Þriðjudagur, 7. janúar 2014
Ofstæki
Umhverfisráðherra ætlar að þrefalda friðlandið á þessu svæði.
VG fær hjataáfall. Hvers vegna?
Jú friðlandi fer aðeins kringum eina á.... málið dautt. Þetta er svo óverulegt að það þarf að stækka myndina í fréttinni til þess að sjá einhvern mun.
Þetta sýnir bara svart á hvítu hversu miklar öfgar eru í "umhverfisverndar" fólki.
Þeir eru löngu hættir að hugsa um umhverfið heldur eru þeir á móti allri atvinnu uppbyggingnu.
Umhverfissinnar eru einsog melónur.
Grænar að utan..............en rauðar að innan.
http://www.treehugger.com/corporate-responsibility/6-green-lessons-we-can-learn-from-communism.html
hvells
![]() |
Veitan áfram hagkvæm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Norðlingaölduveita er í raun virkjun Þjórsár og uppþurrkun þriggja stórra fossa í henni, þar sem tveir eru á stærð við Gullfoss. Hvers konar "umhverfisöfgar" voru hjá Sigríði í Brattholti að berjast fyrir friðun eins foss á stærð við Gullfoss úr því að það eru "umhverfisöfgar" að berjast fyrir því að tveir og hálfur Gullfoss verði eyðilagður?
Ómar Ragnarsson, 7.1.2014 kl. 09:36
Að mínu mati eru frekar ofstækisfullt að gera mikið úr því að friðlandið minnkar um 0,5% að flatamáli.
En það er mjög góð taktík hjá þér að rifja upp Sigríði í Brattholti og Gullfoss vegna þess að þetta er mjög góð leið til stympla mig sem einhverskonar umhverfissóði sem hefði viljað eyðileggja Gullfoss á sínum tíma. Góð leið til þess að snúa umræðuefninu á haus.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 7.1.2014 kl. 10:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.