Luxemborg er smáríki líkt og Ísland með um 550.000 íbúa og þar af eru um 45% útlendingar, en þ.a.l. að sannir Luxemborgarar líkt og Framsóknarmenn kalla víst innfædda eru rétt um 300.000 eða svipað margir og Íslendingar eru. Luxemborg er þannig aðeins um 0,67% af íbúafjölda fjölmennasta ríkisins, Þýskalands (82 milljónir) og um 0,01% af íbúafjölda ESB (506 milljónir).
Þrátt fyrir svokallað áhrifaleysi lítilla ríkja og lýðræðishalla er æðsta embætti framkvæmdastjórnar ESB nú frá þessu litla landi, sem er svipaður íbúafjöldi og býr í borgarinni Gautaborg í Svíþjóð. Það væri gaman að ímynda sér hvernig íslenskur leiðtogi tæki sig út í Brussel sem forseti ESB, t.d. Árni Páll Árnason, Bjarni Benediktsson eða jafnvel Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.