Fimmtudagur, 25. október 2012
Sjálfstæðismenn í Keflavík stíga ekki í vitið
Hvernig vilja þeir afla þessa aukafjárs? Því þegar er verið að nota þennan pening sem SÁÁ er að biðja um.
Hvar á að skera niður?
kv
Sleggjan
![]() |
Reykjanesbær styður Betra líf SÁÁ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 23. október 2012
MBL byrjaði á öfugum enda
"Palestínumenn sprengdu ísraelskan hermann" gæti verið fyrirsögninn.
Ísraelar svöruðu þessari árás með loftárás á valin skotmörk sem líklega báru ábyrgð á dauða hermannsins. Varnarárás.
Utanríkisráðherra Ísrael segir líkar réttilega: we expect a severe condemnation by the EU on Hamas terrorist activity. No sovereign nation would accept attacks on its citizens. Israel has the right to self-defense.
Mynd með frétt er út í loftið. Mynd af Davíð Oddsson væri svipað heimskulegt.
kv
Sleggjan
![]() |
Gerðu loftárás á Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.10.2012 kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 23. október 2012
Össur og Gaza-lúxusinn
Hér er mynd af hótelinu sem Össur gisti á þegar hann var á Gaza:
Daginn eftir sagði hann þessi orð:
"I met the Children of Gaza whose lives are made impossible by poverty, violence and a blockade that by others than myself has been described as an open door prison".
Flottur
kv
Sleggjan
Þriðjudagur, 23. október 2012
KPMG segir að ferðamönnum muni fækka
KPMG gerðu skýrslu sambandi við skattahækkanir á gistinóttum. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að ferðamönnum muni fækka.
Sleggjan hefur ávallt verið á móti þeirri skoðun.
Velti fyrir mér hvaða forsendur KPMG gáfu sér. Lögmálið um verð og eftirspurn? Verð hækkar: Eftirspurn minnkar. Það er nú bara þannig að stundum á þetta lögmál ekki við.
Stend ennþá við það að skatturinn skal standa og ferðamönnum mun fjölga samt sem áður. Tíminn mun segja til hvort Sleggjan er að rugla eða ekki.
kv
Sleggjan
![]() |
Ráðlagt að bíða ekki með ferð til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 23. október 2012
Kappræður um utanríkismál
Málflutningur Romneys sýnir að hann vilji að USA verði einhverskonar lögregla í Mið-Austurlöndunum. Kennir Obama um ástandið í Sýrlandi. Af hverju ætti USA að finna sökina hjá sjálfum sér ef ófriður er í Sýrlandi.
USA þarf að fara frá Mið-Austurlöndunum sem fyrst. Jafnvel hætta afskiptum. Burtu frá Írak og Afganistan. USA má líka draga úr stuðning við Ísrael.
Árið 2010 studdi USA Ísrael um 2,8 milljarða dollara. Ísrael er vestrænt lýðræðisríki með góðan hagvöxt og eru að verða fullfær að standa á eigin fótum.
kv
Sleggjan.
![]() |
Obama heldur betri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 23. október 2012
Kostur er frábær viðbót í matvælabúðaflóruna
Hann selur vörur frá USA. Eitthvað sem aðrar búðir einbeita sér lítið að.
Gott úrval og stórar pakkningar sem er stundum gott fyrir budduna.
Sérstaklega er gott úrval á morgunkorni, örbylgjuréttum, snakki og nammi sem fæst ekki neinstaðar annarsstaðar. Reyndar ekki hollt og gott en það má leyfa sér smá.
Þessi búð minnir mann soldið á að vera mættur á Karnivalið upp á Kanavelli í gamla daga.
kv
Sleggjan
![]() |
Sandkassaleikur um Cocoa Puffs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 22. október 2012
Sigur fyrir neytendur á Íslandi
Komið var í veg fyrir að sterkur þrýstihópur (ASÍ) setti fram vafasama tillögu.
Afnám verðtryggingar þýðir einfaldlega að valkostir lántakanda fara þverrandi.
Eins og staðan er í dag er um tvennt að velja:
- Verðtryggt lán: Hækkar í samræmi við vísitölu. Á móti kemur að afborganir á mánuði eru lægri en óverðtryggt og vextir lægri. Hentar mjög vel þeim sem hafa litla greiðslubyrði á mánuði.
-Óverðtryggt lán: Breytilegir vextir. Höfuðstóll hækkar aldrei. Greiðslubyrði á mánuði er aftur á móti há. Henntar vel þeim sem hafa meiri fé milli handanna hver mánaðarmót að greiða af lánunum. Lánið greiðist hraðar niður miðað við verðtryggt lán.
Ef fyrsti kosturinn er tekinn í burtu, hafa neytendur eitt val ekki satt?
Höfum val fyrir neytendur. Höfum verðtryggingu sem val. Þeir sem eru á móti henni geta tekið óverðtryggt.
kv
Sleggjan
![]() |
Tillaga um afnám verðtryggingar felld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 21. október 2012
Auðvelt
Kosningin er góð.
Vissulega er alltaf hægt að gagnrýna þáttökuna. Ef þjóðaratkvæðagreiðslan og þátttakan væri 95% þá myndi skrímsadeildin segja að 5% þjóðarinnar eigi rétt á að breyta sjórnarskránni upp á sitt einsdæmi.
hvells
![]() |
Kjörsókn góð í svona kosningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 21. október 2012
Trúarbragðadeilur
Sunnudagur, 21. október 2012
Gott mál
Gríðarlegur sigur fyrir stjórnarskrásinna.
Vilji að allir landsmenn hafi sama rétt er sterkur. Einnig persónukjör bætir stjórnmálamenninguna.
hvells
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)