Fyrsti þáttur

Siðferði í skattamálum er góð hugmynd. En siðferðin þegar kemur að stjórnmálamönnum er alvarlegasta siðbresturinn.

Það er ljóst að við eigum okkar vinnu. Við eigum tvær hendur og heila og við hljótum að eiga 100% af okkar vinnu ekki satt?

Nei það er ekki satt. Við eigum víst bara 50% af okkar vinnu vegna þess að ríkið tekur hinn helminginn af okkur.

Menn einsog Ögmundur talar einsog ríkið á 100% of okkar vinnu og það er svo mikið góðverk að ríkið skilji einhverjar brauðmynslur fyrir almenning (hinn raunverulega brauðmynslukenningin).

Fyrir hvert einasta skattfé sem ríkið fær til sýn eru á bak við það blóð sviti og tár almennings. Því er mikilvægt að ríkið fer vel með fé sem þeir taka frá okkur almenningi. Heilbrigðis, velferðarkerfi og annað slíkt en restin á að vera eftir hjá okkur almennningi. Ríkið á óvalt að stilla skattheimtu í hóf.... þeir bera siðferðislega skyldu til þess einsog Ögmundur bendir á.

hvells


mbl.is Vill efla siðferðið í skattamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ég vill lága skatta. 20% á línuna allstaðar!

I leiðinni vill ég ekki að stórar keðjur komi sér frá skattgreiðslum með skattaparadísasnúningi , a la Tortola.

kv

slegg

Sleggjan og Hvellurinn, 22.1.2014 kl. 19:15

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ef það eru lágir skattar þá er minni hvati að svíkjast undan skatti.

og með lága skatta þá löðum við að fleiri fyrirtæki.

til dæmis er Apple með stórt útibú í Írlandi þar sem eru  mörg vel launuð hátæknistörf.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 22.1.2014 kl. 20:12

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ögmundur Jónason ætlar að láta Íslands-hreppinn kaupa Grímsstaði á Fjöllum, fyrir Útsvarspeninga skattpínds og kaupmáttarsvikins almennings á Íslandi? Hvaða rugl er í gangi hjá kallinum?

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson eiga ekki að komast hjá því að sundurliða með réttlætanlegum rökum, hvert þau eru að fara. Og eiga ekki að sleppa við að útskýra á heiðarlegan hátt, sína aðferðarfræði og ferli. Ef þau þora því ekki, þá er það óttinn við allan heila og undanbragðalausa sannleikann, sem hindrar þau!

Ég fer ekki fram á meira sannleikann í heild sinni, "Ömmi margfaldi frændi"!

Þú skuldar mér og öðrum fyrrverandi kjósendum Vinstri Grænna, miklu meira heldur en Steingrímur Jóhann Sigfússon! Og þá er nú mikið sagt, herra Ögmundur Jónason!

Gleymdu ekki að þú ert í vinnu hjá almennum útsvarsgreiðandi kjósendum Ögmundur Jónason. 

Þú ert ekki æskilegur sem VG-falskt og ósnertanlegt sálarteturs-talsmanns-leikritar-málþófs-prumpstjórnunar-RÚV-vald. Sem telur þig sjálfskipaðan sem kúgunarforstjóri yfir þá, sem sviknir voru af Vinstri Grænum (innan og utan þings) strax eftir kosningar árið 2009!

Þú ert ennþá í liðinu sem kallar sig Vinstri Græna, þrátt fyrir þetta lýðræðislega alvarlega brot gegn lýðræðinu, um að ganga til aðlögunarsamninga-viðræðna við ESB, án þess að þjóðin fengi einu sinni að tjá sig um sinn vilja, með þjóðaratkvæðagreiðslu?

Veistu hvað orðið samviska þýðir í raun, herra Ögmundur Jónason?

Mundu það Ögmundur Jónasson, að svik eru ekki opinberlega viðurkennd, samkvæmt RÚV-kirkjunni á Íslandi. Sannleikurinn vegurinn og réttlætis-lífið, er raunverulega lífið, í stóra samhenginu utan veggja RÚV og Stjórnarráðsins!

Getur verið að sá Ögmundur Jónasson, sem þykist vera brú milli þings og þjóðar, sé í raun fals"samkúgunarstjóri" þings og þjóðar?

Miðað við hvað ég skynja nú orðið, þá ert þú miklu fjær réttlætinu herra Ögmundur Jónasson, heldur en Steingrímur Jóhann Sigfússon.

Og þá er nú mikið sagt, af minni hálfu, gagnvart mælsku-æðibunu-úthúðunar-svikavisku Steingríms J. undanfarið.

Ég vona að þú þekkir raunverulega uppruna þess flokks, sem þú segist tilheyra, herra Ögmundur Jónasson? Hvað ætlar þú að kaupa fyrir peningana sem frúin í stríðsniðurbrotinni Hamborg gaf þér, herra Ögmundur?

Veistu að fátækir og réttindalitlir sjómanns-þrælar fyrri tíma lönduðu fiski í Hamborginni stríðsniðursprengdu? Veistu að Vinstri Grænni flokkurinn var meðal annara byggður upp af fátækum ungum og ættlausum sjómannsþræli, sem var svikinn strax eftir sinn dauða af Vinstri Grænum?

Hvað þýðir orðið samviska, í þínum hjartans/hugar-rótum, herra ÖGMUNDUR JÓNASSON? Hélstu að enginn myndi verja hugsjón ættlausa sljómanns-þrælsins, sem var kjölfestan í stofnun Vinstri Grænna?

Þar skjátlaðist þér Ögmundur, og fleiri Landlæknis-pestum þessa lands illilega!

M.b.kv.  

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.1.2014 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband