Breytilegir vextir

Það sem kemur í staðinn fyrir verðtryggingu eru breytilegir vextir.

Þeir eru hærri og hækka í samræmi við verðbólgu. Ekki ósvipað og verðtryggð lán nema að þú borgar hærri afborganir strax í stað þess að fresta þeim sem aftur leggjast á höfuðstól í framtíðinni.

Ef menn vilja þetta... gott og vel. Þetta er kannski ágætt því þá fer fólk loks að bölva varðbólgunni en ekki verðtryggingunni. Þá munu fleiri hvetja til hóflegar launahækkanir og fordæma kröfur BHM sem dæmi.

En með afnámi verðtryggingarinnar munu fleiri bankar bjóða uppá vaxtagreiðsluþak  sem virkar einfaldlega þannig að ef verðbólgan eykst og stýrivextir einnig þá fær lántaki tækifæri á að greiða hluta af afborguninni og restin fer á höfuðstólin..MEÐ ÞESSU ERTU FAKTÍSTK MEÐ VERÐTRYGGT LÁN.

hvells


mbl.is Kynna tillögur vegna neytendalána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þetta er gerlegt ef hagstjórn er góð. Ég t.d. treysti mer að fara fyrir ríkisstjórninni sem forsætisráðherra og koma góðri hagstjórn á koppinn. Það kostar miklar óvinsældir. Mundi hætta við skuldaniðurfellingu verðtryggðra lána, hætta við mörg útgjöld og skera niður allsvaklega, öll fita í burtu.

En hinsvegar er ekki hægt að afnema verðtryggingu með slæmri hagstjórn. SDG býður einungis uppá það. B-Ben gerir sitt besta að hemja hann en nær því ekki.

kv

slegg

Sleggjan og Hvellurinn, 21.1.2014 kl. 16:43

2 Smámynd: Rafn Guðmundsson

rétt hjá þér sýnist mér - bíð spenntur eftir að sjá tillögurnar. mitt mat er að eina leiðin fyrir okkur ísl. sé ESB

Rafn Guðmundsson, 21.1.2014 kl. 16:54

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ESB væri mikiði framfaraspor fyrir okkur Íslendinga.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 21.1.2014 kl. 17:16

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þegar verðtryggingin verður farin hætta breytilegu vextirnir að elta hana og við fáum eðlilegt vaxtaumhverfi.

Eina spurningin er hvenær þú átt eftir að skilja þetta.

...eða hætta að þykjast ekki skilja þetta.

Guðmundur Ásgeirsson, 21.1.2014 kl. 18:26

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

breytilegu vextirnir elta verðbólguna... ekki verðtrygginguna

er ekki kominn tími á að þú skilur það Guðmundur

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 21.1.2014 kl. 19:39

6 identicon

Hefði Bjarni Ben fengið að standa við loforð sín fyrir kosningar væri nú verið að leiðrétta 20% á línuna, öll verðtryggð húsnæðislán í landinu.

Margfalt meiri upphæðir en stendur til í dag að nota.

Bara svo staðreyndum sé haldið til haga, og inni í þeim áætlunum átti hver einasta króna að koma úr ríkissjóði og ekkert rætt um að skattleggja þrotabúin.

Síðan kemur Hvells enn og aftur og talar um að ESB væri mikið framfaraspor, það er auðvitað ekkert rökstutt frekar en venjulega.

Hann t.d. getur ekki frekar en aðrir háværustu stuðningsmenn ESB útskýrt hvernig sú aðild á að losa okkur við gjaldeyrishöftin.

Sigurður (IP-tala skráð) 21.1.2014 kl. 19:43

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Seðlabanki ESB verður okkar bakhjarl við losun haftana og við komumst í ERM2 og í framhaldi taka upp evru. Getur ekki verið skýrara.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 21.1.2014 kl. 20:38

8 identicon

Seðlabanki ESB svona virkar seðlabankinn

 http://www.youtube.com/watch?v=iFDe5kUUyT0

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 21.1.2014 kl. 21:05

9 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

@Sigurður

BB reyndar lofaði skuldaniðurfellingu. Hluti úr ríkissjóð meira segja. Skattfrjálst af viðbótarlífeyrissparnaði og skattaafslætti. 

Hægt er að nálgast XD auglýsinguna á youtube.

Voðalega er Guðmundur upp með sér. Það gerist ekkert nema með góðri hagstjórn, Guðmundur nefndi hana ekki á nafn í þessu kommenti hans.

slegg

Sleggjan og Hvellurinn, 21.1.2014 kl. 21:27

10 Smámynd: Benedikt Helgason

@hvells #7.

Að ætla að losa höftin með því að taka upp Evru er snákaolía.

Þú hefðir gott af því að fara í gegnum þá æfingu að reyna að sjá fyrir þér hvað myndi gerast ef við myndum fara í ERM2 á morgun.  Til þess að komast inn í ERM2 þá þarf að semja um skiptigengi sem seðlabanki Evrópu treystir sér til þess að verja með vikmörkum.

Ef skiptigengið yrði 160 kr per Evra (ca. núverandi SÍ gengi) þá myndi snjóhengjan fossa út úr hagkerfinu og væri áður en sólin myndi setjast á morgun sennilega orðin að 1000-1200 milljarða skuld íslenskra skattgreiðenda við ECB.

Ef skiptigengið yrði 240 kr per Evra (raungengi miðað við stærð snjóhengjunnar) þá myndu eigendur erlendra krónueigna mögulega vilja vera áfram í landinu en Íslendingar tækju þar með á sig 30% gengisfall ofan á það sem varð í hruninu.

Þú ert í raun að leggja til að hagkerfið verði endanlega sett í þrot til þess eins að fá að komast í ESB.

Benedikt Helgason, 22.1.2014 kl. 08:57

11 identicon

Hvells,

"Seðlabanki ESB verður okkar bakhjarl við losun haftana"

Þetta segir ekki neitt.

Við þurfum evrur til að afhenda þeim sem vilja fara úr landi.

Ertu að meina að Seðlabanki Evrópu myndi gefa okkur nokkur þúsund miljarða í evrum, svona nokkurs konar innflutningsgjöf, eða á ríkið að taka þær að láni.

Útskýrðu.

Sigurður (IP-tala skráð) 22.1.2014 kl. 08:59

12 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Auðvitað er það verðbólgan sem peningamálaþróun síðan fylgir í stóra samhenginu. Það er svo mikil staðreynd - að það er alveg ótrúlegt að sjá svo marga mótmæla því að svo mikilli ákefð eins og verið hefur undanfarin misseri og ár.

Að öðru leiti vill maður fá að sjá einhverjar niðurstöður í dómsmálaþvarginu varðandi verðtryggð lán. Tekur allt of langan tíma.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 22.1.2014 kl. 12:28

13 identicon

Dómsniðurstaða í verðtryggðu lánunum er fullkomlega fyrirsjáanleg.

Verðtryggð lán á Íslandi eru kolólögleg, og það á ekkert bara við um húsnæðislánin, heldur öll verðtryggð lán eins og LÍN til dæmis.

Sigurður (IP-tala skráð) 22.1.2014 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband