Eignasafn

Lífeyrissjóðirnir eiga skuldabréf og hlutabréf.

Hlutabréfin hafa hækkað mikið árið 2013 og því er ávöxtunin þar gefin.

Svo kaupa lífeyrissjóðirnir skuldabréf frá íbúðarlánasjóði og ríkissjóði. Bæði verðtryggð með hærri en 3,5% raunvexti.

Þessvegna ætti 3,5% raunávöxtun vera alveg gefið. 

Eina sem gæti komið í veg fyrir það væri þessi gríðarlega yfirbygging lífeyrissjóðana og ofurlaun stjórnenda.

hvells


mbl.is Ávöxtunin 2013 yfir viðmiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæri Hvellur,

Verðið á hlutabréfunum getur líka lækkað. Ávöxtunin er heldur ekki komin í hús fyrr en hlutabréfin eru seld. Margir brenndu sig á þessu 2008, þ. á m. lífeyrissóðirnir sjálfir.

Einnig þarf að hafa það í huga að í okkar "lokaða hagkerfi" eru það fjárfestingar lífeyrissjóðanna sjálfra sem eru væntanlega stærsta skýringin á hækkun hlutabréfa.

Varðandi Íbúðalánasjóð, þá hefur það komið fram að sjóðurinn stendur á brauðfótum og getur væntanlega ekki að óbreyttu staðið við sínar skuldbindingar, a.m.k. ef tekið er mark á fréttaflutningi af sjóðnum.

Þá skiptir verðbólgustigið einnig verulega miklu máli þar sem viðskiptavinir sjóðsins ýmist geta ekki eða vilja ekki greiða af lánum sínum ef verðbólgan er of há, eins og einnig hefur komið í ljós, sérstaklega eftir 2008.

Skúli Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.1.2014 kl. 10:46

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Skúli.

Ekkert af þessu kemmenti þínu tengist minni færslu.

 Það er verið að tala um árið 2013 í fréttinni og ég held mér við það ár í færslunni. Þar er ég að segja að það kemur mér ekki á óvart að ávöxtunin sé yfir viðmiðið (3,5%) árið 2013. Og færi ýmis rök fyrir því.

Sumir halda því fram að á hlutabréfamarkaðinum  en ef litið er á VH hlutfall, þeirrar kennitölu sem algengast er að miða við, þá er vegið meðaltal VH hlutfalls íslenska markaðarins nú 16,1 sem er lægra en bandarísku S&P 500 vísitölunnar sem er 19,1 og svipað verði hlutabréfa í heiminum, MSCI World Index, sem er 16,5.

Svo er það þannig að þótt ÍLS er "á brauðfótum" og fólk getur ekki borgað lánin sín þá fær lífeyrissjóðir allt sitt greitt vegna þess að sjóðurinn er með ríkisábyrgð.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 7.1.2014 kl. 11:07

3 identicon

Sæll Hvellur,

Ég áttaði mig ekki á því að þú varst bara að tala um árið 2013.

Það breytir þó ekki því að falli hlutabréf í verði á þessu ári eða í framtíðinni getur þessi "ávöxtun" ársins 2013 hæglega horfið á einum degi þess vegna hafi ávöxtunin ekki verið innleyst, þ.e. bréfin seld.

Það má einnig vera að hlutabréfamarkaðurinn sé í góðu standi núna, en það þýðir ekki að hann verði það í framtíðinni, þó að auðvitað voni maður það.

Að lokum varðandi þessa ríkisábyrgð eða meintu ríkisábyrgð á Íbúðarlánasjóði þá held ég að hún sé meira í orði en á borði. Held að hana sé hvergi að finna í lögum og ekki má nú skuldbinda ríkissjóð án sérstakrar lagaheimildar.

Skúli Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.1.2014 kl. 12:07

4 identicon

Merkileg þessi síbylja um ríksiábyrgð á Íbúðalánasjóði.

Hún er engin.

Það er alveg sama hvað þessi ríkisábyrgð er endurtekin oft, að hún verður ekkert til við það.

Það er engin ríkisábyrgð á þessum sjóð, neitt frekar en innstæðutryggingasjóðnum.

Það er alveg á hreinu.

Og hækkanir á hlutabréfum inni í læstu hagkerfi þar sem lífeyrissjóðirnir eru að kaupa hver af öðrum hring eftir hring......hringir það engum bjöllum?

