Hvað er löggjafinn að gera?

Kannast hún ekki við hlutverk Alþingis?

Þessi kona er að reyna taka þátt í heiðrinum sem Aníta á skilið ein.

Hvað á hún við með þessu:"..... ber þjóðinni að hlúa alveg sérstaklega að þeim."

Af hverju fygldi ekki lagafrumvarp með þessari ræðu? Hvaða lög ætlar  hún að breyta að búa til fyrir þessa setningu? Hvernig skal hlúa að svona íþróttamönnum?

 

Sóun á ræðutíma Alþingis. Af hverju er þessi manneskja ekki með sitt málgagn (blogg), þar sem hægt er að koma með almennar hugleiðingar en ekki eyða dýrmætum tíma Alþingis.

kv

Sleggjan

 

 VIÐBÓT 22 JAN

http://eyjan.pressan.is/silfuregils/2014/01/22/vinsaeldasmit/

Vinsældasmit er frábært orð sem ég rakst

Lýsir nákvæmlega fyrirbæri sem maður verður oft var við – þegar stjórnmálamenn eru að reyna að tryggja sér vinsældir út af einhverju sem kemur þeim í raun ekkert við.

Það er stundum talað um að stjórnmálamenn séu að ná sér í kredit fyrir eitthvað sem þeir hafa í rauninni ekki gert eða dottið í hug.

Við sjáum þetta oft í kringum listir og íþróttir, eins og þegar stjórnmálamenn vilja hitta fræga listamenn eða dúkka upp á íþróttamótum þannig að allir sjá.

Eða þegar þingflokksformaður Framsóknarflokksins fer upp í pontu á Alþingi til að ræða sérstaklega afrek Anitu Hinriksdóttur.

Já, vinsældasmit nær þessu alveg.

 


mbl.is Aníta þjóðinni allri til sóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

hún er að gera lítið úr sjálfri sér og alþingi

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 21.1.2014 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband