Mánudagur, 26. maí 2014
Hvellurinn hefur alltaf rétt fyrir sér
Hvellurinn gaf fría fjárfestingaráðgjöf í seinustu viku og áréttaði hana nokkrum dögum síðar.
Gengi Icelandair var 16,4 þegar ég mælti með kaupum á bréfunum. Nú er gengið 17,65. Verðmat Hvellsins er 18,1 og því er enn kauptækifæri og Hvellurinn gerir áð fyrir að gengi Icelandair mun ná 18,1 í sumar.
Lesendur síðunnar geta því grætt mikla peninga með því að halda áfram að lesa síðuna.
Við höfum aldrei haft rangt fyrir okkur. Hvort sem það er í ESB málum, verðtryggingu eða fjárfestingaráðgjöf.
hvells
![]() |
Viðskipti hafin með bréf Icelandair |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Árið 2010 var hluturinn á rúmar 6 krónur.
Verðmat hvellsins er rúmar 18 krónur núna 4 árum síðar.
Sérð þú einhver rök fyrir 300% hækkun á þessu félagi, önnur en verðbólu kostaða af lífeyrissjóðum innan hafta?
Sigurður (IP-tala skráð) 26.5.2014 kl. 17:12
Árið 2010 var Icelandair undirverðlagt og ég Hvellurinn mældi meðal annars með kaupum og bréfunum á þeim tíma. Þeir lesendur sem treysti Hvellinum þá hafa margfaldað sína peninga. Og munu gera það áfram.
Ferðafjöldi í alþjóðaflugi hefur fjölgað um 19% á milli ára. Sætanýtin hjá félaginu hefur aukist um 3,4%.
Boson consulting group spáir áfram aukningu ferðamanna og Icelandair Group rekur mjöglmörg hótel ásamt því að fljúga. Ef við núvirðum sjóðstreymið og skoðum ársreikningana og árshlutareikningana í ár og seinustu ár....bæta smá rökhugsun og spádómsgáfu er mjög auðvelt að komast af ákveðinni niðurstöðu.
Allavega fyrir þá sem kunna eihttvað í reikningi, fjármál fyrirtækja og hagfræði.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 26.5.2014 kl. 17:27
Snillingar.
Dude (IP-tala skráð) 26.5.2014 kl. 21:01
Jú víst, um verðtrygginguna.
Svo höfðuð þið líka rangt fyrir ykkur um Icesave.
Guðmundur Ásgeirsson, 27.5.2014 kl. 13:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.