Miðvikudagur, 6. nóvember 2013
Kaldhæðnisleg
Kaldhæðnislegt er að þeir sömu sem eru á móti ESB og vilja styrkja í staðinn sambönd við Kína og Indland eru þeir sem eru mest á móti frjáfestingum hjá Kínverjanum Núbó.
kv
Sleggjan
Þriðjudagur, 5. nóvember 2013
núnú?
Það er mjög sérstakt að formaður VG viðurkennir að það felsit ákveðnir hvata við að lækka skatta og það letur fólk að hækka skatta.
Það er allavega góð byrjun að VG kapparnir viðurkenna þetta núna loksins.....
hvells
![]() |
Skattafrádrátt frekar en refsingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 5. nóvember 2013
Sönnun
Þetta er enn ein sönnun þess að færa flugvöllin til Keflavíkur og byggja í Vatnsmýrinni og þétta byggð.
Þá leysist umferðarvandinn að miklu leyti.
hvells
![]() |
Mikil aukning á umferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 5. nóvember 2013
Noregur
NEI sinnar halda því fram að ESB sé að beyta sér gegn Íslandi að meiri krafti.
En staðreyndin er sú að Norðmenn eru miklu óvægari í garð Íslendinga og sýna vígtennurnar.
Þvert á það sem NEI sinnar halda fram.
hvells
![]() |
Reiðubúnir að beita sér gegn Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 5. nóvember 2013
já....
Ég hef nú unnið frá 8 að morgni til miðnættis oft og mörgum sinnum.
Það kemur bara regluelga fyrir..... maður tekur fjórar "tarnir" á ári þar sem er mikil vinna.
Og ekki þarf ég sérstaka nefnd á launum til þess að gefa mér að borða
http://vikudagur.is/vikudagur/nordlenskar-frettir/2013/05/29/steingrimur-j-gleymdi-ad-borda-heilu-dagana
hvells
![]() |
Næstum jafn frægur og Ólafur Ragnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 5. nóvember 2013
Sammála Vilhjálmi
Þessi bloggsíða hefur tönglast í færslum og athugasemdarkerfum það sem Vilhjálmur nefnir.
Það er:
Það þýðir ekki að heimta allt og sýna svo enga ábyrgð í að fjármagna það.
Ef einhver heimtir eitthvað. Þá skal einfaldlega segja hvar á að skera niður og hvar á að hækka skatta.
kv
Sleggjan
![]() |
Vill að þingmenn sýni kjark |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 5. nóvember 2013
Hver er Sigrún Magnúsdóttir?
Sigrún Framsóknarkona tjáði sig á þingi í dag.
Hennar ályktun fyrir ástæðunni af hverju SJS og Össur töluðu á móti forsetandum var vegna þess að þeir væru að verja Landsdómsálið.
"Á þingi í dag sagði Sigrún að tilgangur þeirra væri eflaust að réttlæta störf sín og framgöngu í Landsdómsmálinu. "
Bara heimskuleg kenning svo ekki sé meira sagt.
kv
Sleggjan
![]() |
Lýðræðinu ekki til framdráttar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 5. nóvember 2013
Frábær þróun
Eitt skrefið í að gera strætó að raunhæfum kosti á höfuðborgarsvæðinu.
Í staðinn fyrir að keyra er hægt að setjast niður í rólegheitunum í strætó og vafra á netinu.
Þetta þarf ekki að kosta neitt fyrir Strætó. Það þarf ekki nema einn Vodafone límmiða bakvið hvern bíl til þess að þetta sé frítt. Smá spons og málið dautt.
Næst er að fjölga forgangsakgreinum svo möguleiki sé á alvöru tímasparnaði. Þá fyrst ætti fjöldinn sem notar strætó aukast gríðarlega. Í takt við þéttingu byggðar.
kv
Sleggjan
![]() |
Strætó nettengdur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 5. nóvember 2013
Facebook hlutabréfin í fínum málum
2012 var ekki uppáhaldsárið hjá Facebook. Þeir fóru á markað á alltof háu verði (sögðu flestir) og féllu mikið í kjölfarið af skráningu.
Fjárfestar sem hugsa til lengri tíma en nokkra mánuði hafa notið ávöxt á fjárfestingunni. Hver veit nema Facebook bréfin muni hækka enn frekar.
Hægt að stækka mynd með að smella á hana.
kv . Sleggjan
Þriðjudagur, 5. nóvember 2013
Okkar "elskulega" króna
Írland og Ísland var með ofvaxið bankakerfi og lága fyrirtækjaskatta og mikið efnahagslegt frelsi.
Eini munurinn var að Írland var í ESB og með Evru á meðan Ísland var berstrípað og óvarið.
Sigmundur Davíð sem er sjálfskipaður sérfræðingur í efnahagsmálum telur að krónan hefur verið bjargvættur.
En því miður er raunveruleikinn ekki sá sem Sigmundur heldur fram.
Hér má sjá landsframleiðslu á mann ef við miðum við raunverð framleiðsluþátta. Í stuttu máli er Ísland gríðarlegur eftirbátur þrátt fyrir gjaldeyrishöft og gengsifall.
Hér sjáum við atvinnuleysi mælt í vinnustundum. Þvert á það sem NEI sinnar hafa haldið fram þá hefur vinnan minnkað gríðarlega hér á landi. Þó að atvinnuleysið hefur verið lítið miðað við Írland þá er þessi mælikvarði sláandi.
Þrátt fyrir okkar "elskulegu" krónu.
hvells
![]() |
Hagvaxtarspá lækkuð fyrir Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |