Mánudagur, 6. janúar 2014
Sterkur inn
Hjálmar hefur gríðarlega þekkingu á skipulagsmálum og það er mikill akkur fyrir Samfylkinguna að fá hann inn í borgarstjórn.
XS mun að öllu líkindum ná ágætis árangri og betri árangri en í fyrra og margir fara frá Besta yfir í XS... enda er listi Bjartrar framtíðar mjög lélegur. Ef maður tala svona hreint út.
Hjálmar verður að sýna festu í skipulagsmálum og ekki hlusta á þetta tilfinningaklám varðandi flugvöllin.
Ég spái því að Samfylkingin og Björt framtíð mun ná meirihluta. Sjálfstæðisflokkurinn teflir framm mjög veikan lista í ár. Miðaldra riðsaeðlur í fyrstu þrem sætunum.
Það væri nær að hafa konurnar sem eru í 4-6sæti í forystu til að leiða listann.... þá væri XD í góðum málum.
hvells
![]() |
Hjálmar stefnir á 2.-3. sætið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hjálmar Sveinsson er flottur. "Ein sehr guter Mann".
Vonandi á hann eftir að móta stefnu "Social Democrata" á Íslandi og færa flokkinn til vinstri úr hægra krunki Blairistanna Ingibjargar Sólrúnar og Árna Páls.
Mætti segja mér að hann yrði maðurinn til að gera flokk jafnaðarmann á Íslandi að alvöru og sterku pólitísku afli, sem það hefur aldrei verið. Ekki einu sinni undir leiðsögn Jóhönnu.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 6.1.2014 kl. 10:20
Jóhanna hefur fært XS til vinstri með skelfilegum afleiðingum.
XS hefur aldrei verið stærri en einmitt undir stjórn Ingibjargar í borginni (r listinn) og svo undir stjórn Össurar. Þeir voru hægri kratar. Blairisminn ríkjandi.... það er það sem virkar og það sem þjóðin vill.
Það þarf öflugt atvinnulíf til þess að halda uppi velferðarkerfinu.
En Hjálmar má halda sig við skipulagsmálin... enda er það ekki hlutverk borgarfulltrúa að innleyða einhverja pólitiska stefnu í landsmálin.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 6.1.2014 kl. 11:01
Það er áróður og bull Íhaldsmanna að Jóhanna hafi fært Samfylkinguna til vinstri. Með þeim áróðri skal fela ultra-hægri stefnu eigin flokka í atvinnumálum, sem er bæði þjóðinni og náttúrunni fjandsamleg
Enginn var að segja að borgarfulltrúar eigi að innleiða pólitíska stefni í landsmálum. Ég var hinsvegar með það í huga að Hjálmar ætti eftir að fara yfir í landspólitík. Okkur vantar þar sterkan og ungan mann.
Auðvitað þarf öflugt atvinnulíf, en stjórnmálaflokkar eiga ekki að vera í atvinnurekstri, hvorki beint né óbeint. En nákvæmlega það gerist á klakanum, og kallast pilsfald kapítalismi.
Flokkar eiga að sjá um góð skilyrði, góðan ramma fyrir atvinnurekstur, en það gera allir Social Democratískir flokkar í Evrópu í dag, jafnvel mun betur en Íhaldsflokkarnir með inngróna spillingu og pilsfald kapítalsima.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 6.1.2014 kl. 11:52
Enginn áróður.
Bara staðreynd.
Kemur ekki frá íhaldsmönnum heldur Samfylkingunni sjálfri.
Það er alveg óþarfi að færa XS meira til vinstri. Menn væru bara nær að kjósa Vinstri Græna í staðinn.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 6.1.2014 kl. 12:32
Jæja, bara "staðreynd".
Ok, boy, viltu þá gjöra svo vel og nefna mér tvö eða þrjú dæmi um þessa skelfilegu vinstri sveiflu Samfylkingarinnar á síðasta kjörtímabili?
Fyrirfram þakkir.
PS. Vinstri Grænir er enginn jafnaðarmannaflokkur.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 6.1.2014 kl. 16:11
Heimild um vinstri sveiflau XS er seinasta kjörtímabil.
Ef þú vilt fara frekar til vinstri en þar sem Samfylkingin er núna þá væri nær að kjósa VG.
Þó að XS kalli sig "jafnaðarmannaflokkur" þá er það ekki þar með sagt að það er staðreynd.
VG gæti alveg eins kallað sig "jafnaðarmannaflokk"
Hvað er jafnaðarmannaflokkur? .... jú að reyna að jafna kjör landsmanna og mér sýndist Steingrímur J vera að því með hans skattastefnu. Hann er í VG.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 6.1.2014 kl. 17:07
Þú svarar út í hött.
"Forget it".
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 6.1.2014 kl. 17:38
Hjálmar má bara koma aftur í útvarpið. Krossgötur þátturinn hans var tær snilld, ég byrjaði að hlusta á þennan þátt alltof seint, náði bara hálfu ári eða svo. Þannig Hjálmar: KOMDU AFTUR Í UTVARPIÐ.
KV
SLEGGGGG
Sleggjan og Hvellurinn, 6.1.2014 kl. 19:16
Haukur
Það er engkennilegt hjá þér að geta stimplað hina og þessa flokka sem jafnaðarmanna flokkur
En getur ekki einusinni skylgreint hvað jafnaðarmannaflokkur er....
Ég skal gefa þér annað tækifæri til þess núna.
"forget it" er ekki svar
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 6.1.2014 kl. 19:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.