Sigurður (IP-tala skráð) 7.1.2014 kl. 12:42

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Afhverju er þá ríkið að dæla milljarða í þennan sjóð?

For fun?

 Það er hvimleitt að vera alltaf að eyða orkunni í svona bull umræður.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 7.1.2014 kl. 13:59

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Að undanförnu hefur borið nokkuð á umræðu um hvort ríkissjóður beri ábyrgð á fjárskuldbindingum Íbúðalánasjóðs og því verið velt upp hvort lagaheimild skorti fyrir slíkri ábyrgð. Sem innlegg í þessa umræðu eru hér áréttaðar nokkrar staðreyndir sem leiða til þeirrar óyggjandi niðurstöðu að ríkissjóður ber, lögum samkvæmt, ábyrgð á fjárskuldbindingum Íbúðalánasjóðs.

Stjórnsýsluleg staða Íbúðalánasjóðs
Íbúðalánasjóður er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem annast stjórn og framkvæmd húsnæðismála á grundvelli laga um húsnæðismál nr. 44/1998. Sjóðurinn heyrir stjórnarfarslega undir félags- og húsnæðismálaráðherra sem fer jafnframt með yfirstjórn þeirra mála sem lög um húsnæðismál taka til. Íbúðalánasjóður flokkast sem C-hluta stofnun samkvæmt lögum um fjárreiður ríkisins nr. 88/1997 og er því hluti af ríkisreikningi.

Ábyrgð ríkissjóðs á fjárskuldbindingum Íbúðalánasjóðs
Gera verður skýran greinarmun á ríkisábyrgðum fyrir tiltekna aðila og eigendaábyrgð ríkissjóðs. Með fyrrnefndum ábyrgðum tekst ríkissjóður á hendur ábyrgð á lánum tiltekinna aðila á grundvelli sérstakrar lagaheimildar sem er fyrir hendi í hverju tilviki, sbr. 1. gr. laga um ríkisábyrgðir nr. 121/1997. Eigendaábyrgð ríkissjóðs byggir hins vegar á þeirri ótvíræðu meginreglu íslensks réttar að ríkissjóður beri ábyrgð á skuldbindingum stofnana sinna og fyrirtækja, þ.m.t. Íbúðalánasjóði, nema sú ábyrgð sé takmörkuð með lögum. Þessi meginregla endurspeglast t.d. í  6. gr. laga um ríkisábyrgðir þar sem segir að ábyrgð ríkissjóðs geti komið til vegna eignaraðildar ríkissjóðs eða annars.

Ábyrgð ríkissjóðs á fjárskuldbindingum Íbúðalánasjóðs grundvallast á því að ríkið er eigandi sjóðsins. Löggjafinn hefur ítrekað staðfest ábyrgð ríkissjóðs á fjárskuldbindingum Íbúðalánasjóðs. Þannig er Íbúðalánasjóður tilgreindur í lögum um ríkisábyrgðir sem einn þeirra aðila sem undanþegnir eru greiðslu ábyrgðargjalds vegna ábyrgðar ríkissjóðs, sbr. 7. gr. laganna. Að auki er sérstaklega tekið fram í athugasemdum með frumvarpi til laga um ríkisábyrgðir að ríkissjóður beri ábyrgð á fjárskuldbindingum Íbúðalánasjóðs. Þá er ábyrgð ríkissjóðs áréttuð í frumvarpi til laga um húsnæðismál. Að lokum má nefna að tilvist þessarar ábyrgðar ríkissjóðs er staðfest í athugasemdum við frumvarp til fjárlaga, eins og 26. gr. laga um fjárreiður ríkisins nr. 88/1997 gerir ráð fyrir.

40. gr. stjórnarskrárinnar
Í 40. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 felst að lántökur sem  skuldbinda ríkið eru bannaðar nema samkvæmt lagaheimild. Efnisinntak ákvæðisins takmarkast ekki við ríkissjóð, heldur fellur Íbúðalánasjóður þar undir sem opinber ríkisstofnun, þ.e. ríkisaðili. Íbúðalánasjóður hefur ótvíræða lagaheimild til lántöku með (i) útgáfu og sölu íbúðabréfa, sbr. 1. tl. 10. gr. og 22. gr. laga um húsnæðismál og (ii) lántöku skv. fjárlögum hverju sinni, sbr. 1. tl. 10. gr. laga um húsnæðismál. Þessi lántökuheimild Íbúðalánasjóðs hefur verið staðfest í fjárlögum, en vert er að benda á í þessu sambandi að fræðimenn á sviði stjórnskipunarréttar eru þeirrar skoðunar að slíkar ábyrgðarheimildir í fjárlögum séu orðnar venjuhelgaðar.

Af því sem nú hefur verið rakið er ljóst að ábyrgð ríkissjóðs á lántökum Íbúðalánasjóðs, sem falla innan heimilda laga um húsnæðismál, stangast ekki á við 40. gr. stjórnarskrárinnar. Engin þörf er því á sérstakri lagasetningu um þetta efnisatriði og er tíma Alþingis betur varið til að sinna öðrum brýnni málum.

http://www.vb.is/skodun/97849/

Sleggjan og Hvellurinn, 7.1.2014 kl. 14:03

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Skúli.

Finnst þér samt ekki eðlilegt að ef hlutabréf hækka í verði þá er talað um ávöxtun á fé? Þarf maður endilega að selja?.

Segjum ef þú ættir íbuð sem þú keyptir á 11 milljón í miðbænum 2011. Væri núna verðlögð á 19 milljónir í nýju fasteignamati.

Værir þú í huga þínum ennþá með 11m eign eða 19m eign?  Einungis 19m ef þú mundir selja ? Hvernig mundi hugirinn þinn virka?

kv

Slegg

Sleggjan og Hvellurinn, 7.1.2014 kl. 18:56

8 identicon

Búinn að lesa þessa grein og þar er fullyrðing um ríkisábyrgð ekki rökstudd á nokkurn hátt, nema að hún sé nefnd í athugasemdum við frumvarp til laga um ríkisábyrð og svo aftur nefnd í frumvarpi til laga um húsnæðismál.

S.s. hvergi að finna neina lagaheimild fyrir þessari8 meintu ríkisábyrgð.

Hér segir Forstjóri sjóðsins að engin lagaheimild sé til fyrir þessari meintu ríkisábyrgð.

http://www.vb.is/skodun/97898/

Hér skrifa tveir lögmenn að þessi ríkisábyrgð sé hreint ekki ljós.

http://www.vb.is/skodun/96883/

Hér talar einn reyndasti þingmaðurinn okkar, Pétur Blöndal um það að engin ríkisábyrgð sé á sjóðnum.

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/09/13/segir_enga_rikisabyrgd_a_budalanasjodi/

Stjórnarskráin er mjög skýr og einföld um skilyrði sem þarf að uppfylla til að hægt sé að veita ríkisábyrgð, sama má segja um lögin um ríkisábyrgðir, að ríkisábyrgð getur aldrei verið á neinu nema með skýrri lagaheimild frá Alþingi.

Og sú lagaheimild er ekki til staðar í dag, og ætti ekki að þurfa að segja lögmönnum, hvað þá hæstaréttarlögmönnum að umsagnir um lagafrumvörð eru ekki lög, og fullnægja ekki kröfum Stjórnarskrárinnar um skýra lagaheimild.

Það er engin ríkisábyrgð á sjóðnum.

Sigurður (IP-tala skráð) 7.1.2014 kl. 20:07

9 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er ekki ríkisábyrgð á sjóðnum. Ekki meitlað í stein í lögum. Alveg eins og það er ekki meitlað i stein að hér er 100% ábyrgð á innistæðum.... það er ekki í lögum heldur bara orð ríkistjórnarinnar í ÞARSEINUSTU ríkisstjórn.

En ef það er ekki ríkisábyrgð.. hvernig útskýrir þú öllum þessum milljörðum sem hefur verið dælt í þennan sjóð og þá 14 milljarða sem mun fara í hann á þessu ári?

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 7.1.2014 kl. 21:43

10 identicon

Það er engin ríkisábyrgð á innstæðun heldur.

Af nákvæmlega sömu ástæðum og það er engin ríkisábyrgð á íbúðalánasjóði eða innstæðutryggingasjóði.

Stjórnarskráin er alveg skýr með þetta, og við vitum það báðir jafnvel að yfirlýsingar ríkisstjórnar eða hvers sem er eru ekki rétthærri Stjórnarsrkánni okkar.

Ég get ekkert útskýrt hvers vegna er verið að dæla peningum í þennan sjóð, ekkert frekar en ég get útskýrt hvers vegna peningum var dælt í Sjóvá á sínum tíma, varla ætlarðu að halda því fram að það hafi verið ríkisábyrgð á tryggingafélaginu?

Sigurður (IP-tala skráð) 8.1.2014 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband