Laugardagur, 4. janúar 2014
Þegar stjórnmálamenn reyna að hafa vit fyrir fólki
Þetta var frekar fyrirsjáanlegt. Stjórnmálamenn reyndu að hefta aðgang fólks að tópaki, þá finnur fólkið bara aðrar leiðir. Svarti markaðurinn verður fyrir valinu.
Þetta gerist líka ef á að banna áfengi.
Gerist líka með því að banna vændi.
Fer undir yfirborðið.
Einnig með önnur vímuefni sem eru þegar bönnuð. Allt á svarta markaðnum.
kv
sleggjan
![]() |
Svartamarkaðsbrask með sígarettur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hvað er tópak?
Jón Steinar Ragnarsson, 4.1.2014 kl. 01:10
varst það ekki þú Jón Steinar Ragnarsson sem gafst i skin að vera i 10% gávafðasta klúbbnum, svo spýrð þú kvað er tópak. já eg veit bara útúrsnúningur svo allir viti að þú kant að stafa
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 4.1.2014 kl. 09:57
Sæl sleggja.
Alveg sammála. Einu lögin sem í reynd virka eru lög sem fólk myndi fylgja hvort sem til væri lagabókstafur þar um eða ekki. Eigum við ekki allt eins að setja lög um mannasiði? Sekta t.d. þá sem eru ókurteisir við afgreiðslufólk í verslunum?
Svo er auðvitað kapítuli út af fyrir sig hvernig stendur á því að sumir telja sig vita meira en aðrir. Ég held að við fáum í stjórnmál, ekki bara hérlendis auðvitað, fólk sem telur sig vita meira en aðrir og fólk sem hefur mikla athyglisþörf. Allir sem vilja sjá að stjórnmálamenn víða um heim hafa staðið sig illa þannig að nokkuð ljóst er að ekki er rétta fólkið að bjóða sig fram til starfa í stjórnmálum (með örfáum undantekningum auðvitað).
Það blasir við að bann gegn vímuefnum hefur mislukkast. Samt halda ótrúlega margir áfram að berja höfðinu við stein.
@1: Orðflokkagreindu þessar tvær málsgreinar:
Hún kom í dag.
Hann kom í gær.
Helgi (IP-tala skráð) 4.1.2014 kl. 10:44
Stjórnmálamenn koma ekkert við hvað við borgarar látum ofan í okkar eigin líkama.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 4.1.2014 kl. 16:14
Tóbak átti það að vera.
Þakka Jóni Stafsetningalöggu fyrir.
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 4.1.2014 kl. 19:05
"Stjórnmálamenn koma ekkert við hvað við borgarar látum ofan í okkar eigin líkama."
Er það alveg svo einfalt?
Á meðan þeir sem eru að sjúga þetta eitur ofan í sig senda okkur hinum reikninginn fyrir sjúkrakostnaðinum af þessum reykingum er kannski ekkert óeðlilegt að stjórnmálamenn reyni að setja fram aðgerðir til að hefta reykingar.
Ég er til dæmis mjög ósáttur við að reykingafólk nútímans sem er fullkomlega meðvitað um hvað það er að gera sér geti síðan lagst ókeypis inn á dýrustu spítala heims og fengið ókeypis lækningar við afleiðingunum á kostnað samfélagsins, því þá er það ekki lengur "einkamál" reykingamannsins hvað hann setti ofan í sig.
Sigurður (IP-tala skráð) 4.1.2014 kl. 21:58
Eins og staðan er í dag Sigurður eru reykingamenn að borga fyrir þetta með himinháum gjöldum á tóbak.
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 5.1.2014 kl. 14:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.