Mánudagur, 11. febrúar 2013
Rúllettan
Icesave var rússnesk rúlletta.
Svo betur fer var engin byssukúla í hlaupinu.
Það er mjög sérkennilegt að landsmenn hrósa svona áhættusækni.
En Íslendingar hafa ekkert lært af hruninu... áhættusæknin er ávalt í hávegum höfð.
Ef Jóhanna mundi fara til Las Vegas með alla skattpeninga okkar og spila black jack og tvöfalda féið okkar..... landinn væri mjög ánægður með það.
En það er spurning hvort hún fengi prik í kladdann fyrir þetta.
hvells
![]() |
Icesave eykur vinsældir forsetans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 11. febrúar 2013
Góð niðurstaða
Nú getur Fjölskylduhjálpin sigtað út þá sem virkilega þurfa aðstoð.
Engir "freeriderar" lengur.
Sjálfsagt er að Fjölskylduhjálpin skrifi undir plagg það sem heitið er trúnaði og annað slíkt það sem konan kvartar yfir.
kv
Sleggjan
![]() |
Heimilt að óska eftir skattframtali |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 11. febrúar 2013
Leiðrétting
Friðrik segir: Annað hrun er óumflýjanlegt fyrir Ísland, nema komi til róttækra aðgerða við afnám gjaldeyrishaftanna.
Ég veit ekki í hvaða kornflex pakka hann fékk sína hagfræðigráðu.
Í fyrsta lagi verður ekki hrun vegna haftana. Hinsvegar mun Ísland deyja hægt og hljótt. Lífskjörin vegna haftana mun fara minnkandi.
En við afnám haftana þá mun gengið hrinja og hugsanlegur fjármagnsflótti erlendis er mögulegur. Veldur falli á verðbréfum og húsnæðisverðum. En þetta mun allt leytast í jafnvægispunkt hvort sem er. Það er ekkert betra að vera í einhverri bólu til framtíðar.
Með öðrum orðum verður hrun vegna afnáms haftana ef við köllum það hrun. Ekki vegna haftana. Friðrik er ótrúlega heimskur.
hvells
![]() |
Annað hrun óumflýjanlegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 11. febrúar 2013
Lykilsetning Sigmundar
Um afnám verðtyggingarinnar segir hann:
"......verði þá skipaður sérfræðihópur til þess að vinna útfærsluna, ekki hvort eigi að gera þetta heldur aðferðina fyrir lok árs 2013. "
Hann lofar engu.
Skipa sérfræðihóp (nefnd). Algengasta brellan í pólítík. Svo verður ekkert úr þessu.
Lýðskrum?
Allavega er grandlaus almúgurinn tilbúinn að gleypa við þessu miðað við skoðanakannarnir.
kv
Sleggjan
![]() |
Afnám verðtryggingar lykilatriði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 10. febrúar 2013
Jafnrétti hvað
Konur hljóta að vilja ráðherrastóla vegna eigin velgegni.
Konur vilja ekki rúllustiga á toppinn. Vilja vera metnar á eigin verðleikum.
Þess vegna eru jafnréttislög í raun óþörf. Einstaklingurinn skiptir máli. Ekki kynið.
Nú er talað um framsóknarflokkinn.
Siv Friðleifs var ráðherra og stóð sig með sóma.
kv
Sleggjan
![]() |
Hlaut jafnréttisviðurkenningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.2.2013 kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 10. febrúar 2013
Lélegasta tillaga sem ég hef heyrt
Framsóknarflokkurinn treystir ekki þjóð sinni að hafa sínar skoðanir.
Banna erlendum aðilum að vera með "áróður". Semsagt kaupa auglýsingar og halda fyrirlestur og kynningar og slíkt.
Hvurslags fasista hugsjón er þetta.
Sorglegur flokkur
kv
Sleggjan
![]() |
Erlend stjórnvöld kosti ekki áróður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 10. febrúar 2013
Skyldulesning
Gúttóslagurinn var skyldulesning í sagnfræði. Man ekki hvort það var í grunnskóla eða framhaldsskóla. Held að það var í framhaldsskóla.
Þetta er í raun merkilegur atburður.
Þarna kom hópur fólks sem vildi meiri peninga frá skattborgurum og vílaði ekki fyrir sér að beita handalögmálum.
En hvar átti peningurinn að koma?
Almennt vill fólk ekki ræða það. Það vill frekar bara heimta og heimta.
hvells
![]() |
Hlutu varanlega áverka við Gúttó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 10. febrúar 2013
Opinber ábyrgð
Það er ákveðin þumalputtaregla að ef það er ekkert einkafyrirtæki sem sér sig hag að bora göng og rukka gjöld.. þá er verkefnið ekki hagkvæmt.
Þessvegna þarf ríkisábyrgð.
Það má vel vera að þetta er ákveðin byggðarsjónarmið í málinu. Það er alveg gott mál en við skulum tala um þetta hreint út.
Þessi göng verður ríkiskostnaður.
hvells
![]() |
Vaðlaheiðargöng eitt af lykilmannvirkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 10. febrúar 2013
Eyðimörkin
Er ég eini einstaklingurinn hér á landi sem finnst "afnám verðtryggingar" gagnslaust rugl?
Þú, ég, þið, við getum öll tekið óverðtryggt íbúðarlán í næsta banka.
http://www.landsbankinn.is/einstaklingar/lan-og-fjarmognun/fasteignalan/
http://www.islandsbanki.is/einstaklingar/lan/
http://www.arionbanki.is/einstaklingar/lan/ibudalan/
Þessi umræða er með öllu óskiljanleg.
hvells
![]() |
Verðtrygging neytendalána afnumin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 10. febrúar 2013
Báknið
Já starfshópur.
Ég vona að sá hópur verður á launum frá XB.
En þetta er ákveðin vísbending um hvað XB vill. Þora ekki að taka neinar ákvarðanir og skipa fullt af nefndum vegna þess að það skortir pólitiskt þrek.
hvells
![]() |
Styðja nefnd um staðgöngumæðrun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |