Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Mánudagur, 15. september 2014
Nýtt vefsvæði S&H
Við höfum fært okkur á nýtt svæði.
Smá breyting á ritstjórn. Þruman dettur úr ritstjórn. Áfram verða Hvellurinn og Sleggjan.
Bloggin verða tíðari, mætum öflugri til leiks. Hvetjum fólk að breyta bookmarkinu á hið nýja vefsvæði:
Hægt að að smella HÉR
Við munum halda áfram fjörlegum og fræðilegum umræðum hér á netinu og njóta okkar táningafrelsis sem er varin í stjórnarskránni.
Kveðja
Sleggjan og Hvellurinn
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.9.2014 kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 14. september 2014
Sjálfsagt
Það er sjálfsagt að Lykill bjóði vöru sem neytendur vilja.
Almenningur hefur frjálsan vilja. Ef þeir vilja taka 90% lán þá gera þeir það en eflaust er skynsamara að taka 50% lán þá gera þeir það lika.
Enginn ástæða til þess að láta ríkisvaldið hafa vit fyrir fólki.
hvells
90% lán til bifreiðakaupa komin aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 14. september 2014
Skaðsemismenn
Það er greinilegt að AfD vilja veita sínu eigin landi miklum skaða.
"helsta stefnumál flokksins er að Þjóðverjar segi skilið við evruna og taki upp þýska markið sem gjaldmiðil sinn á nýjan leik."
Þýskaland er útflutningsdrifið hagkerfi og er í betri stöðu en flest ríki ESB. Ein ástæðan fyrir þessu iðnveldi er Evran. Evran er mun lægri skráð fyrir Þýskaland en ella ef þeir væru með þýska markið. Þýska markið hefði verið búið að hækka gríðarlega og skaða samkeppnisstöðu Þjóðverja, auka atvinnuleysi og minnka gjaldeyristekjur.
en þetta er bara 10% óánægðar atkvæði. sem er ekki mikið
hvells
Þýskir evruandstæðingar í sókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 14. september 2014
Óvinur staðreyndana
Það er ljóst að Alex Salmond beytir hefðbundnu lýðskrumi í sínum málflutningi.
Hann hefur náð því að tengja heilbrgiðis og velferðarkerfið við sjálfstæðisbaráttuna. Fólk sem vill vera áfram í Bretlandi eru sjálfkrafa stimplaðir sem óvinir velferðarkerfisins.
Þetta er óheiðarlegur málflutningur sem því miður... svínvirkar. Enda eru kjósendur upp til hópa misgáfað.
BBC upplýsti þeirri staðreynd að Royal Bank of Scotland mun flytja höfuðstöðvar til London ef Skotar segja JÁ.
Í stað þess að mótmæla þeirri staðreynd, komast að því hvort það sé eitthvað til í þessu eða koma með rök fyrir því hvernig þeir ætla að díla við þetta vandamál. En nei... þeir taka smjörklýpuna á þetta. Mótmæla fréttaflutningi BBC í stað þess tækla umræðuna.
Þetta minnir mig óendalega mikið á vilteysingana í Heimssýn.
hvells
Saka BBC um hlutdrægar fréttir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 14. september 2014
Fumkvöðull
Ég vill byrja á því að þakka Margréti Pálu fyrir gríðarlega gott starf. Hún er mesti frumkvöðull okkar Íslendinga á 21.öldinni.
"
Hægri menn hafa tekið hugmyndum mínum vel en vinstri menn, gamlir vinir mínir og samherjar, hafa aftur á móti tekið þeim eins og ég vilji ameríska einkavæðingu þar sem foreldrar borga og fyrirtæki græða. Ég er um þessar mundir að eiga mjög hreinskiptin samtöl við vini mína þar sem ég segi þeim að það særi mig óendanlega sem sjálfstæða félagshyggjukonu að fólk vilji ekki skoða innihaldið í þessum nýja sjálfstæða rekstri heldur horfi til Ameríku þar sem foreldrar eru jafnvel að borga allan kostnað við menntun barna sinna.
Á sínum tíma var Garðabær, undir stjórn Ásdísar Höllu Bragadóttur sjálfstæðiskonu, eini aðilinn sem vildi vinna með mér á grunnskólastigi. Báðum þótti okkur óskaplega merkilegt þegar við settumst niður árið 2003, hún bæjarstjóri í Garðabæ, íhaldsbælinu sjálfu, og ég, gamli komminn, og ræddum þann möguleika að búa til sjálfstætt starfandi skóla þar sem ég hefði frelsi um það sem ég vildi gera og fengi sama fjárframlag og aðrir skólar í bænum. Það voru sjálfstæðismenn sem vildu fara þessa leið, vinstri menn fóru í vörn. Í öllum sveitarfélögum þar sem ég kom nálægt leikskólarekstri hélt ég alltaf sömu ræðuna: Ég er tilbúin að opna tilraunskóla sem prófar sig áfram og gerir nýja hluti, bakkið mig bara upp. Hvað heldurðu að ég hafi oft fengið nei?"
