Föstudagur, 3. janúar 2014
Staksteinar 30.des
Nú var það Chata, fyrrverandi fjármálaráðherra og sendiherra landsins í Bandaríkjunum, sem var sprengdur í loft upp í bifreið sinni.
Hinn myrti var stjórnmálalega nátengdur Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, sem hlaut sömu örlög.
Sérkennilegt er að lesa fréttaskýringu fulltrúa BBC á staðnum, sem telur að tveir aðilar komi helst til álita þegar tilræðismannanna er leitað.
Annars vegar hljóti Ísrael (!) að koma til álita eða þá Hezbolla-hreyfingin og aðrir útsendarar ráðamanna í Sýrlandi og Íran.
Furðar fréttaskýrandi BBC sig á því að enn hafi talsmenn á svæðinu ekki bent á Ísrael sem líklegasta ábyrgðaraðila ódæðisins.
Hvernig skyldi standa á þessu sameiginlega einkenni sem er á fréttum þessarar fréttaveitu og ríkisfréttastofunnar hjá okkur?
Sú síðarnefnda ræður alls ekki við sig, þegar gerð er grein fyrir fréttum frá þessu svæði, vegna andúðar ef ekki beinlínis haturs á Ísraelsríki.
Allir vita hvernig fréttaveita RÚV ber sig að í pólitískum dilkadrætti heima fyrir, en af hverju einnig í erlendum fréttum?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.