Laugardagur, 7. júní 2014
Ekki frétt
Þetta er klárlega ekki frétt dagsins.
las þetta í morgun.... það er einsog blaðamenn í mogganum er að reyna að finna bara eitthvað til þess að æsa neytendur.
Það er greinilegt að balaðamaðurinn heldur að neytendur og þar með almenningur sé heimskur.
hvells
![]() |
Óljósir lánakostir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Mér var boðið vaxtalaust lán með lántökugjaldi mánaðarlegu, greiðlsuseðilsgjaldi, færslugjaldi o.s.frv. Ég reiknaði aðeins í huganum og sá að skynamlegra var að vera 1-2 mánuði í mínus (yfirdráttur) heldur en að skella mér á "vaxtalaust" lán.
Vona að aðrir neytendur geri það sama í sínum kaupum, semsagt reikna aðeins í huganum eða vasareiknir í simanum.
kv
slegg
Sleggjan og Hvellurinn, 7.6.2014 kl. 11:31
Þetta er mjög góð frétt. Að vekja athygli á því að það sé ómögulegt að fylgja eftir lögum sem hafi verið sett á Alþingi. Það er eitthvað mikið að kerfinu ef það er verið að setja lög sem ekki er hægt að fylgja eftir og nauðsinlegt að vekja athygli á því.
Neytandi (IP-tala skráð) 7.6.2014 kl. 13:27
Burtséð frá því hversu mikla þekkingu neytendur hafa á vaxtaútreikningum (kannanir sýna að um þriðjungur hefur hana ekki) þá veldur meiri áhyggjum það sem kemur fram í fréttinni í blaðinu um fjármálafyrirtækið Borgun, að raftækjaverslunin ELKO geti ekki lengur veitt raðgreiðslulán frá fyrirtækinu þar sem það reiknar árlega hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK) vitlaust.
Þar er einnig haft eftir lögfræðingi hjá Neytendastofu að þar sé nú unnið að aðferð til að yfirfara útreikninga árlegrar hlutfallstölu kostnaðar hjá lánveitendum, eins og það sé eitthvað sem ekki liggi nú þegar fyrir.
Hvorugur þessara aðila virðist kunna að nota Excel, hvað þá meira.
Fyrirliggjandi eru margvísleg og ítrekuð tilvik þar sem lánveitendur hafa verið úrskurðaðir brotlegir fyrir að jafnvel birta alls ekki þessar upplýsingar, eða þá að undanskilja mikilvæga kostnaðarliði í útreikningnum. Alverlegast dæmið af því tagi er í verðtryggðu lánunum þar sem kostnaðurinn við verðtrygginguna var alveg undanskilinn frá útreikningum á kostnaði og hlutfallstölu.
Þetta vefst semsagt fyrir fleirum en bara almenningi og neytendum.
En fyrst að bæði Sleggjan og Hvellurinn segjast vera með þetta alveg á hreinu væri tilvalið að þeir haldi hér sýniskennslu. Segjum að mig muni í haust vanta vetrardekk undir bílinn sem kosta 70.000 og ætli að fjármagna það með skammtímaláni til 6 mánaða í formi yfirdráttar, krafist er 5.000 kr. byrjunargjalds fyrir skjalagerð vegna lántökunnar og svo eru vextirnir 11% skuldfærðir mánaðarlega á yfirdráttarreikninginn. Hver yrði þá heildarlántökukostnaður og árleg hlutfallstala kostnaðar?
Til að flýta fyrir þá er þetta formúlan fyrir árlega hlutfallstölu kostnaðar samkvæmt gildandi reglugerð nr. 965/2013 um útreikning hennar:
Skíteinfalt er það ekki?
Guðmundur Ásgeirsson, 7.6.2014 kl. 17:35
Eg hef heyrt að lánin renni barasta útúr bönkunum núna i öllum formum og tilheyrandi vaxta- og verðtryggingar álögum.
Fólk er að kaupa sér margra milljóna bíla, húsvanda og hjólhýsir, sportbáta og snjósleða og ég veit ekki hvað og hvað. Hlutabréf sjálfsagt.
Enda ætla þeir framsjallar að fara að setja upp ,,Alþjóðlega fjármálamiðstöð" hérna og svo ætla þeir bara að fara í lax!
Gránd hogg day og desja vú all over again.
Ekki heyrist múkk frá HH varðandi forkastanlegt framferði Elítustjórnarinnar þar sem síðasta útspilið var að ala á fordómum gagnvart minnihlutahópi.
Eðlilega enda er Elítustjórnin þeirra menn og þeir hafa þrotlaust barist fyrir að koma þessum ójafnaðarmönnum að kjötkötlunum.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 7.6.2014 kl. 18:08
Edit: ,,húsvagna og hjólhýsi" o.s.frv.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 7.6.2014 kl. 18:08
Ekki heyrist múkk frá HH varðandi forkastanlegt framferði Elítustjórnarinnar þar sem síðasta útspilið var að ala á fordómum gagnvart minnihlutahópi.
Ef þér er alvara með þessu ertu meira veikur en mig grunaði. Það hefur ekki heldur heyrst múkk um það mál frá ASÍ, SA, BSRB, eða NSA. Afhverju ætli það sé? Getur það verið vegna þess að þetta er ekki innan þeirra málefnasviðs?
Það er kannski framandi fyrir þér hvað það þýðir að vera málefnalegur?
Guðmundur Ásgeirsson, 7.6.2014 kl. 19:31
Sleggjan og Hvellurinn, 7.6.2014 kl. 20:39
Ahemm... (I can see what you just did there and I know you are no fool)
Lesendur verðskulda hinsvegar betra en þetta.
Hvellurinn gerði þau grundvallarmistök að lána mér ekki nema 65.000 (útborgað) en dekkin kosta hinsvegar 70.000 þannig að ég verð á þremur vetrar- og einu sléttu sumardekki stórhættulegur í hálkunni næsta vetur.
Hvellurinn gerði líka önnur stór mistök og notaði ekki núvirðingarformúluna sem ég gaf upp hér að ofan til þess að reikna ÁHK. Það er ekki nóg að deila bara með heildarkostnaðinum í krónum talið í lánsfjárhæðina, eins og Hvellurinn gerði augljóslega. Með því er tímaþátturinn nefninlega hunsaður alveg en eins og kom fram í forsendunum er lánstíminn 6 mánuðir og peningar í dag eru ekki það sama og peningar eftir sex mánuði. Með öðrum orðum er lánskostnaðurinn ekki núvirtur miðað við upphafstímann, eins og er þó skylt samkvæmt reglugerðinni.
Hér er þetta rétt reiknað samkvæmt lögum og reglum:
Sko, ég lagaði þetta fyrir ykkur.
Guðmundur Ásgeirsson, 8.6.2014 kl. 00:06
Það skiptir bara engu máli hvernig þetta er. Fólkið vill sín lán og því er slétt sama um vexti og verðtryggingu - og bráðum fara framsóknarmenn að heimta gengistryggð lán, án efa.
Enda láta framsóknarmenn bara hina vrst stæðu borga þetta fyrir sig þegar þeir verða búnir að rústa þessu landi hérna í samstarfi við sjalla ásamt þvíað poppa upp með fordóma og fár - og eigi mun heirast múkk frá hagsmunagæslufe´lagi framsóknarmanna - sem er bara léttvægur armur framsjalla. og eg sá reyndar strax í gegnum það frá day one.
Framsóknarmenn urðu alveg ofsalega reiðir við mig þegar eg sá í gegnum þennan framsóknararm.
Nú er allt staðfest það sem eg sagði. Það er gjörsamlega broslegt að sjá marino æða fram á völlinn í hvert skipti sem SDH og hirðin í kringum hann er gagnrýnd.
Það virðast flestir vera búnir að sjá í gegnum þetta - og það er eins og menn skammist sín soldið fyrir að láta framsóknarmenn plata sig sona.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 8.6.2014 kl. 00:26
Heyrðu karlinn minn.
Jújú ég gerði ráð fyrir að þú vildir 70þús króna yfirdrátt.
Og ég gaf mér það að þú vildir greiða vextina mánaðarlega.... semsagt að þeir mundu ekki leggjast á höfuðstólinn og mynda vaxtavexti. (skuldfært mánaðrlega).... þú varst greinilega ekki nógu skýri í forsendum.
En fyrir utan það þá hef ég voða litla samúð með fólki sem getur ekki einusinni safnað fimmþúsund kall fyrir dekkjum. Það er ekki skrýtið að fólk á við greiðsluerfileika sem halda það að málið sé að taka 100% yfirdrátt fyrir öllu því sem það vantar. (yfirdráttur er dýrasta fjármöngunin sem í boði er og ætti bara að vera notuð í undartekningum)
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 8.6.2014 kl. 00:28
Best er að leggja fyrir, sýna ráðdeild og safna fyrir hlutunum
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 8.6.2014 kl. 00:29
Skuldfærsla vaxta á reikninginn var skýrt tilgreind í forsendunum, reyndar hefur hún hverfandi áhrif sem munar örfáum krónum um en það var alls ekki aðal vandamálið.
Ég sá og benti þér á nákvæmlega í hverju mun alvarlegri villa liggur hjá þér, sem er sú að þú vanræktir að núvirða greiðsluflæðið. Það sem þú gerðir var að deila einfaldlega lánskostnaðinum í höfuðstólinn, en það er kolröng aðferð.
Ég gaf alveg skýrar forsendur, þú einfaldlega reiknaðir vitlaust.
Viltu ekki bara endurreikna þetta snöggvast?
Rétt niðurstaða er sýnd hér að ofan.
Guðmundur Ásgeirsson, 8.6.2014 kl. 01:41
Ekkert?
Ertu ennþá að reyna að leysa þetta rétt?
Guðmundur Ásgeirsson, 12.6.2014 kl. 21:11
Engin viðbrögð?
Hvellurinn virðist ekki kunna að reikna rétt...
Vinnur samt við að að reikna fyrir banka, að því er virðist vitlaust...
Er það í lagi?
Guðmundur Ásgeirsson, 12.6.2014 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.