100?

Ætla að benda á það augljósa.

Eimskip varð gjaldþrota árið 2009 og er nú komið með nýja kennitölu....  reyndar sama nafn en félagið gat alveg eins verið nefnt eitthvvað allt annað.

En með vondum stjórnendum í góðærinu þá endaði 95ára saga félagsins.

Núverandi félag sem er skráð í kauphöllina er 5ára. Sem er ágætt í sjálfu sér.

hvells


mbl.is Óskabarn þjóðarinnar 100 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hárrétt hjá þér.

Núverandi félag sem ber nafnið Eimskip er ekki félagið sem var stofnað 1914, nafn þess félags var fyrst Flugfélagið Atlanta hf.og er stofnað 1986 af hjónunum Arngrími og Þóru. Það félag hefur sætt nafnabreytingum sem endaði í Eimskip.

Björgólfur lagði niður óskabarn þjóðarinnar með formlegum hætti á sínum tíma, þ.e.a.s. það félag sem var stofnað 1914, og var lýst gjaldþrota.

Hluti eigna þess rann síðan ínn í annað félag eins og finna má í fyritækjaskránni hjá RSK. Þannig er þetta ekki óskabarn þjóðarinnar svonefnt. Þetta er hann sagður hafa gert í hefndarskyni vegna Hafskipamálsins hans þar sem hann var sakfelldur fyrir ýmis lögbrot, en kenndi Eimskip um síðar.

Sjá töflu frá Ríkisskattstjóra :

Rek.ár Nafn Skiladagsetning Nr. ársreiknings

2008 Hlutafélagið Eimskipafélag Íslands Ársreikningi ekki skilað

2007 Hlutafélagið Eimskipafélag Íslands 9. apríl 2008 73421 SR

2006 Hlutafélagið Eimskipafélag Íslands 12. febrúar 2008 87220 AR

2005 Avion Group hf 14. febrúar 2007 94958 AR

2004 Avion Group hf 2. febrúar 2006 98057 SR

2003 Avion Group hf 1. nóvember 2004 140365 AR

2002 Flugfélagið Atlanta hf 17. nóvember 2003 811451

2001 Flugfélagið Atlanta hf 21. nóvember 2002 710286

2000 Flugfélagið Atlanta hf 23. nóvember 2001 607318

1999 Flugfélagið Atlanta ehf 27. nóvember 2000 507634

1998 Flugfélagið Atlanta ehf 22. desember 1999 408390

1997 Flugfélagið Atlanta ehf 9. desember 1998 306217

1996 Flugfélagið Atlanta ehf 16. október 1997 204895

1995 Flugfélagið Atlanta hf 16. október 1997 105366

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 4.1.2014 kl. 16:37

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Takk fyrir innlitið og þessar fróðlegu upplýsingar

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 4.1.2014 kl. 16:52

3 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Hver er þú sem þorir ekki að koma undir nafni. Fyrir það fyrsta hefur Eimskip ekki orðið gjaldþrota. þarna er farið rangt með, sem er í raun alvarlegt mál. Enn ég skil ekki reiði manna og sérstaklega menn sem vilja vera marktækir á meðal manna. Frekar ættir þú að kynna þér sögu Eimskipafélagsins áður er ráðist er fram á ritvölinn með fúkyrðum um félag sem veitir þúsundir manna sitt lifibrauð og er traust og gott félag sem sér um að koma afurðum á markað á réttum tíma og koma vörum til landsmanna, það eitt er eftirtektavert og stórkostlegt að borga laun starfsmanna á réttum tíma. Annað sem þú tekur þátt í að reyna að koma höggi á Eimskipafélagið er þér ekki til framdráttar. þín skrif fylgja þér og munu ekki glatast. Þess vegna er ætíð gott að fara rétt með þegar um skrif eru um að ræða.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 5.1.2014 kl. 17:42

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

28.8.2009 var nauðasamningur staðfestur við Héraðsdóm Reykjavíkur enda félagið í raun löngu tæknilega gjaldþrota hafa bókhaldsspekingar sagt.

Lausn þessara nauðasamninga var að koma flestum eigum félagsins í annað félag sem samkvæmt blaðafréttum þar um yrði nafni þess félags síðan breytt í Eimskip. Þessar sjónhverfingar kostuðu kröfuhafa óskabarnsins gífurlegar fjárhæðir sem þeir kusu að tapa frekar en að tapa nokkurn veginn öllum kröfum sínum við gjaldþrot sem blasti við félaginu. Stærstu kröfuhafarnir fengu i staðinn hlut í félaginu sem bestu bitarnir voru fluttir í. Einhvern tímann hefðu menn sett hljóða af minna tilefni en þessu kennitöluflakki og rætt um aflúsun eður undanskotum. Það talaði skiptastjóri Hafskipa um en þar réði einmitt ríkjum sami maðurinn og fylgdi óskabarninu „til grafar”, Björgólfur Guðmundsson.

Sjá grein Kristjáns Guðmundssonar skipstjóra hjá óskabarninu raunverulega um langan tíma :

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1298036/

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 5.1.2014 kl. 18:07

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jóhann Páll ryðst á milli blogga um þetta mál og bullar út í eitt talar um reiði manna og annað í þeim dúr. Honum er fyrirmunað að skilja að tvö fyrirtæki, með sitthvora kennitöluna geta undir engum kringumstæðum  talist sama fyrirtækið, þó reynt sé að láta líta svo út. Það geta verið sömu eigendur að báðum fyrirtækjunum, en lagalega séð eru þau ekkert skyld.

Fyrirtæki geta skipt um nafn en eru óumdeilt sama fyrirtækið meðan kennitalan er sú sama.

Ef einhver er að koma höggi á Eimskipafélagið Jóhann Páll, þá gerir það enginn nema félagið sjálft þegar það, með kennitölu frá 2009, skrökvar því vísvitandi að það sé 100 ára gamalt. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2014 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband