Gylfi að standa sig

"Frá ársbyrjun 2008 til janúar 2014 hækkuðu lágmarkslaun (lágmarkstekjutrygging fyrir fullt starf) um 71% á sama tíma og almennar launahækkanir samkvæmt kjarasamningum námu 28%."

Merki um að Gylfi er að standa sig vel.... annað en lýðskrumarinn Vilhjálmur Birgisson heldur fram. Hann ætti að skammast sín......    eða gera annað Hitler myndband.

hvells


mbl.is Lægstu taxtar hafa hækkað mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef fólk gæti nú farið í Bónus og borgað með prósentum, þá væri málið leyst.

Gylfi og félagar hans í SA hafa eitthvað minni áhuga á að ræða þróunina í krónum og aurum, enda talsvert önnur mynd sem kæmi upp þá.

Svona reiknikúnstir eru ekkert innlegg í umræðuna og eru engum til gagns.

Launin eru greidd út í krónum, og reikningarnir borgaðir í krónum, ekki prósentum.

Sigurður (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 16:38

2 identicon

Þrátt fyrir hækkun lágmarkslauna / tekjutryggingar þá duga lágmarkslaunin ekki fyrir framfærslu einstaklings, sbr. viðmið Velferðarráðuneytisins.

Mér finnst engin ástæða til þess að hrópa húrra fyrir frammistöðu ASÍ eða Gylfa af þessu tilefni.

Skúli Sigurðsson (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 16:51

3 identicon

Því miður

Þarna er enn einu sinni verið að tala um prósentur...

Ef launþegi með 220.00 fær 100 % kauphækkum á 5 árum gerir það 444.000

vá rosalegt !!

Og sá sem er með miljón, fær ekki nema 45% á þessum fimm árum fær hann 1450.000....sem sagt laun hans hækka meir en lægt launuðu, þott hann fái miklu lægri prósentuhækkun

En auðvitað fær sá sem er með milljónia sömu hækkun...og er þar með 2 milljónir..

Það á ekki að láta fólk með yfir milljón á mánuði semja um laun fyrir fólk með 220.000... það ætti að vera öfugt.

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 17:37

4 identicon

Sæll.

Ég missti allt álit á Vilhjálmi Birgis við þetta Hitlers-myndband. Það var afar ómálefnalegt og höfðaði til öfundar fólks.

@3: Þú reiknar rangt :-) Annars get ég tekið undir með þér í því sem þú segir undir blálokin. Lausnin er sú að fólk hætti í verkalýðsfélögum og að hver og einn semji fyrir sig. Sum fyrirtæki ráða sjálfsagt við meiri hækkun en Gylfi samdi um en önnur ráða kannski afar illa við þá hækkun og þá er hætt við að sú kauphækkun leiði til uppsagna.

Lausnin er ekki að reyna að kreista sífellt meira út úr vinnuveitendum - mörg fyrirtæki standa sjálfsagt ekkert alltof vel og vinnuveitendur tína ekki peninga af trjám frekar en launamenn.

Lausnin er að krefjast þess að hið opinbera lækka skatta verulega og segi upp opinberum starfsmönnum. Leggja má niður heilu geira hins opinbera án þess að nokkur maður taki eftir því.

Helgi (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 17:55

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Lágmarkslaun hafa hækkað um 71% en hærri launin um 28%... hvernig er hægt að misskilja þetta?

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 3.1.2014 kl. 18:38

6 identicon

Skora á þig að nota launatölur en ekki prósentur.

71 % er ekkert mjög mikil tala af 170-220 þús

28 % af td 1.000.000 er td. öll launin hjá hinum.

+

Vertu nú raunsær

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 19:59

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég hvet Vilhjálm Birgisson til að halda sínu striki.

Hann virðist vera sá eini af þessum verkalýðsforystu-(eitthvað), sem talar um raunveruleikann eins og hann er.

Það þarf heiðarleika og hjartans sannfæringu, til að standa einn gegn spillingarstraumi sjóðaspillingar-ormagryfjunnar.

Alvaldur Guð alheimsgóðu orkunnar, er almáttugri en heil hjörð af vanmáttugum og valdalausum Seðlabanka-kauphallar-Mammon-"guðum".

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.1.2014 kl. 21:27

8 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sammála Önnu Sigríði!

Helgi Þór Gunnarsson, 3.1.2014 kl. 23:55

9 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Takk fyrir Helgi Þór.

Takk fyrir að þora að taka undir orð skrýtinnar og valdalausrar kerlingar, sem ég vissulega er.

Vilhjálmur Birgisson stendur alls ekki einn, þótt sumir fjölmiðlar vilji láta sem svo sé!

Allt of fáir þora að styðja þennan sanna og raunverulega verkalýðs-baráttudreng á Akranesi.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.1.2014 kl. 00:20

10 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Vilhjálmur má eiga það að hann náði betri samningum við stóriðjufyrirtækin á sínu félagssvæði en ASÍ gerði með samræmdri launastefnu á sama tíma, einmitt vegna þess að hann vildi ekki fylgja samræmdri launastefnu við stóriðjuna. Enda reyndi stóriðjan á Grundartanga að veifa samræmdu launastefnunni á fyrsta samningafundi við VLFA árið 2011.

Þá má líka benda á að ofan á föst laun fær "hálaunafólk" (t.d. fólk sem er í stöðu að semja sjálft) iðulega alls konar sporslur s.s. frían síma, fría internettengingu, bílastyrk og/eða frían bíl, og hærri lífeyrisgreiðslur svo dæmi séu tekin. Sumt er jafnvel ekki tilgreint til skatts eða gefur rétt á endurgreiðslum frá skatti. Láglaunafólkið hefur ekki kost á þessum sporslum mun því ávallt sitja á hakanum, og þar koma einmitt verkalýðsfélög til skjalanna. Aðalmálið er hins vegar að reyna koma lægstu launum að framfærsluviðmiðum stjórnvalda, eins og menn eins og Vilhjálmur reyna að gera.

Bilið á milli hæstu og lægstu launa er einfaldlega orðið of mikið og það mun ekki minnka ef samið erum prósentur sem gefa verkafólki hækkun sem nemur ca. 1 1/2 klukkutíma á taxta forseta ASÍ.

Hvellurinn situr hins vegar helsáttur í sæluvímu með nýjustu afurð Gylfa og klappar sig móðan. Verði honum að góðu!

Erlingur Alfreð Jónsson, 4.1.2014 kl. 01:50

11 identicon

Hvells.

Það er enginn að misskilja neitt.

Það hins vegar sjá bara flestir í gegnum svona bull.

Sigurður (IP-tala skráð) 4.1.2014 kl. 14:58

12 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Anna

Fjölmiðlar gera lítið annað en að lepja upp ruglið í Vilhjálmi Birgissyni alla daga... 

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 4.1.2014 kl. 16:17

13 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, verði þér að góðu, þó að ég sé af útgerðarmönnum komin, þá vill ég sammt styðja lítilmagnan í þjóðfélaginu, og kannski út af því ég tilheyrir þeim hóp, ef ég fengi einhverju ráðið þá væri Vilhjálmur Birgisson einráður á Íslandi í dag, en það er ekki víst að það gangi. :-)

Sleggjan og Hvellurinn: Afhveju eru þið svona á móti Vilhjálmi Birgisyni???

Helgi Þór Gunnarsson, 5.1.2014 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband