Miðvikudagur, 27. ágúst 2014
Óábyrg meðferð á almannafé
Þú ræður ekkert tvo sérfræðinga ÁÐUR en þú flytur starfsemina.
Nær væri að flytja starfsemina og svo ráða inn starfólk.
Þetta er enn eitt dæmi um að möppudýrin í kerfinu kunna ekki að fara með skattfé almennings.
Þeir eru alveg sama þegar þetta eru ekki þeirra eigin peningar heldur peninga fólksins í landinu.
Svo mundi aldrei gerast í einkafyrirtæki.
hvells
Flytja þrátt fyrir mótmæli nágranna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 27. ágúst 2014
Alveg rétt hjá Hönnu
Þetta er alveg rétt hjá Hönnu Birnu.
Umboðsmaður Alþingis er á vafasamri vegferð. Hann gerði ekkert í fjögur á þegar Seðlabankinn braut gróflega á Heiðari þegar hann sóttist eftir að kaupa Sjóvá.
En öll orka þessa manns fer í að pönkast í Hönnu Birnu.
Umboðsmaður Alþingis verður að útskýra afhverju þessi munur er á málunum tveim.
hvells
Eigum við að treysta þessu liði? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 27. ágúst 2014
Var ekki Icesave búið mál?
Hvar eru snillingarnir sem segja að Icesave skuldin hvarf við þjóðaratkvæðagreiðsluna?
Svo gengur krafan kaupum og sölum.
Snillingar.
kv
Slegg
Hollenska Icesave-krafan seld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 26. ágúst 2014
Markaðurinn ræður sér sjálfur
Markaðurinn ræður sér sjálfur. Ef eftispurn er fyrir líkamsræktarstöð á þessum stað þá mun ein slík opnast. Kannski þessi Hildur vilji ekki bara slá til og opna eina slíka?
Þetta hefur verið reynt. Planet Pulse opnaði stöð í miðbænum (langt síðan reyndar) og sú stöð var ekki lengi að fara á höfuðið. Ef markaður væri fyrir líkamsræktarstöð þá einfaldlega væri búið að opna eina slíka. Skortur á bílastæðum er stór ástæða, þó við viljum trúa að miðbæjarrotturnar nenni að labba langar vegalengdir með þunga íþrottatösku þá er það ekki þannig.
Fyrir utan kannski þá sem búa mjög nálægt eða vinna á Laugaveginum en það fólk er ekki að fara halda uppi líkamsræktarstöð. Svo er gefið í skyn í greininni að World Class er eina stöðin sem stendur undir leigukostnaði í miðbænum. Á þá World class að taka að sér tap á þessari stöð í miðbænum og nota hinar stöðvarnar til að borga upp þann bagga? Ekki markaðslega né fjárhagslega skynsamlegt. Eigandinn búinn að skipta um kennitölu einu sinni,kannski ekki nauðsynlegt að gera það aftur.
Svo ég endi þetta rant á skemmtilegum nótum þá er Mjölnir með fyrirmyndar lyftingaraðstöðu rétt hjá Búllunni í miðbænum af öllum stöðum. Segi ég, íbúi á Njálsgötunni og eigandi árskorts í World Class
kv
Sleggjan
Hnébeygjur í stað bjórdrykkju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 26. ágúst 2014
Stormur í vatnsglasi
Þetta mál er komið útí rugl.
Eitt minnisblað á opnu drifi sem einhver lak út.
Ekki mikið mál.
Stórnmálamenn hafa gert verri hluti en þetta.... t.d að hækka skatta á alþýðu landsins.
hvells
Svo kom gusa af gagnrýni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 26. ágúst 2014
Vegferð
Nú veit ég ekki á hvaða vergferð þessi embættismaður er á.
Finnst allar hans gjörðir frekar misheppnaðar.
Framkoma hans við Hreiðar fjárfestir sem ætlaði að kaupa í Sjóvá.
Og svo vinnubrögðin hans varðandi lekamálið.
Hann á að segja af sér sem fyrst.
Hann er ekki að vinna fyrir fólkið í landinu.
hvells
Upplýsir og fræðir Sigmund Davíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 26. ágúst 2014
Kreppan er búin
Það er augljóst að kreppan er búin.
Nú getur enginn sagt "fókið í landinu" lengur.
Eða "hér varð hrun"
menn eru að fara til útlanda í gríð og erg.
Engin kreppa þar á bæ.
hvells
Íslendingar meira til útlanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 26. ágúst 2014
Báknið bólgnar
Þetta er gríðarleg vinbrigði. Þessi "hægri menn" eru að stækka báknið útaf eitthvað mál er pólítiskt erfitt.
Þetta er sönnun þess að þeir eru ekki að berjast fyrir sínum hugsjónum.
Hugsjónalausir bleyður.
Afhverju eru þeir í stórnmálum?
hvells
Sigmundur fer með dómsmál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 26. ágúst 2014
Alls ekki
ÉG veit ekki í hvaða sápukúlu þessi drengur er í.
"Njóti Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, áfram trausts Alþingis mun traust til lögreglunnar í landinu tapast."
Alls ekki... ég mun treysta lögreglunni til allra góðra verka. Þetta mál hefur ekkert áhrif á það.
hvells
Lögreglan mun tapa trausti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 26. ágúst 2014
Vinstri Navíistarnir komnir á kreik aftur
Meirihlutinn af meðlimum í þessari hreyfingu hafa aldrei heimsótt Palestínu eða Ísrael. Vita ekkert hvað er í gangi, hinsvegar lesa þau íslenska fjölmiðla á borð við DV og taka það sem þar stendur sem heilagan sannleik.
Gott og vel þeir ætla sniðganga ísraelskar vörur. En vita þau að Palestínumenn vinna "á gólfinu" í þessum verksmiðjum oftast og framfleyta sínum fjölskyldum í Palestínu með tekjunum? Eða vita þau almenn að arabar eru um 20% landsmanna í Ísrael og vinna þeir oftast í þessum störfum sem þessir íslensku navíistar vilja útrýma?
Það er ekki heil brú hjá þessum navíistum. Þurfa aðeins stíga út fyrir þessa sápukúlu og lesa sig aðeins til. Göfgast, afla sér þekkingar.
kv
Sleggjan