Það er mjög merkilegt að sjá að vinstra fólkið er ekki að hugsa um börnin í landinu. Þeir hafa tekið þann pól í hæðina að viðhalda kerfinu og berjast gegn jákvæðum breytingum.
hvells
Skólakerfið er á niðurleið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 14. september 2014
Rýnum í tölurnar
"Árið 2011 nýtti íslenska ríkið 9.138 bandaríkjadali (1,093 milljón ISK) á ári í menntun hvers leikskólabarns og 10.339 bandaríkjadölum (1,244 milljón ISK) í menntun hvers grunnskólabarns. Samkvæmt skýrslu OECD voru útgjöld Íslands á hvert barn í þessum flokkum þau önnur hæstu á Norðurlöndunum það ár."
Fyrirsögnin er í sjálfu sér kolvitlaus.
Við eyðum hvað mest í leikskóla og grunnskólakerfið á meðan háskólarnir eru sveltir. Afhverju er þetta þannig? Jú lýðskrum og skríllinn eru víst með atkvæði.
Hvernig stendur á því að við eyðum hvað mest í gunnskólann af öllum OECD löndunum en árangurinn er hvergi. Hræðileg útkoma í PISA prófunum og 1/3 af drengjum eru ólæsir eftir 10ára nám.
hvells
Ísland fjárfestir minnst í menntun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 14. september 2014
Sorgardagur
Þetta er mikill sorgardagur fyrir Svíþjóð. Það er með ólíkindum að Svíar skulu kjósa yfir sig vinstri stjórn. Þeir hafa greinilega ekki lært af okkur Íslendingum hvernig vinstri stjórnin hagaði sér í fimm ár eftir hrun.
Ég er ekki að sjá að hagvöxtur í Svíþjóð mun aukast með vinstri stjórn.
Þetta minnir á Hollande vinstri stjórn í Frakklandi sem hefur nánast rústað efnhagslífinu þar í landi.
hvells
Vinstriflokkarnir með 44,8% fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 14. september 2014
áhugavert
"Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar, sendi í dag bréf til Velferðarvaktarinnar þar sem farið er þess á leit að sérstök úttekt verði gerð á áhrifum fyrirætlunar ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á matvælum og öðrum vörum í neðra þrepi virðisaukaskatts frá sjö prósentum upp í tólf prósent."
Ég fagna þessari úttekt. Hún mun leiða til þess að staðfesta betri lífskjör þjóðarinnar. Enda falla niður vöurgjöld og VSK lækkar á langlfestum vörum á Íslandi.
Það væri kannski áhugavert að skoða samhliða þessu hversu mikil skattbirgði hefur verið komið á Íslendinga þegar Steingrímur J var fjármálaráðherra.
hvells
Úttekt á hækkun matarskatts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 14. september 2014
Peningar fólksins
Alþingismenn skapa engin verðmæti. Þeir eru á ríkisspenanum og gera verðmæti upptæk en skapa ekki neitt í staðinn.
Þessvegna er mjög einkennilegt að Frosti sé að tala með þeim hætti að neytendur eiga að borga meira í kerfið.... .. með tilheyrandi verðbólgu og hækkun verðtryggða lána. Enda mælist sykraðar vörur í neysluverðsvísitölunni.
Frosti bendir á að sykurskattur í 20ár er jafnt og Landsspítali. Með þeim rökum þá væri alveg eins hægt að fjórfalda þennan sykurskatt og byggja Landsspítalann á fimm árum.
Þetta snýst allt um virðingu fyrir skattpeningum og átta sig á því að það er almenningur sem skapa verðmætin og almenningur á að halda eftir sem mestu af sínum eigin verðmætum sem þau sjálf sköpuðu.
hvells
Gæti borgað nýjan Landspítala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 14. september 2014
Virkni er velferð
Best væri að sveitafélögin og ríkið taki höndum saman og virki atvinnuleytendum.
Að vera atvinnulaus í þrjú ár er ekki eðlilegt ástand. Við þurfum að leggja meira þrótt í að hvetja fólk til þess að taka þátt í atvinnulífinu.
Vinna göfgar manninn.
hvells
Afkoma atvinnuleitenda í uppnám | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |