Miðvikudagur, 6. mars 2013
XD og stétt með stétt
XD í borginni hefur fyrst og fremst barist fyrir einkabílnum. Það má ekki hækka stöðumælagjöld eða loka laugaveginum án þess að XD menn trompist (að Gísla frátöldum), byggja verður umferðarslaufur þvers og kruss og fleira í þeim dúr.
Svo vilja þeir fjölbreytta verslun og eru flestir með litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
Eigendur hverfisbúðar hafa margoft sagt að bílinn og bílastæðavandi er þeirra helsti óvinur.
Nú var dagur án einkabíls. Allir voru fastir.
Hvað gerðist?
Jú allt fullt var í hverfisbúðunum.. fólk komst ekki í Bónus (Baugsveldið?)
hvells
![]() |
Örtröð í Sunnubúðinni í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 6. mars 2013
Óðinn á vb.is
Einn glöggasti samfélagsrýnir í dag er Óðinn sem skrifar reglulega í Viðskiptablaðið.
Hann segir
Óðinn hefur haldið því fram að
lausnin á skuldavanda heimilanna
sé að auka hagvöxt, aðhaldi í ríkisrekstri
og traustri stjórn peningamála.
Í samanburði við önnur
tilboð kann það að hljóma sem
leiðinleg lausn. Varla líður sú vika
að ekki spretti fram lukkuriddarar
og lýðskrumarar sem segjast geta
látið skuldir almennings hverfa
við það að veifa töfrasprota sínum,
verði þeim aðeins trúað fyrir landsstjórninni.
sammála þessu
hvells
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 6. mars 2013
Feministar og vinstri menn í klemmu
Femínistar vilja kvenfrelsi.
Femínistar vilja menningarlega fjölbreytni.
Múslimamálefnin er eins og heit kartafla í höndunum á þeim. Vita ekkert hvað þau eiga að gera. Ætti þó að venjast fljótt. Tvöfeldni ekki nýjar fréttir hjá femínistum.
kv
Sleggjan
![]() |
Vilja ekki sporna við ofbeldi gegn konum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 6. mars 2013
Fyrsta og eina skiptið
Líklega fyrsta og eina skiptið sem ég er sammála yfirlýsingu frá Stjórna ungra Vinstri Grænna.
Tek heilshugar undir þessa yfirlýsingu. Sjáum hvort þetta útibú hafi einhver áhrif. Líklega ekki þó.
kv
Sleggjan
![]() |
Taki stjórnarskrárfrumvarp til umræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 6. mars 2013
Köllum hlutina réttum nöfnum
"Ef Alþingi tekur sér ekki tak og afgreiðir stjórnarskrárfrumvarpið í samræmi við vilja þjóðarinnar, mun niðurlæging þingsins hafa alvarlegar afleiðingar.
Hvers vegna skyldum við treysta því, þegar formaður Samfylkingarinnar segir, að ekki sé meiri hluti fyrir málinu á Alþingi? Hefur forsætisráðherra staðfest það mat hans? Nei.
Hvers vegna skyldum við treysta einhverri leynitalningu atkvæða í þinginu?
Er ekki miklu nær að greiða atkvæði um frumvarpið í þinginu, svo að þjóðin fái að sjá það fyrir opnum tjöldum, hvaða þingmenn virða þjóðarviljann og hvaða þingmenn stinga þjóðina í bakið?
Málið snýst um þetta.
Þess vegna reyna þau sum að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu.
Sannið til: Mörg þeirra myndu ekki þora að greiða atkvæði gegn nýrri stjórnarskrá, ef til þess kæmi, og þess vegna reyna þau að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu í þinginu.
Þetta heitir valdarán, eins og margir hafa bent á.
Köllum hlutina réttum nöfnum."
kv
Sleggjan
Miðvikudagur, 6. mars 2013
Fjölmiðlamenn
Það er alltaf svo gaman að fylgjast með fjölmiðlafólki svona úr fjarlægð. Þeir halda að þeir séu fólkið sem eigi að vera alþingismenn eða forsetar. AÐSTOÐARRITSTJÓRI HÆTTIR. Þetta er frétt fyrir fjölmiðlafólkið sjálft, ekki almenning. Þú sérð aldrei DEILDASTJÓRI PRENTSMIÐJU ODDA HÆTTIR. Aldrei.
hvells
![]() |
Aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins hættir störfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 6. mars 2013
Framsóknarsvikin
Er eitthvað skrítið að traust á Alþingi sé við frostmark? Það er ekki staðið við neitt. Og er Framsóknarflokkurinn fremstur í þessum vafasama hópi. hvells
![]() |
Fleiri vildu ekki vera á málinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 6. mars 2013
Studentar. VG er að spila með ykkur!!
Katrín Jakobs og allur flokkur VG vita vel að þetta mál mun aldrei komast í gegn. Við erum með stjórnarskrámálið í gíslingu, ellilífeyrisfrumarp, vantraust á leiðinni. Og örfáir dagar til þingloka.
Þetta plagg er bara til þess að blekkja nemendur.
VG getur sagt "við lögðum fram frumvarp um þetta"
En nemendur eru upp til hópa ekki að fylgjast með stjórnmálum og trúa þessu og vita ekki að frumvarpið var lagt fram korter fyrir kosningar
hvells
![]() |
Stúdentar skora á þingmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 6. mars 2013
Sorglegt
Sé ég Siv Frileifs þarna? Ja hérna
Þarna eru molbúarnir.
Þarna er Bjartur úr Sumarhúsum.
Þetta er liðið sem barðist gegn símanum á sínum tíma
Enginn mátti eiga síma og þessi "símavæðing" á íslandi átti að stöðva... núan eru þeir á móti ESB væðingunni.
sorglegt lið
hvells
![]() |
Ítreka andstöðu við aðild að ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 6. mars 2013
Fátækur listi
Þetta er nú fátækur listi. Ég sé ekki neinn sem hefur lagt neitt til málanna hér á Íslandi. Og nóg er til af bloggsíðum, blaðagreinum og umræðuþáttum.
hvells
![]() |
Framboðslistar Bjartrar framtíðar samþykktir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |