Þriðjudagur, 21. janúar 2014
Lykilsetning- Í Hófi
Allt er gott í hófi.
Hún kemur með góðan punkt:
"Við erum alltaf að reyna að viðhalda vitleysunni með því að reyna að gera hana aðeins skynsamlegri, t.d velta fyrir okkur hvort við eigum að nota agave-síróp eða hvítan sykur þótt einfaldast væri að drekka minna af gosi og borða minna af kexi og kökum."
Þetta er nefninlega málið hjá fólki.
Það er alltaf að fá sér hrásykur í staðinn fyrir hvítan sykur. Avage síróp staðinn fyrir venjulegt. Heilhveiti staðinn fyrir hveiti. Hýðishrísgrjón staðin fyrir venjuleg. Endalaust að spá í svona smáatriðum.
En í alvöru er vandamálið á hinum vallarhelmningnum. Þar er föstudagspizzan (eða þriðjudagspizzan) sem þarf að fara. Það er þynnkuborgarinn. Það er nammilandið á laugardögum. Skýrnarveislan á sunnudeginum, afmælisveislan seinna um daginn. Þarna skal skera í burtu.
Fólk má borða venjuleg hrísgrjón og venjulegt hveiti ef það sé haldið á spöðunum á sukkdögunum.
kv
Sleggjan
![]() |
Mataræði þarf ekki að vera flókið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Nú er ég á fullu í líkamsrækt, tek ekki prótein eða neitt annað en að borða venjulegan mat. Er í frábæru formi, þessi heilsuræktarbóla er eiginlega óþolandi.
Hamster (IP-tala skráð) 22.1.2014 kl. 11:39
Gott hjá þér.
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 22.1.2014 kl. 19:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.