Sunnudagur, 29. júlí 2012
Moody´s mælir ekki með Keynes leiðinni
http://en.wikipedia.org/wiki/Keynesian_economics
Í umræðunni hér hefur oft talað um að það skal fara Keynes leiðina.
Í stuttu máli snýst hún um að lönd taki lán og "eyða sig út úr kreppunni". Not peninginn að byggja göng, byggja vegji, styrkja innviði landsins. Fá hagkerfið á flug.
Ekki alvitlaus kenning. En ég hef ekki verið aðdáandi.
Moody´s er ekki aðdáandi, Angela Merkel, ESB leiðtogar, AGS eru ekki hrifnir af þessari leið.
Gaman væri að vita hvar þessi leið er farin í raun. Hvort þetta sé bara kenning á blaði. Og hvernig gekk.
kv
Sleggjan
![]() |
Horfurnar gætu batnað með aðhaldi í ríkisrekstri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 28. júlí 2012
Líbanir neita að æfa nálægt Ísraelum
http://www.ynetnews.com/articles/0,7340,L-4261350,00.html
Olympics: Lebanese team refuses to train near Israeli athletes
Organizers forced to put up screen between Israeli, Lebanese judo fighters after latter team refuses to share mat
"We started to practice. They came and they saw us they didn't like it and they went to the organizers," Feraro told Reuters. "They put up some kind of wall between us. Everyone went on and there was no interaction between us."
Þeir eru helviti flottir.
Svo má minnast að Saudi Arabar hóta að senda alla Olympíuþáttakendur sína heim ef keppandi má ekki vera í Hijab í Júdó
http://mbl.is/sport/frettir/2012/07/27/sadar_hota_ad_fara_heim_fra_ol/
Þeir koma með kröfur. Koma með sín gidli og ætlast til að Vestrænar þjóðir fylgja.
Það á ekki að vera þannig. Þeir skulu aðlagast.
Kv
sleggjan
Laugardagur, 28. júlí 2012
Er einhver sem vill mótmæla þessum staðreyndum?
Ef við göngum í Evrópusambandið, lækka og hverfa tollar á mat. Í staðinn fær landbúnaðurinn heimskautastyrki. Matarverð lækkar um 15-20%. Um leið batnar vöruúrval áþreifanlega.
Líka lækka vextir verulega strax og síðan meira, þegar við tækjum upp evru. Úr sögunni verða séríslenskir ofurvextir.
Viðskiptakostnaður fyrirtækja lækkar verulega og hagur fyrirtækja batnar. Erlendar fjárfestingar aukast og atvinna eflist þar með. Evrópskar framfarir munu eiga greiðari og hraðari leið inn í hina ömurlegu stjórnsýslu Íslands.
kv
Sleggjan
Laugardagur, 28. júlí 2012
Skuldari að kvarta
http://www.timarim.is/2012/07/umbodsmadur-skuldara-borgadu-bankanum-frekar-en-ad-borda-og-kaupa-lyf/
Ótalmargt í frásögn skuldarans sem meikar ekki sense.
Skuldarinn leikur fórnarlamb þar sem bankinn er vondi karlinn.
Svo er farið í fjölmiðlana og þeir lepja allt upp eftir skuldaranum. Engin gagnrýni (eins og fjölmiðlar eiga að stunda).
kv
Sleggjan
Laugardagur, 28. júlí 2012
Mikilvæg tilkynning
Það var vitað að þungaviktarlöndin í ESB mundug era allt til þess að verja Evrusvæðið. En að segja það beint út hjálpar mjög.
Hlutabréf hækkuðu.
Lánshæfið á Spáni varð betra í kjölfarið.
kv
Sleggjan
![]() |
Gera allt til að verja evrusvæðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 26. júlí 2012
Fólk fyrir bíla.
Ég stið þetta. Dekur við einabílinn er kominn útí ruglið. Svo betur fer hafa hlutirnir skánað. Eftir að laugarvegurinn lokaði fyrir bílaumferð þá hefur miðbærinn blómstrað. Til hagsbótar fyrir kaupmenn og gangandi. Loksins lítur Reykjavík út fyrir að vera heimsborg.
Framtíðin er björt. Svo betur fer er verið að byggja Landsspítalann í miðbænum svo var kosið flugvöllin burt í seinustu borgarkosningum og þar mun rísa myndarlegt hverfi í Vatnsmýrinni sem mun þétta byggð enn meira.
Reykjavík á bjarta framtíð.
hvells
![]() |
Fórna bílastæðum fyrir fólk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 25. júlí 2012
Sammála leiðarahöfundi Moggans, aldrei þessu vant
Þeir sem hafa ekki ráð að lesa leiðarann birtist hann hér:
Dýrkeyptur Rétttrúnaður
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur farið fyrir sáttaumleitunum fylkinga, sem tortryggja og hata hverjar aðrar, í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs, frá því hann hvarf úr innanlandsstjórnmálum. Hann sagði nýlega að Vesturlönd væru sem svefngenglar í afstöðu sinni til íslamskra öfgamanna. Margt bendir til að þessi orð Blairs séu engar ýkjur.
Í augnablikinu hefur hinn stjórnmálalegi rétttrúnaður snúist þannig í heiminum að rétt sé og skylt að sýna pólitískum tilvísunum öfgasinnaðra íslamista í trúarrit sín ekki aðeins eðlilega virðingu heldur ríkt tillit sem gengur miklu lengra. Slík tilvísun er talin boðleg skýring og jafnvel afsökun fyrir athöfnum, áreitni og jafnvel beinum árásum. Á sama tíma er vaxandi krafa um umburðarlyndi gagnvart þeim sem gera hríð að kristinni trú og þeim sem hana aðhyllast, og þrengt er svigrúm kristinna til að halda sínum sjónarmiðum á lofti opinberlega.
Þessari þróun til afsökunar er því gjarnan haldið á lofti að áður hafi hallinn verið allur á hina hliðina, og leiðréttingin lúti lögmálum pendúlsins sem sveiflist nú rækilega yfir miðjuna. En smám saman muni draga úr kasti hans. Ekki er víst að sú líking eigi endilega við um þessa þróun. Þá er lítill efi á að andstaða í garð Ísraelsríkis fer vaxandi á Vesturlöndum og er að nálgast að fá stöðu stjórnmálalegs rétttrúnaðar. Réttur gyðinga til tilveru þar, svo ekki sé minnst á til ríkis, er dreginn í efa af meiri ákafa en fyrr, ár frá ári og margvíslegum bábiljum er haldið á lofti eins og um óyggjandi staðreyndir væri að ræða.
Ekkert er gert með ábendingar um að Ísrael hafi haldið fast við lögmál lýðræðisins þrátt fyrir að landið búi nánast við eilíft stríðsástand þar sem nágrannaþjóðir neiti að viðurkenna tilveru þess eða hafi uppi heitingar um að ýta gyðingaþjóðinni á haf út. Afstaða Íslands til stöðunnar í þessum eldfima heimshluta hefur umturnast án þess að nokkur raunveruleg umræða, hvað þá djúp, hafi farið fram um þá stefnubreytingu. Ísland skipar nú stöðu við hlið Hamas-hreyfingarinnar, rétt eins og lögmæti hennar sé annað og betra en Ísraels.
Íslenska utanríkisráðuneytið er á miklu niðurlægingarskeiði um þessar mundir. Faglegri forystu þess í utanríkismálum er fjarri því að vera treystandi eins og iðulega er undirstrikað með ótrúlega einfeldningslegum skýringum á sjónarmiðum Íslands og afstöðu til einstakra þátta utanríkismála. Auðvitað hlýtur stór þáttur þess hve illa er komið að færast á óburðuga og lélega leiðsögn. En stundum er eins og sakleysisleg einfeldni fremur en alþjóðlegt reynsluleysi ráði för í þessu mikilvæga ráðuneyti.
En einfeldni í bland við stjórnmálalegan rétttrúnað er einkennandi víðar í stjórnkerfinu um þessar mundir. Afstaðan til flóttamanna, sem virðist vera eitt af þessum inn-málum, er dæmi um þetta. Hingað koma flóttamenn sem lýsa því yfir í sjónvarpi, eins og einn þeirra gerði að hann hafi upphaflega flúið drykkfelldan föður í Alsír og hafi haldið til í fjölmörgum löndum Evrópu áður en hann flúði til Íslands.
Samningar sem Ísland er aðili að eru skýrir. Þeir segja að senda eigi slíka flóttamenn án ástæðulausrar tafar til þess staðar sem þeir komu síðast frá. En það gengur gegn tískunni og pólitíska rétttrúnaðinum að fylgja umsömdum reglum.
Flóttamennirnir koma sumir á fölskum skírteinum og það þykir siðferðislegur glæpur að mati háttsettra embættismanna að neita að trúa því að þeir séu börn! Öll þessi mál eru komin í miklar ógöngur og Útlendingastofnun er að bresta undan þeim.
Nýlega brutu tveir flóttamenn sér leið inn í íslenska þotu í Keflavík með miklum kostnaði og álitshnekki fyrir alla sem urðu fyrir því. Svo sagði í fréttum: Þeir komu báðir til landsins í apríl, annar með Norrænu til Seyðisfjarðar en hinn með flugi í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Frá þeim tíma hafa þeir verið nokkuð til umfjöllunar í fjölmiðlum, en við komuna til landsins þóttust þeir vera börn að aldri en aldursgreining hjá lækni bendir til annars. Þeir voru síðan handteknir tvisvar í júní við tilraunir til að komast um borð í millilandaskip í Reykjavíkurhöfn, þá voru þeir teknir um borð í flugvélinni á Keflavíkurflugvelli og einu sinni eftir það við að reyna að komast um borð í skip í Reykjavík. Þá er annar mannanna grunaður um aðild að tveimur þjófnuðum frá því hann kom til landsins.
Íslensk flugfélög og flugyfirvöld gæta sín afar vel á því að fljúga ekki með óvelkomna til Bandaríkjanna vegna hárra sekta og óþæginda sem þau verða fyrir ef slíkt gerist. Hver eru viðbrögðin hér ef ferðaaðilar eru ekki gætnari en þeir eru gagnvart óvelkomnu fólki hingað sem kostar almenning offjár?
Tek algjörlega undir þetta.
Svo gerir DV mál úr þessu:
http://www.dv.is/frettir/2012/7/25/morgunbladid-hjolar-i-flottamenn/
Skoðið sérstaklega athugasemndirnar sem fylgja fréttinni.
Algjörlega samkvæmt fyrirsögninni á leiðaranum "rétttrúnaður".
Fólkið lýsir svo mikilli vanþekkingu á Ísrael. Vanþekkingu á Palestínudeilunni. En almennt færir það engin rök fyrir máli sínu.
kv
sleggjan
Miðvikudagur, 25. júlí 2012
Stefna stjórnvalda í kross
Þeir segja:
Dauðarefsing liggur við morðum í Jórdaníu. Ef um svonefnt heiðursmorð er að ræða geta dómsstólar hins vegar mildað refsinguna, ekki síst ef fjölskylda fórnarlambsins fer fram á það.
En segja svo:
Á milli 15 og 20 konur láta láta lífið í heiðursmorðum á ári hverju í Jórdaníu þrátt fyrir fyrir tilraunir stjórnvalda til að útrýma slíkum glæpum.
Viðleitni stjórnvalda að útrýma heiðursmorðum er ekki mikil þegar hægt er að milda refsinguna.
Að hægt sé að milda eru þeir í raun að samþykkja að heiðursmorð séu ekki ein alvarleg og morð. Heiðursmorð minnka ekki við það.
Ætli þetta sé ekki á orði en ekki á borði. Til að sýna vesturlöndum að þau séu að reyna að taka á þessu en engar raunverulegar aðgerðir.
Ég væri til að vita hvar blaðamaðurinn fékk þessar heimildir að í Jórdaníu hafa verið gerðar tilraunir til að útrýma morðunum. Hvaða aðgerðir? Hvaða tilraunir voru gerðar?
kv
Sleggjan
![]() |
Stakk til bana og ók yfir margsinnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 23. júlí 2012
Aðgangur í blöðin.
ef þú ert með aðgang að dv.is eða einhverstaðar þá færðu dvalarleyfi.
En ef ekki þú er þét sparkað út.
dæmin hafa margsannað þetta.
hvað er jafnræðið í því?
hvells
![]() |
Auðvitað er okkur létt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 23. júlí 2012
Bændur hata landið sitt.
Þessi stétt er sorgleg og bera ekki virðingu fyrir neinu.. hvorki lifandi né dauðu.
bændur þurfa að fara að hisja á sér buxurnar til þess að vera marktækir hérna á Íslandi
hvells
![]() |
Sauðfé á beit í óþökk Landgræðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |