Föstudagur, 14. febrúar 2014
Frosti Sigurjónsson á móti réttarríkinu
http://andriki.is/post/76568551219
Karl Garðarsson þingmaður Framsóknarflokksins spurði að því á dögunum hvort vinstri grænir þekktu ekki mun á dóms- og löggjafarvaldi. Tilefnið var að flokksráðfundur VG hafði samþykkt ályktun um að ákærur á hendur þeim níu einstaklingum sem voru á meðal þeirra sem héldu uppi friðsömum mótmælum í Gálgahrauni verði afturkallaðar.
Karl spurði því:
Og hvert er Vinstri hreyfingin grænt framboð eiginlega að fara? Hefur þessi flokkur aldrei heyrt getið um aðskilnað löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds? Hér hikar flokkurinn ekki við að ganga inn á svið ákæruvaldsins og færa það undir hið pólitíska vald.
Við þessa ádrepu Karls varð Vefþjóðviljanum hugsað til viðtals við Frosta Sigurjónsson alþingismann fyrir mánuði. Þar var Frosti einu sinni sem oftar að útskýra níföldun á bankaskatti á valin fjármálafyrirtæki og undanþágu fyrir önnur:
Tilgangur þessa skatts er það bæta ríkissjóði það tjón sem ríkissjóður varð fyrir í hruninu. MP banki er vissulega ekki einn af þeim bönkum sem tók þátt í því tjóni og það hefði mátt færa rök fyrir því að hann ætti alls ekki að greiða neinn skatt en hann greiðir samt skatt samkvæmt þessu. Honum er ekki algerlega hlíft.
Hér lýsir Frosti því hvernig löggjafinn tók sér dómsvaldið sem venjulega kveður upp úr um hvort menn fái bætur fyrir tjón. Alþingi virðist hafa ákveðið að sækja bætur til nokkurra aðila án þess að fara hinu hefðbundnu leið að sækja þær fyrir dómi. Hin vandaða viðskiptanefnd Alþingis, undir forystu Frosta, rannsakaði málið og gerði tillögu um hæfilegar bætur til ríkisins og hver ætti að greiða þær. Ekki var talin þörf á að hinir meintu tjónvaldar fengju að halda uppi vörnum.
Karl Garðarsson og félagar hans á löggjafarsamkundunni samþykktu svo bótakröfuna.
hvells
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Útúrsnúningur þinn og sandkassaleikur í gagnrýni þinni á framsóknarmenn eiga sér lítil eða engin takmörk.
Með þessum rökum þínum virðir Alþingi dómsvaldið algerlega að vettugi og við búum ekki í réttarríki þegar ríkið tekur að sér án undangengis dóms að greiða út barnabætur.
Þvílíkur fávitaskapur.
Sigurður (IP-tala skráð) 14.2.2014 kl. 19:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.