Fimmtudagur, 2. janúar 2014
Rógburðurinn - Gylfi stendur uppúr sem sigurvegari
Gylfi hefur hárrétt fyrir sér. Hann á mikið hrós fyrri að nenna að svara svona vitleysingum sem endurspegla bara 4% aðildarfélaga innan ASÍ.
Gylfi verst þessum ásökum fimlega og hefur hann Gylfi vaxið gríðarlega í starfi og á hann mikið hrós fyrir góðum kjarasamningum sem nær allir eru fyllilega sátt við.
Við völdum stöðugleika og bætt lífskjör til framtíðar. En ekki Verðbólgúleiðina sem Vilhjálmur birgis og Aðalsteinn vilja fara.... með tileyrandi hækkun á húsnæðislánum, minnkum kaupmáttar og verri lífskjör.
"Það þarf ekki mikla þekkingu til að sjá að 7% almenn hækkun leiðir til þess að krónutöluhækkun þeirra sem eru með dagvinnulaun yfir 300 þús.kr. verður meiri en hækkun taxta og enn meiri meðal hæstu launa en ef viðkomandi hópar fá 2,8% hækkun. Því veit ég ekki hverju þú ert að mótmæla við ummæli mín? Varla ertu að afneita eigin kröfugerð?"
Gylfi er alveg spot on. Og ég veit að Aðalsteinn er í áfalli og veit ekki hvernig á að svara þessu... enda hefur hann Aðalsteinn enga þekkingu á hvorki efnahagsmálum né kjaramálum.
Til hamingju Gylfi og til hamingju ASI og til hamingju Ísland.
hvells
![]() |
Gengur gjörsamlega fram af mér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sleggjan og Hvellurinn!
Ekki veit ég í hvaða veruleika þú lifir en meðal okkar í raun-veruleika er hlegið af þessum samningum Gylfa og co. Þarna voru á ferðinni kjararýrnun (ekki kjarabót) sem samið var um ef tekið er mið af verðbólgu. Þessir samningar verða felldir víðast hvar nú í janúar og vonandi gefur það Gylfa þau skilaboð að finna sér annað starf. Hann veldur, í það minnsta ekki því starfi sem hann gegnir nú um stundir.
Þórður S. (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 12:29
nei þvert á móti voru þetta glæsilegir samningar
allir þeir sem hafa lágmarksþekkingu á hagfræði vita það
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 13:00
Finnst fólki sjálfsagt að lægstu laun hækki um 5% í skammtímasamningi?
Því þá fyrir utan.
Af hverju er SGS ekki að gera neitt meira í málunum almennt þar sem að hjá þeim finnst víst einn lægsti taxtinn í öllu "kerfinu".
Óskar Guðmundsson, 2.1.2014 kl. 13:02
Hærri lágmarkslaun leyðir til meiri atvinnuleysi
Þessvegna er mikilvægt að fólk tali varlega í þessu máli
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 13:14
Ekki samála Hvells núna! Besta kjarabótin hefði verið að lækka skattleysismörk ásamt því að sétja krónutölu á alla línuna. En ein kjarabót er eftir sem virkar best fyrir alla það er afnám verðtryggingar og sameining lífeyrissjóða ásamt því að minka of þanið bankakerfið um að minsta kosti 60%.
Sigurður Haraldsson, 2.1.2014 kl. 13:16
Við erum með hæsta persónuafslátt í heimi
það er mjög hættulegt
það er mannleig reisn að borga skatta. að leyfa sem flesturm að leggja til í samfélagið er jákvætt og gefur fólki ábyrðgartilfinningu
þannig hafa svíar haft það í mörg ár og eru skattleysismörk þar í landi mjög lág ef einhver
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 13:27
Bara þessi orð í fréttinni fengu mig til að endanlega sannfærast að Gylfi á ekki heima þarna... "Sem betur fer er það ekki óþekkt innan raða SGS, að félagsmenn séu ,,yfirborgaðir‘‘ og því verður sambandið einnig að huga að almennri launahækkun"...
Á semsagt að treysta á að fólk sé almennt yfirborgað?
Eiga þá samningar að miðast við slíka gjörninga?
Þið eruð greynilega fífl sem haldið að svo sé...
Ólafur Björn Ólafsson, 2.1.2014 kl. 13:42
Jæja þá vitum við hvar Sleggjan og Hvellurinn standa í launakjörunum. Greinilega á við milljónina ;)
Og plís... miðað við lágmarksþekkingu á hagfræði? Lægst launaðasta fólkið mun tapa á þessu er það ekki satt?
Gunn (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 13:49
Ertu viss um að skattleysismörkin séu hæst á Íslandi Hvellur?
Hefur þú spáð í skattleysismörkin í USA?
Gætti trúað að í USA væri skattleysismörkin aðeins hærri en á Íslandi. Ekki það að ég hafi spáð í þetta sjálfur, en ef það er rétt sem að fréttamenn segja, að tæp 50% þjóðarinar í USA greiðir ekki tekjuskatta, þá hljóta skattleysismörkin að vera töluvert há.
Kveðja frá Houston.
Jóhann Kristinsson, 2.1.2014 kl. 13:54
Jóhann
Þú ert að rugla saman skattgreiðslu og nettó framlag til ríkisins í USA.
Ef þú borgar 200 dollara í skatta en færð bætur fyrir 200dollara annarstaðar þá er það túlkað þannig að þú "borgar" $0 í skatt.
Persónuafsláttur er allt örðvisi og er hann rúmlega 50þúsund á mánuði í dag.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 14:09
En hér á landi er borgað skattur af atvinnuleysisbótum og öryrkjabótum... sem meikar ekkert sens ef maður spáir í því
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 14:10
Það er rétt. Gylfi hefur vaxið í starfi.
Hefur aldrei veirð sterkari.
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 16:58
Gylfi hefur aðallega vaxtið í launum, en ekki eins mikið í starfi.
Maður með miljón í laun sjálfur, og þiggur svo 200 þúsund króna launahækkun til viðbótar en talar á sama tíma um nauðsyn þess að kveikja ekki verðbólgubál með innstæðulausum launahækkunum er ekkert annað en siðlaus aumingi, sérstaklega þegar hann þiggur sjálfur þessa launahækkun frá fólki sem er ekki einu sinni með 200 þúsund í heildarlaun á mánuði. Svona framkoma er ekkert annað en hreinn viðbjóður.
Sigurður (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 19:29
Gat verið að að einhver mundi koma með þessi "rök"
þeir sem eru rökrþota í málinu.... eða hafa bara enga þekkinug á efnahagsmálum yfir höfuð koma með þessu ódýru "rök".
Viltu kannski ekki gera hitler myndband líka?
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 19:32
Merkilegt sem ég les hér, "hæsti persónuafsláttur í heimi"? Hvells, þú virðist haldinn þeirri hugmynd að hér sé himnaríki launafólks með Gylfa sem forseta ASÍ. Ja hérna. Við erum með svipuð laun og Slóvenía og miklu hærra matar og húsnæðisverð. Þá gef ég ekki mikið fyrir þennan háa persónuafslátt. Þegar manneskja með 350 þúsund á mánuði rétt nær 240 þús útborgað eftir skatta, lífeyrissjóð og greiðslu til verkalýðsfélags (og ASÍ) og þetta kallast meðallaun kvenna á Íslandi. Þetta eru laun sem er ekki hægt að lifa af 240 þúsund kallinn dugar ekki til framfærslu og það er Velferðarráðuneytið með aðstoð Hagstofunnar sem reiknaði það út. Með húsnæðiskostnaði getur ein manneskja ekki lifað á þessu. Og það er staðreynd þrátt fyrir að hér "drjúpi rjóminn af öllu", að þínu mati Hvells, með Gylfa forseta vorn í fílabeinsturninum sínum í Borgartúninu. En samningar Gylfa snúast alltaf um prósentur fyrir alla sem eykur á mismunun í þjóðfélaginu. Það er augljóst að hann fær tugum þúsunda meira í hækkun með 1,2 milljónir á mánuði heldur en meðalmanneskjan. Það er kominn tími til breytinga. Réttlátt lánakerfi, réttlát skipting kökunnar, ekki að allir séu með sömu laun, heldur að fólk geti lifað þokkalegu lífi á venjulegum launum.
Margret S. (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 20:19
Við hækkum ekki launin handvirkt.
Til þess að vera með góð laun hér á landi þá þurfum við aga í ríkisfjármálum, lægri skatta, afnema höftin, taka upp stöðugan gjaldmiðil, auka fjárfestingu og þar með framleiðni.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 22:25
Persónuafsláttur samkvæmt IRS Publication er $3,900 á hvern einstakling. Ef að fjölskyldan hefur 2 börn þá er persónuafláturinn á laununum fyrir allt árið $15,600 eða á genginu í dag Kr.1,804,452.
Svo kemur inn í þetta fátækramörkin og hvernig það er reiknað hef ég ekki hugmynd um.
En samkvæmt fréttum þá er fjögramanna fjölskylda skattlaus ef tekjur eru fyrir neðan $36,000 ef ég man rétt.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 2.1.2014 kl. 23:46
Hvells.
"Til þess að vera með góð laun hér á landi þá þurfum við aga í ríkisfjármálum, lægri skatta, afnema höftin, taka upp stöðugan gjaldmiðil, auka fjárfestingu og þar með framleiðni."
þetta er bara ekki rétt hjá þér.
Gylfi og félagar hans í SA eru ekki í neinum vandræðum að taka sér hundruði þúsunda launahækkanir án þessa.
Sigurður (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 23:47
Meirihluti, í augum ASÍ-"forseta" (eða eitthvað svoleiðis), er ekki meirihluti alþýðuverkafólks á Íslandi.
Blessaður ASÍ-brauðmolaþeginn, (af EES/ESB-velgjörðar-einokunar-bónusborðinu), gleymdi aðalatriðinu!
Hann gleymdi alþýðu-verkafólki á lægstu laununum á Íslandinu lífeyrissjóða/banka-rænda og stýrða!
Það er auðvelt að gleyma skjólstæðingum sínum?
Heiðarlega rekin fyrirtæki eiga heldur ekki möguleika á að keppa við stóru fyrirtækin, sem rekin eru af einokunar-ræningjabönkunum.
Það væri rétt að rifja upp myndbandið með 12 ára stelpunni, sem gerði á afskaplega skilmerkilegan hátt, grein fyrir hvernig bankarnir vinna. Þetta skilmerkilega myndband var á youtube. Og er vonandi þar ennþá.
Ómenguð skilgreining á banka og stjórnsýslu-bulli heimsins er nauðsynleg áminning.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.1.2014 kl. 20:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.