Gunnar Bragi sáttur með EES og ESB reglurnar

"Fulltrúi Evrópusambandsins lýsti ánægju sinni með stefnu Noregs og Íslands í málefnum EES.  EES samningurinn væri farsæl saga og sú nána samvinna sem í henni fælist væri styrkleiki til framtíðar. Þá hefði ESB kynnt sér nýsamþykkta Evrópustefnu íslensku ríkisstjórnarinnar og liti hana jákvæðum augum."

 "Á fundinum kom fram að jákvæð teikn væru á lofti með innleiðingu gerða ESB, allir aðilar stefndu að sama markmiði og hefðu sameiginlegra hagsmuna að gæta. Innleiðingarhallinn væri þó áfram áskorun sem leysa yrði."

"„Fundurinn var árangursríkur, við ræddum um þau tækifæri og þær áskoranir sem unnið er að milli landanna og sambandsins í tengslum við EES samninginn. Það er áríðandi halda uppi og kynna mikilvægi EES samningsins sem hefur reynst  farsæll.  Við höfum nýtt okkur frelsi hans til að gera fríverslunarsamninga á okkar forsendum og sem EFTA ríki, jafnframt því að vera hluti af innri markaði ESB og eiga möguleika á því að sækja menntun og njóta ferðafrelsis innan sambandsins. Aðildin að EES veitir okkur bæði sérstöðu og frelsi til athafna,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson"

http://www.utanrikisraduneyti.is/frettir/nr/8080

 

Á Íslandi bölvar Gunnar Bragi allt sem viðkemur EES og ESB og segir þetta aðlögun og hvaðan af verra.

Í útlöndum er Gunnar Bragi að dásama EES samninginn, innri markaði ESB og vill vinna í innleiðingarhallanum..... með öðrum orðum þá vill hann vinna upp "aðlögun að ESB" eins fljótt og hann getur.

Gunnar Bragi er nýjasti meðlimur JÁ_ÍSLAND

HV

ees-radsfundur-gbs-og-grikki.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þegar íslenskur stjórnmálamaður fer til útlanda, þá sýnir hann sitt rétta og alvöru andlit

Ekkert neitt til lýðskrums eða "heimabrúks".

Alltaf er niðurstaðan þannig að það er vandræðanlegt hvað stjórnmalamaðurinn íslenski niðurlægir sjálfan sig.

Gunnar niðurlægir her og gerir litið úr sjálfum ser.

kv

slegg

Sleggjan og Hvellurinn, 15.5.2014 kl. 07:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband