Sunnudagur, 3. janúar 2010
Kvót ársins
Mörg koma til greina.
En ég rakst á þessa, helviti gott
Ég treysti Svavari Gestssyni. Ég veit að hann er að gera góða hluti og ég lofa þér því að það er í sjónmáli að hann landi og hans fólk glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur.
SJS
sll
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þeir hefðu getað sleppt áramótaskaupinu og látið hann taka standup fyrir okkur í staðinn, eða spilað kosningarloforð VG.
Hér er einn djókur úr kosningabaráttunni. Stefnuskráin er raunar svo mikið ofsagrín að það er nánast lögreglumál.
"Tryggjum að tiltekinn hluti þjóðarinnar (15-20%) geti með undirskrift sinni átt frumkvæði að þjóðaratkvæðagreiðslu um öll stórmál."http://www.vg.is/kjordaemi/kosningaaherslur---vegur-til-framtidar/aukid-lydraedi/
Allir þingmenn þeirra höfnuðu svo þessu, þegar á reyndi. Meira að segja Lilja og Ögmundur.
Jón Steinar Ragnarsson, 3.1.2010 kl. 18:08
Sannleikurinn og heiðarleikinn haf jafn lítið með stjórnmál (pólitík) að gera eins og sönn trú hefur með trúarbrögð að gera. Hvorugt þekkir hitt á ögurstundu.
Kveðja, Björn bóndi
Sigurbjörn Friðriksson, 3.1.2010 kl. 18:27
ég legg til að kvót ársins verðir "Johnny Dream!!!!" eða jafnvel "magnval eignarhaldsfélag", jafnvel að vekja bara upp gömul og góð kvót í ljósi fortíðarþráhyggju okkar með "hann veit örugglega ekki einu sinni hverjir shook ones eru"
gunso (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 17:01
hehehe... en samt HEY Gunso!!! Ekkert vera að grafa upp gamalt kvót!!!
Hawk, 6.1.2010 kl. 11:33
Svona svipað og hvort það má keyra eftir einn bjór, eða ekki. Eftir hvernig vindar blása. Eða, hvaða hagsmunir gunso hefur að gæta í hvert skipti fyrir sig :P
Sleggjan og Hvellurinn, 6.1.2010 kl. 11:45
haha má allavega klárlega ekki lengur, steindi joð sá til þess
gunso (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 12:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.