir) eru sammála því.
hvells
![]() |
Sveinbjörg kaus í Laugardalshöllinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 31. maí 2014
Virkni er velferð
"virkni er velferð"
Þetta sagði Halldór í kosningasjónvarpinu á RÚV.
Hann var auk þess eini frambjóðandinn sem ætlar að lækka skatta.
Það er greinilegt að Sjálfstæðisflokkurinn er annt um velferð Reykjavíkurborgarbúa.
Þessvegna ætla ég að kjósa XD.
hvells
![]() |
Halldór bjartsýnn og hnarreistur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 30. maí 2014
Virðingavert
Í raun er það mjög virðingavert að Jón skuli stíga til hliðar. Þá er hann að sanna það að hann var að berjast fyrir hugsjón en ekki þægilega innivinnu einsog 95% af stjórnmálamönnum.
Flottur kallinn.
hvells
![]() |
Hyggst hætta á Alþingi eftir ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 30. maí 2014
Gangslaus ríkisstofnun
Hvað gerir Jafnréttisstofa?
Er þetta hæft starfsfólk sem er að vinna hjá þéssari ríkisstofnun?
Ég ætla rétt að vona að þetta er ekki rekið með skattfé.
Fáránleg "könnun" voru þessar spurningar bara senda í tölvupóst?
Hvað eru helstu niðurstöður og hvers erum við vísari? Hver var markmiðin með könnuninni til að byrja með.
Svo gátu starfsmenn Jafnréttisstöðu ekki einusinni unnið úr svörunum sjálf. Það þurfti prófessor frá HÍ til að gera þetta fyrir þá...og væntanlega fékk borgað fyrir.
Eftir stendur konstnaður Jafnréttisstofu og vanhæfir starfsmenn þess.
Það þarf að leggja þessa stofnun niður og nota peningana í heilbrigðiskerfið. Þar sem það kemur að gagni.
hvells
![]() |
Eru óánægð með launin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 29. maí 2014
Lebron gagnrýndur fyrir að gefa boltann á Bosh
Lebron gagnrýndur fyrir að gefa boltann á Bosh
Samt var það réttur leikur hjá honum.
Sófasérfræðingarnir eru bara í ruglinu.
kv
Slegg
![]() |
George og West afgreiddu Miami |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 29. maí 2014
Þegar velja á um tvo slæma kosti
Ef þú fengir að velja lesandi góður um tvo valkosti:
1) VG fær mann inn og Framsókn engan.
2) Framsókn mann inn og VG engan.
Ég vel frekar valkost 2. Framsókn1 og VG engan. VG er svo hrikalega slæmur flokkur í borginni. Sóley er að lofa peningum hægri vinstri, og það sorglega er að maður númer tvö. Líf er engu skárri, jafnvel verri. Það er bara sirkus að hlusta á útvarpið þegar hún er í viðtali.
Annars vil ég helst losna við báða flokkana úr borgarstjórn.
kv
Sleggjan
![]() |
14.376 búnir að kjósa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |