Þriðjudagur, 14. júlí 2009
Kelling
Silja Bára er mjög fínn álitsgjafi. Stóð sig mjög vel í kosningavökunni í USA þegar Obama var kosinn. En hún hefur jafnréttisfettish.
Samanber þessi færsla á blogginu hennar. Hún vill greinilega taka þátt í þessum sandkassaleik.
Eina alvöru málið er Icesave útaf það snýst um peninga? . Snýst um meira en peninga. Sjálfstæði, princeble, undirgefni, samningsleikni.
Færslan:
lveg var það hreint ótrúleg upplifun að horfa á umræður á Skjá einum um eitt stærsta ágreiningsmál sem íslenska þjóðin stendur frammi fyrir. Tveir ungir karlar ræddu við þrjá (tiltölulega) unga karla og tvo miðaldra um Icesave og allir voru í jafnmiklum sandkassaleik. Mér sýndist ég sjá glitta í eina konu ganga fyrir myndavélina í bakgrunni. Konur eru 43% þingmanna og engin þeirra virðist skipta nógu miklu máli til að tjá sig um þetta (og ég veit að þær eru ekki formenn flokkanna, nema akkúrat þess sem ekki sendi formanninn). Á sama tíma sat einn karl og ræddi við þrjá aðra og tvær konur um hitt stóra málið sem varðar framtíð landsins. Þar voru náttúrulega mjúku málin líka til umræðu, ESB, þjóðaratkvæðagreiðslur og svona. Icesave hefur með alvöru völd að gera, peninga. Ég ætla að vona að það verði ekki bara þessir karlar sem mættu í Málefnið (eða karlarnir í InDefence, því ekki hef ég séð eina einustu konu í þeim hópi) sem ákveða hvernig Icesave fer.
http://siljabara.eyjan.is/2009/07/sandkassaleikir.html
-Sleggjan-
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég er viss um að ef einhver kona mundi sækja um að slást í lið með InDefence þá mundi henni ekki vera neitað.
Það eru margar konur búnar að tjá sig um Icesave. Ég skil ekki þessa bloggfærslu.
Hawk, 14.7.2009 kl. 16:08
Já, þeim finnst mjög gaman að kvarta. En ekki taka frumkvæði og einsog þú segir. taka þátt í InDefence!
Sleggjan og Hvellurinn, 14.7.2009 kl. 17:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.